Gögn sem varða ráðningu Karlottu Jóhannsdóttur sem kennara við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Um er að ræða bréf varðandi námsárangur hennar og frammistöðu við tvo handavinnuskóla í Damörku og einni vinnustofu. Einnig fylgir umsögn Kristínar Símonardóttur á Kolkuósi um störf Karlottu og hæfileika sem sent var til Þórarins Jónssonar á Hjaltabakka í Húnavatnssýslu en hann var skólaráðsformaður við Húsmæðraskólann á Blönduósi og tók við umsóknum varðandi ráðningu í kennslustöður við skólann.
Bréf frá Kristínu Símonardóttur á Kolkuósi til Þórarins Jónssonar hreppstjóra og skólaráðsformanns vegna umsóknar Karlottu Jóhannesardóttur um starf við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Kristín telur upp kosti og hæfileika Karlottu í bréfinu og gefur henni sín bestu meðmæli.
Útgáfa bókarinnar Héraðsstjórn í Húnaþingi. Frá vinstri Bragi Guðmundsson og Jón Ísberg sýslumaður, Austur-Húnavatnssýsla. Bókin Héraðsstjórn í Húnaþingi eftir Braga Guðmundsson menntaskólakennara á Akureyri komin út. Í bókinni er rakin saga sýslunefndanna í Húnavatnssýslu 1872-1907 og í Austur-Húnavatnssýslu 1908-1988. Ritverk þetta var formlega afhent Húnvetningum í samsæti á Hótel Blönduósi. Jón Ísberg sýslumaður Húnvetninga gerði lítillega grein fyrir tilurð þessa ritverks og kynnti höfundinn, Braga Guðmundsson, en hann er borinn og barnfæddur Húnvetningur, frá Holti í Svínadal. Bragi flutti ítarlegt erindi um framgang þessara ritsmíða og flutti þeim fjölmörgu sem nálægt því höfðu komið sínar bestu þakkir. Höfundurinn greindi og frá því að öll aðstaða á Héraðsskjalasafninu á Blönduósi hefði verið mjög góð. Það kom fram hjá Braga að fyrstu þrjátíu og sex árin hefði verið starfandi ein sýslunefnd fyrir báðar Húnavatnssýslurnar en árið 1908 skildu leiðir og störfuðu eftir það tvær sýslunefndir sín hvoru megin við Gljúfurá. Það er ljóst að þessi saga um sýslunefndir sem starfað hafa í Húnavatnssýslum í 116 ár er jafnframt saga sýslunnar og kannski ekki hvað síst saga Ísberganna, en Jón Ísberg sýslumaður hefur verið sýslumaður frá árinu 1960 og þar á undan var faðir hans Guðbrandur Ísberg sýslumaður frá árinu 1932. Bókin Héraðsstjórn í Húnaþingi er 478 síður og í ritnefnd voru Jón Ísberg sýslumaður, Stefán Á. Jónsson og Jón Tryggvason. Jón Sig. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson. Jón Ísberg sýslumaður (t.h.) og höfundurinn Bragi Guðmundsson með hina nýju bók Héraðsstjórn í Húnaþingi.
Ný kirkja rís á Blönduósi. Séra Árni Sigurðsson tekur fyrstu skólfustunguna í júlí 1982. Fé til kirkjubyggingarinnar kom frá sóknarbörnum og var sérstaklega að getið erfðagjafar frá Árna Óla og konu hans Önnu Guðrúnu Guðmundsdóttur.
Leikendur og aðrir aðstandendur, Spanskflugunnar sem Leikfélag Blönduóss setti upp vorið 1984. Leikstjóri Eyþór Árnason og er hann annar frá vinstri í neðstu röð.
Leikritið Skugga-Sveinn var sett upp hjá Leikfélagi Blönduóss á Húnavöku 1985. Leikstjóri var Oktavía Stefánsdóttir og Njáll Þórðarson lék Skugga-Svein. Um sumarið var svo farið með sýninguna til Svíþjóðar og Noregs.