Showing 60 results

Archival descriptions
Kristján C. Magnússon (1900-1973) Sundlaug Sauðárkróks
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

60 results with digital objects Show results with digital objects

KCM1238

Myndir 1238 til 1263 eru frá sundmóti Ungmennasambands Skagafjarðar sem haldið var í Sundlaug Sauðárkróks 13. júlí 1958 og var þetta fyrsta sundmót sem haldið var í Sundlaug Sauðárkróks, en sundlaugin tók til starfa í júní 1957. Keppendur á sundmótinu voru 48 frá tveimur ungmennafélögum þ.e. Umf. Tindastóli og Umf. Fram. Stigin féllu þannig að Umf. Fram fékk 99 stig og Umf. Tindastóll 65 stig.
Mynd: Steinunn Ingimundardóttir afhendir Sigurbjörgu Sigurpálsdóttur verðlaun, en hún sigraði í fjórum greinum á mótinu. T.v. við Sigurbjörgu er Svanhildur Sigurðardóttir t.h. óþekkt.
Lengst til vinstri er Rögnvaldur Ólafsson, tímavörður. T.h. við verðlaunahafana má þekkja f.v Guðjón Ingimundarson (með skrifblokk), Steingrím Felixson, Ástvald Guðmundsson (Itti) og Sigurjón Jónasson (Dúddi).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1240

Sjá mynd 1238. Sundmót í Sundlaug Sauðárkróks 1958.
(Tilg.) verðlaunaafhending í 50 m. baksundi. (T.v.) Stefán Gunnarsson (2. sæti) og (t.h.) Sveinn Ingason (1.sæti). Lengst t.v. Rögnvaldur Ólafsson og t.h. Grétar Benediktsson og Steingrímur Felixson. Aðrir óþekktir.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1242

Sjá mynd 1238. Sundmót í Sundlaug Sauðárkróks 1958. Stefán Guðmundsson tímavörður krýpur á bakkanum.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1244

Sjá mynd 1238. Sundmót í Sundlaug Sauðárkróks 1958. Tímaverðir f.v. Stefán Guðmundsson, Steinunn Ingimundardóttir, (Hörður Pálsson), Rögnvaldur Ólafsson, Kári Steinsson og Steingrímur Felixson (í dökkum jakka) og svo Guðjón Ingimundarson.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1246

Sjá mynd 1238. Sundmót í Sundlaug Sauðárkróks 1958. Steinunn Ingimundardóttir veitir Stefáni Gunnarssyni verðlaun. T.h. við Stefán er á verðlaunapalli Sveinn Ingason. T.v. eru Hörður Pálsson (sér á bak). Kári Steinsson (með sólgleraugu) og Steingrímur Felixson (situr). T.h. er Guðjón Ingimundarson.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1254

Sjá mynd 1238. Sundmót í Sundlaug Sauðárkróks 1958. Árni Þorbjörnsson á miðri mynd með hatt. t.v. við Árna er Guðrún Gísladóttir. T.h. Björn Daníelsson, skólastjóri og Margrét Ólafsdóttir (bera í letrið á veggnum).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1255

Sjá mynd 1238. Sundmót í Sundlaug Sauðárkróks 1958. Steinunn Ingimundardóttir veitir verðlaun sennilga í 200m sundi karla. Efstur á palli er Jón Árnason og t.v. ætti að vera Jóhann Sigurðsson og t.h. (tilg.) Brynleifur Tobíasson. T.v. sitja Steingrímur Felixson og Kári Steinsson. Guðjón Ingimundarson er t.h. við keppendur. Aðrir óþekktir.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1256

Sjá mynd 1238. Sundmót í Sundlaug Sauðárkróks 1958. Þekkja má f.v. Steingrím Felixson, Kára Steinsson, Guðjón Ingimundarson, Ástvald Guðmundsson (Itta) og Sigurjón Jónasson (Dúdda).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1258

Sjá mynd 1238. Sundmót í Sundlaug Sauðárkróks 1958. Tilg. 25m skriðsund telpna. Efst á verplaunapalli er Sigurbjörg Sigurpálsdóttir. T.v. (tilg.) Gunnþórunn Jónsdóttir. T.h. við verðlaunahafana eru Kári Steinsson, Steingrímur Felixson og Sigurjón Jónasson (Dúddi).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1259

Sjá mynd 1238. Sigurvegari í Grettissundi (500m frjáls aðferð), Þorbergur Jósefsson með Grettisbikarinn.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1261

Sjá myndir 1238 og 1247. F.v. Kristján Sigurpálsson og Þorbergur Jósefsson (með bikarinn).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1263

Sjá myndir 1238 og 1258. Sundmót í Sundlaug Sauðárkróks 1958. Steinunn Ingimundardóttir veitir viðurkenningu.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1275

Vígsla Sundlaugar Sauðárkróks árið 1957. Björgvin Bjarnason bæjarstjóri er í ræðustól. Í dyrunum (tilg.) Benedikt Waage forsti ÍSÍ. Þekkja má t.v. við dyrnar Sigurð Sigurðsson sýslumann (með gleraugu) og t.v. Guðjón Ingimundarson, Eirík Björnsson (bak við) , Valgarð Blöndal, (Sigurlaug Jónsdóttir), Guðrún Sveinsdóttir (kennslukona), María Pétursdóttir, Óþekkt, Soffía Jónsdóttir og Erla Brynjólfsdóttir (situr). Standandi t.h. Frá vinstri. Dóra Magnúsdóttir, Ingibjörg Kristjánsdóttir (Bogga), Ögmundur Svavarsson,
Sverrir Svavarsson og Kári Steinsson fjær.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1279

Vígsla Sundlaugar Sauðárkróks árið 1957. Sigurður Sigurðsson sýslumaður í ræðustól. Sjá mynd 1275.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1479

Sigurður Konráð Hauksson (1956-2013) með bikar. Ingimundur Ingimundarson í miðið. Aðrir óþekktir.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1480

Verðlaunaafhending í Sundlaug Sauðárkróks. Þorbergur Jósefsson afhendir (tilg.) Sigurlínu Hilmarsdóttur viðurkenningu.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1485

Sundmót í Sundlaug Sauðárkróks. Sigurbjörg Sigurpálsdóttir með bikar. Þorbergur Jósefsson glaðbeittur á miðri mynd.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1491

Sundmót í sundlaug Sauðárkróks. Tilg. Jóhann Friðriksson heldur á bikarnum og Ingimundur Ingimundarson t.h. (ca. um 1960).

Kristján C. Magnússon (1900-1973)

KCM1492

Verðlaunaafhending í Sundlaug Sauðárkróks. Á verðlaunapalli Efemía Gísladóttir og Ingimundur Ingimundarson í miðið (með gleraugu). Aðrir óþekktir.

Kristján C. Magnússon (1900-1973)