Uppkast að bréfi frá Sigurjóni, skrifað að Syðra-Skörðugili. Bréfið er svarbréf við auglýsingu sem kom í útvarpinu þar sem óskað var eftir bústjóra á jörð skammt frá Reykjavík. Sigurjón segir stuttlega frá sjálfum sér og spyr jafnan frekari upplýsinga varðandi starfið.
Skýrsla er tölvuprentuð á 19 pappírsarkir í A4 stærð. Skýrslan er nr 15/2003. Hún er um fornleifaskráningu fyrir deiliskipulag vegna byggingarreita á Syðra-Skörðugili. Höfundar eru Katrín Gunnarsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir. Ástand skjalsins er gott.
Efri röð frá vinstri: Guðrún Ásgrímsdóttir, Efra-Ási. Sigrún Júlíusdóttir, Syðra-Skörðugili. Fremri röð frá vinstri: Þorsteinn Jónsson bóndi í Sólheimum Mýrdal V-Skaftafellss. Gerður Sigurðardóttir, Sleitustöðum.
Búdagur loðdýrabænda var haldinn í Loðfeldi búi Reynis Barðdals haustið 1996. Í fremri hópnum má þekkja f.v. Jón Hjört Stefánsson (á bak við), Einar E. Gíslason, Syðra-Skörðugili, Kristján Jónsson, Óslandi, Harald Stefánsson, Brautarholti og óþekktur.
Búdagur lóðdýaræktenda var haldinn í Loðfeldi búi Reynis Barðdals haustið 1999. Frá vinstri Svavar Haraldur Stefánsson, (1952-). Brautarholti, Kristinn Gamalíelson Þórustöðum II í Ölfusi, og Þórarinn Guðvarðarson (1930-) Minni- Reykjum í Fljótum.
Innbundin handskrifuð bók í lélegu ástandi bókakápa rifin og einnig blaðsíður en bókin er bundin saman með bandi og vel læsileg. Stofnfundabók félagsins.