Harðspjalda handskrifuð fundargjörðabók í góðu ástandi. Hún virðist vera nýlega skrifuð ( gæti verið Árni Bjarnasson sem skrifar ) upp úr gögnum gjörðabóka en í upphafi bókar sem hefur titil Úrdráttur úr fundargjörðum búnaðarfélags Akrahrepps og störf þess til 1892. eru skrifaðar upplýsingar er koma fram í eldri gögnum safnsins. Lítur út eins og verið sé að hreinskrifa upplýsingar.
Konráð Gíslason sækir um byggingarleyfi fyrir fjárhúsum á Frostastöðum. Teikningu gerði Byggingastofnun landbúnaðarins. Dagsett 20.06.1973. Teikningar fylgja ekki.
Þórarinn Magnússon sækir um byggingarleyfi til að byggja fjárhús og hlöðu á Frostastöðum 1. Teikningu gerði Byggingastofnun landbúnaðarins. Umsókn dagsett 30.08.1974. Teikning fylgir.
Þórarinn Magnússon sækir um byggingarleyfi fyrir hlöðu á Frostastöðum. Teikningu gerði Sveinn S. Pálmason og styrkleikateikningu gerði Vilhjálmur Grímsson. Umsókn dagsett 25.05.1976. Styrkleikateikning fylgir.
Sveinn Sveinsson sækir um byggingarleyfi fyrir þurrheyshlöðu á Frostastöðum. Teikningu gerði Sv. Sp. Héðinn og styrkleikateikningu gerði Steingrímur Arason Héðni. Umsókn dagsett 01.06.1978. Teikning fylgir ekki.