1 umslag og 4 Bréf skrifuð á íslensku frá Gloriu í Winnipeg, Manitoba: 1981-1986. Fyrsta bréf er dagsett 03.03.1981 Annað bréf er dagsett 20.11.1985 Þriðja bréf er dagsett 21.02.1986 Fjórða bréf er skrifað 1998 Umslag er stimplað 1986 í Winnipeg, Canada
Tvö bréf til Guðlaugar og Þóris frá Laufeyju frænku þeirra, skrifuð á íslensku og merkt Winnipeg, Manitoba. Fyrra bréfið er til Guðlaugar og er skrifað 24 desember, 1966. Seinna bréfið er til Guðlaugar og Þóris bróðir hennar, skrifað 27 september, 1973
Myndin er tekin í Winnipeg júní 1955. Aftan á hana er skrifað: "Þetta er Sargent Ave eða "Jeelanders main street" eins og það var einu sinni kallað. Þarna búa mjög margir ísl og stóra hvíta húsið til hægri er Ísl I.O.G.T. húsið séð vestur."
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955. Aftan á hana er skrifað: "Stytta Jóns Sig. og stúlkan sem lagði blómsveiginn. Hún heitir Margrét og maður hennar, Þorsteinn er prentari hjá öðru dagblaðinu hér."
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955 Aftan á hana er skrifað: "Hudson Bay verslunin séð á bakhlína og bílastæðið á tveimur hæðum, sem nú er verið að byggja þriðju hæðina á."
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955. Aftan á hana er skrifað: "Styttan af Jóni Sig. í þinghúsgarðinum og blómsveigur sem lagður að henni 17. júní. Krakkarnir eru íslenskir."
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955 Aftan á hana er skrifað: "Bragi Melax og ég fyrir framan styttuna af Jón Sig. í þinghúsgarðinum, hún er eins og sú á Austurvelli.
Myndin er tekin í McCreary 1954. Aftan á myndinni stendur: "Þarna er tröllabarnið að bolta teinana fasta á bitana, en þarna urðu við að skipta um ég held 2 af hverjum 3 bitum vegna fóa og var þarna líklega erfiðasta vinnan, því svo var heldur enginn möl þar, og urðum við að stinga upp leirdrullu til að þjappa undir bitana. Við hækkuðum einnig 2 brýr þar og aðrar tvær í Oehra River. Til þorpsins sést lengst til vinstri."
Myndin er tekin í Oehre River 3. september 1954 Aftan á myndinni stendur: "Tröllabarnið og Lýti eru fremstir, síðan Kári og bakvið sést á Ítalann og Þjóðverjann."
Myndin er tekin í Manitoba 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þinghúsið í Manitoba. Þetta er mjög fallegt hús og fyrir framan tröppurnar sést minnismerki af Viktoríu drottningu. Í garðinum er stittan af Jóni Sig."
Myndin er tekin í Winnipeg 29. agúst 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ég stend þarna fyrir framan eina stærstu járnvöruverslun borgarinnar, heldur súr á svipinn. Á rúðunum má sjá rendur, um 10 cm frá kantinum, hringinn í kring. Þetta er til varnar þjófum, Þessi rönd er eins og úr brönsi og er rafstraumur á henni, og ef kemur sprunga í hana hringir þjófabjalla. þetta er mjög nýtt og er á mörgum byggingum í Wpeg. Ekki vorum við nú að hugsa nánar um það."
Myndin er tekin í McCreary 1954. Aftan á myndinni stendur: "Þarna er verið að vinna mð véltékkinn sem liftir upp teinunum og bitunum. Talið frá vinstri: Asninn, á bak við hann sést á annan Rússana okkar. Lýti og Hvati, Höfðinginn á tékknum, Tröllabarnið og Tjaldur. Fjær sést halamálið þvert yfir teinana, sem miðað er við hvað hækka eigi línuna mikið."
Myndin er tekin í Oehre River 3. september 1954 Aftan á myndinni stendur: "Ítalinn er þarna á milli okkar, að gera einhverjar kúnstir, en hann var hinn mesti sprellikarl."
Myndin er tekin í Brandon 19. september 1954 Aftan á myndinni stendur: "Þarna sést brúin yfir ána, hún liggur langt upp á bakkann hérna megin og liggur þar yfir CPR járnbrautarstöðina."
Myndin er tekin í Brandon 19. september 1954 Aftan á myndinni stendur: "Þarna sést neðsti hlutinn af bænum, en hann stendur ofan í hálfgerðum dal, sem áin hefur sjálfsagt grafið. Bakkar sléttunnar sjást í fjarska."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er tekin niður aðalgötu Winnipeg-Portage. Dökka húsið niður með götunni með hvíta skúrnum á þakinu (með tvo svarta depla) er Eaton verslunin. Hendson Bayrslunin sést ekki, hún er nær okkur, sömu megin."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ég stend þarna í dyrunum á Fort Garry virkinu. Þetta hlíð stendur til minja um þetta stóra virki og það eina sem eftir er af því. Það stóð þar sem miðborg Wpeg er nú."
Myndin er tekin í Winnipeg 29. agúst 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ráðhús Winnipeg borgar. Þar er mjög fögur og skrautleg bygging, með fallegum garði með minnismerkjum fyrir framan."
Myndin er tekin í Rumas 1954. Aftan á myndinni stendur: "Þarna sést nokkrir af vögnunum okkar. Vagninn lengst til hægri er sá sem við sofum í. Fyrir framan sést mótorvagninn með tvo dráttarvagna, við ferðuðumst á þeim á vinnustaðinn."
Myndin er tekin í Brandon 19. september 1954 Aftan á myndinni stendur: "Járnbrautarstöð C.P.R. Myndin er tekin ofan af mjög stórri brú, sem sést betur á annarri mynd."
