Bréfið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk og undirritað af Jóni Jónssyni á Hafsteinsstöðum. Það inniheldur umboð til skuldainnheimtu og er einnig undirritað af vottum.
Jón Jónsson, hreppstjóri á Hafsteinsstöðum, leitar til sáttanefndar Viðvíkurssáttumdæmi varðandi skuld Þorgils Hjálmarssonar, Hólum, hjá verslun Á. Ásgeirssonar á Ísafirði en Jón hafði umboð verslunarinnar til að innheima þessa skuld. Plaggið inniheldur erindi Jóns (nefnd kæra seinna í plagginu) ásamt viðbrögðum og niðurstöðu. Hefst 5. janúar 1903 og lýkur 13. janúar 1903.
Steinvör Sigurjónsdóttir (1881-1911) Stóru-Seylu- Skag. kona Björns Jónssonar (1879-1943) bónda þar og Jón Björnsson (1903-1987) síðar bóndi og kórstjóri á Hafsteinsstöðum.
Gögn, opinber og einkagögn, úr fórum Jóns Jónssonar (1850-1939) á Hafsteinsstöðum og föður hans Jóns Jónssonar (1820-1904) á Hóli í Sæmundarhlíð. Um er að ræða bréf, reikninga, leiðbeiningar, skjöl, erindi og tilkynningar.