frá v. kvennaröð: Margrét Rögnvaldsdóttir, Hrólfsstöðum; Ingibjörg Stefánsdóttir, Vöglum; Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Úlfstöðum; Guðrún Pétursdóttir, Víðivöllum og Guðrún Björnsdóttir, Miklabæ. Karlmaðurinn er Magnús Gíslason á Vöglum
Bréf Lárusar Thorarensen sýslumanns til hreppstjóranna í Akrahreppi varðandi bréf er hann hafði fengið frá sýslumanni Húnavatnssýslu. Bréfið varðar framfærslu.
Fyrstu hreinu galloway nautin úr Hrísey komu í Skagafjörð í ársbyrjun 1997. Þeir stinga nokkuð í stúf hinir kafloðnu kollar galloway kálfanna tveggja t.v. í fjósinu á Vöglum.
Fyrstu hreinu galloway nautin úr Hrísey komu í Skagafjörð í ársbyrjun 1997. Þeir stinga nokkuð í stúf hinir kafloðnu kollar galloway kálfanna tveggja t.v. í fjósinu á Vöglum.
Viðtal við Magnús K. Gíslason frá Vöglum, tekið í ágúst 1969. M.a. rætt um búfræðinám hans, búskap á Vöglum, kveðskap o.fl. Einnig um trúmál og kirkjusókn. Þa er rætt um framtíðarsýn og lífsskoðun viðmælanda. Magnús ræðir einnig um samtíðarmenn. Sigurður Egilsson tekur fyrri hluta viðtalsins en í seinni hlutanum er annar spyrill, Hannes Pétursson.
Bréfið er handskrifað á línustrikaða pappírsörk og undirritað af Magnúsi Gíslasyni á Vöglum. Aftan á það eru ritaðar með blýanti tölulegar upplýsingar um búfénað.