Vor í Skagafirði - tileinkað félaginu í "Varmahlíð" Vor í Skagafirði (tileinkað félaginu „Varmahlíð“)
Nú er vor yfir jörð. Yfir fjall, yfir fjörð Hellast fossar af skínandi, blikandi ljóma. Hér er unaður nýr, Þegar árdagsblær hlýr Leysir allt, sem að lifir úr kveljandi dróma. Hið „ónýta“ og visna að hauðrinu hnígur, Til himinsins ilmur frá jörðinni stígur. Yfir bjartsýna þjóð, Með sín blíðustu ljóð, Vorsins brosandi herskari ástfanginn, syngjandi flýgur.
Nú ber Mælihnjúk hátt. Upp í heiðloftið blátt yfir héraðið rís hann í konungstign sinni. Eins og vörður í kring raðar hamranna hring. Hvílík tign, hvílík dýrð yfir sveitinni minni. Um Kaldbak og Tindastól tíbráin glitrar. Niður tignfríða Blönduhlíð berglindin sitrar. Út við eyjar og sund sefu8r Ægir sinn blund. Yfir öll´ eru ríkjandi blessaðar listdísir virtar.
Ó, þú sólvermda land; Ó, þú sagnauðga land; Þú ert sólarbros Guðs, á hans albesta degi. Þú ert allt, sem er hlýtt, sem er fagurt og frítt, sem er framsækið, ljósþyrst, á betrunarvegi. Þú er máttugt, sem Hólastóll goðborins siðar. Yfir Skaga og Fljót, yfir fald þinn og fót, breiðist friðarblær vorsins, sem skjókróna allaufgaðs viðar.
Hér þarf frjálshuga þjóð. Hér þarf framsækna þjóð. Hér skal forystumenning frá grundvelli rísa. Hér þarf listelska lund, Þó að lúin sé mund. Hér skal ljóssækin æska á brautina vísa. Í ljóselskar sálir skal guðtraustið grafið, sem glampandi breiður á sólarþyrst hafið. Hér þarf raunsterka sál. Hér þarf rammíslenskt mál. Þá er ramminn og myndin í samræmdri einingu vafið.
Skýrsla er tölvuprentuð á 29 pappírsarkir í A4 stærð. Skýrslan er nr 19/2003. Hún er um fornleifa- og minjaskráningu fyrir aðalskipulag í Varmahlíð. Höfundar eru Katrín Gunnarsdóttir og Sigríður Sigurðardóttir. Ástand skjalsins er gott.
Í safninu er póstkort með mynd af sundkonu stinga sér til sunds (líklega í tengslum við vígslu sundlaugarinnar í Varmahlíð) og happdrættismiði fyrir sundlaug Skagfirðinga í Varmahlíð. Ekki er vitað hver afhendir eða hvenær.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar veru breska setuliðsins í Varmahlíð og grunn sem grafinn var vegna héraðsskóla í Varmahlíð en síðan nýttur í annað. Ástand skjalsins er gott.
Skjalið er prentað á pappírsörk í folio broti. Það varðar lán Sparisjóðs Sauðárkróks til skólanefndar Héraðsskólans í Varmahlíð vegna jarðeignarinnar Varmahlíðar í Seyluhreppi. Með liggur veðbókarvottorð fyrir jörðina, dagsett 26.09.1957. Ástand jarðarinnar er gott.
Frá vinstri: Gunnar Haraldsson frá Bálkastöðum. Magnús Bjarnason kennari á Sauðárkróki. Lindemann Volker, Varmahlíð o.v. Páll Sveinbjörnsson, bifreiðastjóri á Sauðárkróki.