Sýnir 372 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Varmahlíð
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

319 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

Vor Í Skagafirði

Vor í Skagafirði - tileinkað félaginu í "Varmahlíð"
Vor í Skagafirði (tileinkað félaginu „Varmahlíð“)

  1. Nú er vor yfir jörð.
    Yfir fjall, yfir fjörð
    Hellast fossar af skínandi, blikandi ljóma.
    Hér er unaður nýr,
    Þegar árdagsblær hlýr
    Leysir allt, sem að lifir úr kveljandi dróma.
    Hið „ónýta“ og visna að hauðrinu hnígur,
    Til himinsins ilmur frá jörðinni stígur.
    Yfir bjartsýna þjóð,
    Með sín blíðustu ljóð,
    Vorsins brosandi herskari ástfanginn, syngjandi flýgur.

  2. Nú ber Mælihnjúk hátt.
    Upp í heiðloftið blátt
    yfir héraðið rís hann í konungstign sinni.
    Eins og vörður í kring
    raðar hamranna hring.
    Hvílík tign, hvílík dýrð yfir sveitinni minni.
    Um Kaldbak og Tindastól tíbráin glitrar.
    Niður tignfríða Blönduhlíð berglindin sitrar.
    Út við eyjar og sund
    sefu8r Ægir sinn blund.
    Yfir öll´ eru ríkjandi blessaðar listdísir virtar.

  3. Ó, þú sólvermda land;
    Ó, þú sagnauðga land;
    Þú ert sólarbros Guðs, á hans albesta degi.
    Þú ert allt, sem er hlýtt,
    sem er fagurt og frítt,
    sem er framsækið, ljósþyrst, á betrunarvegi.
    Þú er máttugt, sem Hólastóll goðborins siðar.
    Yfir Skaga og Fljót,
    yfir fald þinn og fót,
    breiðist friðarblær vorsins, sem skjókróna allaufgaðs viðar.

  4. Hér þarf frjálshuga þjóð.
    Hér þarf framsækna þjóð.
    Hér skal forystumenning frá grundvelli rísa.
    Hér þarf listelska lund,
    Þó að lúin sé mund.
    Hér skal ljóssækin æska á brautina vísa.
    Í ljóselskar sálir skal guðtraustið grafið,
    sem glampandi breiður á sólarþyrst hafið.
    Hér þarf raunsterka sál.
    Hér þarf rammíslenskt mál.
    Þá er ramminn og myndin í samræmdri einingu vafið.

Tryggvi Guttormur Hjörleifsson Kvaran (1892-1940)

GI 184

Guðjón Ingimundarson (1915-2004) í "Svanahoppi" í Varmahliðarlaug árið 1940. Gamli lundurinn í baksýn.

GI 186

Guðjón Ingimundarson (1915-2004) í "Svanahoppi" í Varmahliðarlaug árið 1940. Gamli lundurinn í baksýn.

GI 185

Guðjón Ingimundarson (1915-2004) í "Svanahoppi" í Varmahliðarlaug árið 1940. Gamli lundurinn í baksýn.

GI 189

Guðjón Ingimundarson (1915-2004) í "Svanahoppi" í Varmahliðarlaug árið 1940. Gamli lundurinn í baksýn.

GI 195

Sjötti Grettisbikar. Sunnudagur 8. júlí í Varmahlíð. Úrslit urðu þessi.Sá sem heldur á bikarnum er Gísli Indriði Felixson (1930-) synti á 8 mín og 07 sek. Vinstra megin á myndinni er Eiríkur Valdimarsson (1923-1985) synti á 9 mín. 20 sek. og til hægri Maron Pétursson (1919-2000) synti á 10 mín. Tilg. Miðjumaðurinn er Gísli Felixson (með bikarinn)

GI 196

  1. keppni í Grettissundi fór fram sunnudaginn 16. júlí 1944. 1 Gísli Felixsson (1930-) á 9:21 -2 mín tekur við Grettisbikar á myndinni. Eiríkur Valdimarsson (1923-1985) Vallanesi sundkappinn synti á 9:29.0 sem er lengst til hægri. Maron Pétursson (1919-2000) sundkappi sem er lengst til vinstri synti á 9:34.0. Guðjón Ingimundarson (1915-2004)afhendir bikarinn. Sundmenn - f.v. Maron Pétursson - Gísli Felixson - og Eiríkur Valdimarsson. Guðjón Ingimundarson veitir viðurkenningu.

GI 1061

Sundkennsla Sauðkrækinga fór fram í Varmahlíð og þá var oft tjaldað á meðan sundnámskeiðið stóð.

GI 1481

Frá haustheimsókn í Varmahlíð árið 1942 - frá vinstri Eggert Ólafsson - Gísli Gíslason - Sigurþór Hjörleifsson - Gísli Kolbeinsson - Hjálmar Eiðsson - Jóhannes Haraldsson og Gunnar Gunnarsson.

Niðurstöður 1 to 85 of 372