Myndin er tekin í Piumas 1954 Aftan á myndinni stendur: "Hveitigeymslurnar í Píumas, svona turnar eru í hverju þorpi, mismunandi margir þó, og oft mjög stórir."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er nú ekki af neinni sérstakri götu, en svona eru allar íbúðar göturnar. í Wpeg.Húsin eru lítil en falleg, og ot engin girðing fyrir framan þau, svo kemur gangstjettin milli hennar og göturnar eru breiður grasivaxinn bali með einfaldri trjáröð. Það eru aldrei neinar búðir við þessar götur heldur aðeins á götunum sem skera þær."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er tekin yfir Assinnibo ánni, rétt fyrir ofan þar sem hún rennur í Rauðána. Það væri hægt að ætla að þetta væri langt inn í óbyggðum en þetta er í miðri borginni. Gatan sem liggur yfir brúna Oskorne str. er mjög stór og fjölfarin og útfrá henni liggur gatan sem Kobbi býr á."
Myndin er tekin 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þetta er Jón Magnússon, móðurbróðir Kára, hann tók myndina af honum þegar hann fór í heimsókn til hans norður í Selkirk 4/12 54."
Myndin er tekin í McCreary 1954. Aftan á myndinni stendur: "Þarna voru karlarnir farnir að týnast á vagnana úr matartímanum, Kári og Gunter sitja lengst til hægri. Lengst til vinstri sést til þorpsins, en við vorum um mílu frá því, með vangatrossuna."
Myndin er tekin í McCreary 1954. Aftan á myndinni stendur: "Verið að vinna við að lifta teinunum. Þetta eru mennirnir sem þjappa mölinni undir bitana með vélum. Talið frá vinstri: Þroti, Sjón, Monti, Grænhöfði, Ítalinn, Svipur, Þefur og Hvatur."
Myndin er tekin í Rumas 1954. Aftan á myndinni stendur: "Þarna stöndum við Gunter þjóðverjinn fyrir framan einn vagn, sem stoppaði þarna til að taka hveitivagna."
Myndin er tekin í McCreary. Aftan á myndinni stendur: "Myndin er tekin 2-3 mílum fyrir sunnan Mc Creary, þar sem við vorum að vinna og er af stéttinni. Svona er útsýnið hvar í Manitoba."
Myndin er tekin í Manitoba 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þessi mynd er tekin inní andyri Þinghússins. Þessi vísundur er í fullri stærð og annar stendur hinu megin við stigann. Þeir eru baðir úr bronsi, en annars er húsið allt úr steini."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Ég stend þarna upp við trjábút sem Kobbi sýndi okkur einu sinni þegar við vorum ða komu úr "stéttarbaráttunni". Hann er hafður þarna til sýnis. Það ar fellt 1929 og var það þá 687 ára. Það má glöggt sjá árshringina, og svo hafa þeir merk inn á (hvítu strikin). Það var þetta gamalt þegar Columbus fann Ameríku og önnur merkileg ártöl. Það er um 6 fet í þvermál, frá British Columbia."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Húsið til vinstri er Hudson Bay, 7 hæða húsið fyrir aftan það neðar á götunni er það að láta byggju 2 hæða bílastæði fyrir viðskiptavininn. Stóra húsið þar fyrir aftan er Leikhús Wpeg. Þó held ég að aldrei séu sýnd leikrit þar. Þar söng íslenskur karlakórinn þegar hann kom hér um árið. Fyrir miðju er þinghúsið aftur."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Kári stendur þarna á brú yfir Assinnibo ána. Þetta er Osborne stræti en miklu fjær gengur Montgomery Ave út úr því. Á bak við Kára sjást þessi stóru auglýsingaskilti kannski 5 metrar á hæð þau eru mjög víða í borginni."
Myndin er tekin í Winnipeg 1954. Aftan á hana er skrifað: "Þetta er nú húsið hans Kobba, 246 Montgomery Ave. Það er nú svo sem enginn höll en það er nokkuð laglegt. Þetta er mjög nýlegt hverfi og húsin standa þarna mjög þétt (eins og alls staðar annars staðar) en aðal lóðin er á bak við húsið."
Myndin er tekin í Winnipeg 29. agúst 1954. Aftan á hana er skrifað: "Við skruppum til Wpeg um þessa helgi og hittum Stebba þar, þá tók Kári þessa mynd af okkur."
Lítil harðspjalda handskrifuð ljóða og minnisbók Sigríðar Traustadóttur. Hún ritar sín ljóð og annarra í þessa litlu bók á meðan hún er á ferðalagi sínu. Hún er einnig að þýða í bókinni ljóð eftir Colly Monrad Rósir lífs og dauða og Kvöldvísa eftir Göethe, ásamt því að yrkja ljóð á norsku, hér er einnig ljóð um Jón Magnússon Ósmann.
Sigríður (Johnson) Kirstinsson, kölluð Sadie. Kona Árna á mynd nr 1. Ef til vill brúðarmynd og ef svo er væri hún tekin árið 1012. Tekin í Winnipeg í Kanada.
Guðrún Ólöf (Kristinsson) Thompson, kölluð Olive, með bróður sínum, Jóhn Alan Kristinsson. Börn Árna á mynd nr 1. Myndin er tekin í Saskatoon, Saskatchewan í Kanada í september 1993.
Guðrún Ólöf (Olive) með börn sín, talið frá vinstri: Bob Thompson, Carol (Thompson) Hellman, Olive (Kristinsson) Thompson, Patti (Thompson) Miller, gefandinn og Steve Thompson. Myndin er tekin í Saskaton í september 1993.