Frá undirritun samnings um uppbyggingu Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki milli sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og ríkisins, sem fram fór í verknámshúsi skólans í desember 1990. Þá var nafni skólans breytt í Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Þekkja má við enda borðsins f.v. Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Þorbjörn Árnason formann skólanefndar, Jón F. Hjartarson skólameistara og Ragnar Arnalds þingmann (eða ráðherra).
Ólafur B. Óskarsson bóndi í Víðidalstungu í ræðustóli, hugsanlega þegar Bóknámshús Fjölbrautaskólans var tekið í notkun haustið 1994 en hann talaði þar fyrir hönd sveitastjórna á Norðurlandi vestra.
Sólveig Fjólmundsdóttir frá Hofsósi (önnur f.v.) sigraði í "Öskri" söngvarakeppni Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki í febrúar 1998. Til vinstri við Sóveigu eru Ragnar Magnússon, Þóra Þórhallsdóttir og Eiríkur Hilmisson.
Keppendur og aðstendur stærðfræðikeppni Fjölbrautaskólaskólans á Sauðárkróki sem fram fór vorið 1998. Jón F. Hjartarson skólameistari Fjölbrautaskólans er lengst t.v. og Kristján Halldórsson verkfræðingur og frumkvöðull keppninnar er lengst t.h.
Þrem af þeim sem synt hafa Drangeyjarsund var boðið til eyjarinnar sumarið 1994 af Jóni Eiríkssyni á Fagranesi. Mennirnir eru f.v. Pétur Eiríksson, Axel Kvaran, Jón Eiríksson og Eyjólfur Jónsson. Pétur synti árið 1936, Axel árið 1939 og Eyjólfur árin 1957 og 1959. Á myndinni eru þeir á bryggjunni í Uppgönguvíkinni í Drangey.
Nýjum trefjaplastbáti Laxdal NS 110 var hleypt af stokkunum hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd í febrúar 1983. Á myndinni er Sigurbjörg Guðmundsdóttir að gefa bátnum nafn.
Frá útskrift kennara af Norðurlandi vestra í tveggja ára starfsleikninámi sem fram fór á Hólum árin 1990 og 1991, en alls útskrifuðust 21 kennari. Frá vinstri Elín Einarsdóttir, Inga Þórunn Halldórsdóttir og Sigfríður L. Angantýsdóttir. Þær Elín og Sigfríður sáu um undirbúning námsins. Myndin tekin í Hóladómkirkju.
Nýútskrifaðir búfræðingar frá Hólaskóla haustið 1999 ásamt skólastjórunum þeim Skúla Skúlasyni t.v. sem er að taka við stjórn skólans og heitir nú skólameistari og fráfarandi skólastjóra Jóni Bjarnasyni t.h. sem er að gerast þingmaður. Athöfnin fór fram í Hóladómkirkju.
Íbúar við Víðihlíð á Sauðárkróki héldu grillveislu og fóru í leiki í götunni í ágúst 1987. Hjálmar prestur til hægri við kokkinn áhyggjufullur yfir matseldinni. Jón Snædal t.h. horfir í myndavélina.
Til vinstri Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir (1981-) og Guðbrandur Jón Frímannsson (1922-2000). Revían Glaðar tíðir eftir Jón Ormar Ormsson, sett upp af Umf. Tindastóli vorið 1997 í tilefni af 90 ára afmæli félagsins. Leikstjóri Edda V. Guðmundsdóttir.
Til vinstri Steindór Hafsteinn Hannesson (1936-) og Ólafur Helgi Antonsson (1947-) úr leiksýningunni Húrra krakki sem sett var upp árið 1985 af Leikfélagi Sauðárkróks.
Frá vinstri Ólafur Helgi Antonsson (1947-) og Björgvin J. Sveinsson (1962-) úr leiksýningunni Húrra krakki eftir Arnold og Bach sem sett var upp árið 1985 af Leikfélagi Sauðárkróks.
Söngleikurinn My Fair Lady sett upp af Leikfélagi Akureyrar haustið 1983. Arnar Jónsson (1943-) er t.h. en hann fór með eitt aðalhlutverkið í sýningunni.
Hassið hennar mömmu. Leikstjóri var Jón Júlíusson, sett upp af Leikfélagi Sauðárkróks árið 1993. Frá vinstri Ásgrímur Ingi Ásgrímsson, Steinn Friðriksson og Svanhildur Elsa Jónsdóttir (1942-).
Bangsamamma (Halldóra Helgadóttir (1945-)) og Lilli Klifurmús (Páll Friðriksson). Dýrin í Hálsaskógi sem sett var upp af Leikfélagi Sauðárkróks árið 1994.
Leikhópur F.á S. (Fjölbrautaskólans) setti upp leikritið Sjö stelpur eftir Erik Thorstenson árið 1986. Leikstjóri Geirlaugur Magnússon t.h. á myndinni (1944-2005). T.v. Guðjón Andri Kárason.
Árgangur 1973 í Gagnfræðaskóla Sauðárkróks (Árskóli) með árshátíð. Frá vinstri: Dagmar Hlín Valgeirsdóttir, Ingibjörg Ingadóttir (1973-), Friðrik Örn Haraldsson (Halla Malla) (1973-), aðrir óþekktir.
Leikritið Spanskflugan eftir Arnold og Bach sett upp af Leikfélagi Sauðárkróks árið 1986. Leikstjóri Jón Ormar Ormsson. Til vinstri: Ólafur Helgi Antonsson (1947-) og Sigríður Guðrún Sigmundsdóttir (1959-).
Leikritið Spanskflugan eftir Arnold og Bach sett upp af Leikfélagi Sauðárkróks árið 1986 í leikstjórn Jóns Ormars Ormssonar. F.v. Ingimundur Sverrisson, (Bára Jónsdóttir), Friðrikka Hermannsdóttir og Ólafur Pálsson.