Innbundin fundargerðabók í stærðinni 23,5x34 cm. Bókin er 304 númeraðar síður og þar af eru 6 auðar. Kápan er farin að losna frá bókinni og kjölurinn nokkuð slitinn. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Handskrifuð pappírsörk í A4 stærð. Á annarri síðunni er lagabreytingatillaga sem samþykkt var á aðalfundi 1997 og á hinni síðunni listi yfir stjórnarmenn og nefndarmenn.
2 afrit af sama bréfi, annað handskrifað og afrit gert með kalkiappir, alls 4 bls. Hitt vélritað á 2 pappírsarkir í A4 stærð. Bréfið varðar leiðarval við vegagerð um Vallhólma.
Bókin er 58 bls í A4 broti, hún er kjallímd og með litprentaðri kápu. Á titilsíðu stendur: "The flying wolf. Written by S.G. Skulason. Art by Irvin "shorty" Shope & William Standing." Bókin er árituð, merkt Jóni og undirritunin er "Mom."
Listinn er handskrifaður á 3 pappírsarkir í A4 stærð. Listinn nær yfir nemendur Barnaskóla Akrahrepps og Varmahlíðarskóla í skólaakstri skólaárið 1976-1977.
Fjölritaðar leiðbeiningar um leikfimiæfingar, 4 númeraðar pappírsarkir, auk kápusíðna í A4 stærð. Í heftið eru skrifaðar ýmsar athugasemdir og minnispunktar.
Fjölritaðar leiðbeiningar um leikfimiæfingar, 18 númeraðar pappírsarkir, auk kápusíðu, í A4 stærð. Í heftið eru skrifaðar ýmsar athugasemdir og minnispunktar.
Prófúrlausnir nemenda Sólgarðaskóla í biblíusögum frá árinu 1967. Úrlausnir 12 nemenda, handskrifaðar á jafnmargar pappírsarkir í A4 stærð. Með liggja prófspurningar fyrir yngri og eldri deild.
Prófúrlausnir nemenda Sólgarðaskóla í biblíusögum frá árinu 1968. Úrlausnir 9 nemenda, handskrifaðar á jafnmargar pappírsarkir í folio stærð. Með liggja prófspurningar fyrir yngri og eldri deild, á vélrituðum pappírsörkum í folio stærð.
Íslandssögupróf, úrlausnir 10 nemenda frá árinu 1968. Úrlausnirnar eru handskrifaðar á jafnmargar pappírsarkir í folio stærð. Með liggja prófspurningar fyrir yngri og eldri deild, sem eru vélritaðar á pappírsarkir í folio stærð.
Prófúrlausnir nemenda í lestrarprófi 1943, alls 3 úr hljóðlestarprófi og 33 úr raddlestarprófi. Útfyllt eyðublöð þar sem fram kemur nafn og aldur nemenda og árangur þeirra á prófinu.
Prófúrlausnir nemenda í raddlestrarprófi 1946, alls 25 úrlausnir á útfylltum eyðublöðum þar sem fram kemur nafn og aldur nemenda og árangur þeirra á prófinu. Með liggur eintak af lestarblaði.
Prófúrlausnir nemenda í raddlestrarprófi 1947, alls 20 úrlausnir á útfylltum eyðublöðum þar sem fram kemur nafn og aldur nemenda og árangur þeirra á prófinu. Með liggur eintak af lestarblaði.
Prófúrlausnir nemenda í raddlestrarprófi 1965, alls 18 úrlausnir á útfylltum eyðublöðum þar sem fram kemur nafn og aldur nemenda og árangur þeirra á prófinu.
Prófúrlausnir nemenda í raddlestrarprófi 1971, alls 18 úrlausnir á útfylltum eyðublöðum þar sem fram kemur nafn og aldur nemenda og árangur þeirra á prófinu.
Prófúrlausnir nemenda á reikningsprófi 1966, útfyllt eyðublöð sem hvert um sig eru 4 síður í A4 broti, alls 14 úrlausnir. Með liggja 4 laus blöð með útreikningum.