Listinn er handskrifaður á sex pappírsarkir í A4 stærð. Yfirskrift hans er "munir fáanlegir í byggðasafnið." Listaðir eru upp munir á ýmsum bæjum í Skagafirði. Ástand skjalsins er gott.
Frá vinstri: Guðríður Jónsdóttir frá Bakkakoti, kona Erlendar Helgasonar bónda á Breið í Lýtingsst.hr. Hin konan á myndinni er Guðbjörg, en ekkert er vitað meira um þessa konu.
Viðtal við Björn Hjálmarsson, Syðri-Mælifelssá. Líklega tekið í kringum 1969-1970. Björn var fæddur á Breið en missti föður sinn sex ára og fór þá í fóstur í Svartárdal fram að fermingu. Fjallað um búskap, m.a. heybandslestir og seljabúskap. Einnig stöðu og horfur í landbúnaði.