Listinn er handskrifaður á þrettán pappírsarkir í stærðinni 22.8 x 13,7 cm. Hann er sundurliðaður eftir frá hvaða bæjum munirnir eru keyptir. Ástand skjalsins er gott.
Bókin er í stærðinni 25,5 x 19,5 cm. Utan um hana er kápa úr pappa og plasti. Kápan er nokkuð skemmd af óhreindum eða raka og farin að losna frá bókinni.
Listinn er handskrifaður á tvær pappírsarkir í folio broti, alls átta síður. Hann nær yfir hluti sem keyptir hafa verið í safnið, óljóst er á hvaða tímabili. Listinn er sundurliðaður eftir bæjum. Ástand skjalsins er gott.
Bókin er í stærðinni 22 x 15,7 cm. Utan um hana er kápa útskorinn í tré og einnig áfast skraut á kili sem skorið er út í tré. Ástand bókarinnar er gott.
Frá vinstri: Einar Kristmundsson Rauðbarðaholti í Dölum- Guðrún Jóhannesdóttir kona hans- dóttir Moniku Helgadóttur á Merkigili- sem kemur næst- Lárus Arnórsson á Miklabæ og dætur Moniku- Sigurbjörg ný?- Elín og Margrét. Tekið eftir Eldmessu á Miklabæ 1953. Gefandi 28.09.1978 Monika Helgadóttir.