Gunnar Ólafsson (1859-1900), Lóni, og Guðný Jónsdóttir (1856-1930) með 4 af 5 börnum sínum. Efstur er Jón Gunnarsson (1883-) búsettur í Vesturheimi, þá Sigurlaug Gunnarsdóttir (1888-1966) síðast í Reykjavík, Ólafur Gunnarsson (1885-1927) síðar læknir á Hvammstanga fremst til hægri og Þórður Gunnarsson (1886-1940) bóndi Lóni til vinstri
Ísprjón yfirtekur rekstur saumastofunnar Drífu á Hvammstanga haustið 1998 og fækkar starfsfólki úr 20 í 15. Myndin er frá saumastofunni á Skagaströnd. Konan fremst er Signý Magnúsdóttir og Guðbjörg Bryndís Viggósdóttir fyrir aftan hana.
Sönghópurinn "Hvers vegna" tekur lagið á Stórtónleikum Tónlistarfélags V-Hún í mars 1993. F.v. Benedikt Ragnarsson (1962-) frá Barkarstöðum, Miðfirði, Kristín Sigfúsdóttir, Rósa Friðriksdóttir, Björn Hannesson og Elínborg Sigurvinsdóttir, Hvammstanga.
Leikflokkurinn á Hvammstanga setti upp leikritið Maður og kona eftir Jón Toroddsen árið 1991. Gísli Einarsson (1967-) lengst t.v. Aðrir leikendur óþekktir.
Japaninn Sima (t. v.) og Guðmundur vekrstjóri skoða afurðir ígulkerjavinnslunnar "Íguls" á Hvammstanga haustið 1993, en það eru hrogn ígulkerjanna sem sóst er eftir og þau flutt til Japan.
Leikklúbburinn á Hvammstanga setti upp, Hreppstjóran á Hraunhamri eftir Loft Guðmundsson síðla vetrar 1993. Leikstjóri Hörður Torfason. Lengst t.h. er Júlíus Guðni Antonsson, hin óþekkt.
Mynd tekin í hátíðarsal Sjúkrahússins á Hvammstanga í janúar 1995 þar sem þess var minnst að 75 ár voru liðin frá stofnun Sjúkrahússins. Herdís Bjarnadóttir vistmaður er hugsanlega önnur f.h. í fremstu röð og Elín R. Líndal t.v. við hana. Aðrir óþekktir.
Vinnuskólinn á Hvammstanga sumarið 1983. Magnús Ýmir Magnússon, Bjarki Haraldsson og Gunnar Sveinsson. Tilgáta að þeir séu allir fæddir í kringum 1970.
Ragnar Arnalds veitir viðtöku tveimur málverkum eftir Margréti Björnsdóttur (Sossu) í fimmtugs afmæli sínu, sem haldið var í Vertshúsinu á Hvammstanga í september 1988.
Leikklúbburinn á Hvammstanga setti upp , Hreppstjóran á Hraunhamri eftir Loft Guðmundsson síðla vetrar 1993. Leikstjóri Hörður Torfason. Júlíus Guðni Antonsson t.h. hinn óþekktur.
Leikklúbbur á Hvammstanga setti upp, Hreppstjóran á Hraunhamri eftir Loft Guðmundsson síðla vetrar 1993. Leikstjóri Hörður Torfason. Leikendur óþekktir.
Gullnahliðið sett upp af Leikflokknum á Hvammstanga árið 1984. Leikstjóri Þröstur Guðbjartsson. T.v. Sigurrós Garðarsdóttir (kerlingin) og Páll Sigurðsson (Lykla-Pétur).
Byggingarmenn á Hvammstanga haustið 1999. Frá vinstri Árni Jón Eyþórsson, Einar Jónsson, Daníel Karlsson, Tryggvi Rúnar Hauksson, Halldór Pétur Sigurðsson, Hannes Ársælsson og Ólafur H. Stefánsson.
Afhending bikars hjá USVH Hvammstanga í janúar 1984 fyrir afrek ársins 1983. Frá vinstri Kristín Eggertsdóttir, bikarhafi í sundi þá Gunnar Sveinsson, Hrafnhildur Brynjólfsdóttir og Hulda Jóhannesdóttir.
Leikflokkurinn á Hvammstanga setti upp leikritið Maður og kona eftir Jón Toroddsen árið 1991 í leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Gísli Einarsson (1967-) í miðröð annar frá vinstri. Aðrir óþekktir.