Showing 51704 results

Archival descriptions
Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (1947-)** English
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

28446 results with digital objects Show results with digital objects

Ljósmyndasafn Björns H. Björnssonar

Um 140 svart/hvítar ljósmyndir úr eigu Björns Haraldar Björnssonar, sem var bróðir Ólínu Ingibjargar Björnsdóttur. Myndirnar fylgdu bréfa- og ljósmyndasafni úr eigu Ólínar og Guðjóns Sigurðssonar. Safnið kom í litlu tréboxi (vindlaboxi) sem var grisjað úr, inni í því var umslag með ljósmyndum sem settar voru saman við hinar. Einnig voru litlar myndamöppur með myndum af helstu kennileitum Kaupmannahafnar og utan um þær eru umbúðir / umslög og á þeim er upphleypt konungsskjaldarmerki Danmerkur.

Ólína Ingibjörg Björnsdóttir og Guðjón Sigurðsson: skjalasafn

  • IS HSk N00492
  • Fonds
  • 1900-1995

Bréfa og ljósmyndasafn úr eigu Guðjóns Sigurðssonar bakara og Ólínu Ingibjörgu Björnsdóttur konu hans, safnið samanstendur af sendibréfum og erindum m.a til þáverandi sjávarútvegsráðherra Emils Jónssonar (1963). Í safninu eru auk þess 280 pappírskópíur og ljósmyndir, hluti af þeim er úr eigu Björns (Haraldar) Björnssonar, bróður Ólínu. Safn Björns var í litlu tréboxi (gömlu vindlaboxi). Þess má geta að í tréboxinu voru tvær litlar myndamöppur með ljósmyndum af helstu kennileitum Kaupmannahafnar. Ákveðið var að halda söfnunum aðskildum og skrá myndirnar og myndamöppurnar sérstaklega.
Þegar byrjað var að fara yfir myndinar komu í ljós nokkrar myndir sem eru úr eigu Björns Björnssonar sem var tengdasonur Ólínu og Guðjóns, nokkrar af myndunum eru merktar honum og hafa liklega verið birtar í Morgunblaðinu (Björn var lengi fréttaritari blaðsins).

Ólína Ingibjörg Björnsdóttir (1903-1980)

DVD diskar

Tveir dvd diskar í plasthulstri merktir "Ferð í Blöndu 1968" og "Júgóslavía".

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Ýmis pappírsskjöl 2000-2004

Í safninu er skjalaskrá Jóns Þorlákssonar og Ingibjargar Claessen Þorláksson sem afhent voru Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Göngukort í nágrenni við Hraunsvatn í Öxnadal límt við þakkarbréf frá Hrauni í Öxnadal ehf.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Vísnasafn

Vísur úr safni Árna og nokkrar sem hann samdi sjálfur, einnig er handskrifuð frásögn og á blaðinu er límdur miði - líklega athugasemd frá Árna sjálfum. Skjölin eru án dagsetningar og ártals nema tölvupóstsamskipti Árna við aðra hagyrðinga.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Víðilækur í Varmahlíð

Kaupsamingur og afsal vegna Víðilæks sem var sumarbústaður í eigu Árna og Maríu, einnig lítil skrifblokk með lista yfir innkaup vegna framkvæmda við bústaðinn. Eitt skjal með lista og útskýringum er varða val á skífu - ekki liggur fyrir hverju það tengist en skjalið var sett með kaupsamningsskjölunum.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Brugghús Skagafjarðar

Skjöl er varða tillögu að stofnun brugghúss á Sauðárkróki - kynning á verkefninu, fundarboð, stofnskrá og frumvarp til laga fyrir félagið, tilaga frá erlendum aðila með framleiðslutæki.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Pistlar og gamanmál 1955-2000

Skemmtivísur, annálar og endurminningar úr ferðum erlendis sem flutt var á skemmtunum Rótaryklúbbsins í gegnum tíðina. Flest skjölin eru án ártals.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Fjölskyldu ljósmyndir

Ljósmyndir frá fjölskyldu Árna og Maríu í Bandaríkjunum. Myndirnar voru í pastmöppu merktri Álfheiði Blöndal.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Ljósmyndir

Safn ljósmynda frá fjölskyldu Árna og Mæju, einnig myndir frá ferðakynningu Flugleiða sem haldin var á Hótel Mælifelli á Sauðárkróki um 1980-1985.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Erindi og bréf

Formleg erindi - Viðhorfskönnun frá Félagsráði Skagafjarðar - Bréf til búseturétthafa og íbúa að Sauðármýri 3 - Tillaga að byggingu, lýsing og tillöguteiknigar - Félagatal.

Fundagerðabók 1992-2002

Innbundin og handskrifuð bók með fundargerðum stjórnar byggingarnefndar félags eldri borgara í Skagafirði tímabilið 1992-2002. Í bókinni eru einnig rúðstrikuð blöð með samantekt frá því að ákvörðunartaka fyrir byggingunni er gerð og þar til byrjað er á framkvæmdum.

Byggingarnefnd Félags eldri borgara á Sauðárkróki

Gögn úr safni Árna Blöndals og Maríu Gísladóttur konu hans. Í þessu safni eru skjöl, teikningar, fundargerðir, ársreikningar, lög félagsins, formleg erindi vegna byggingarnefndar Félags eldri borgara á Sauðárkróki og varða byggingu sem félagið stóð fyrir að yrði reist að Sauðármýri 3, Sauðárkróki. Í skjölunum eru fundagerðir og samskipti við sveitarfélagið Skagafjörð um forsendur og annað er tengjast byggingarframkvæmdirnar. Árni var kosinn í byggingarnefnd félagsins árið 1998 og er þetta skjöl sem voru í hans varðveislu. Skjölin voru að mestu leyti í plastvösum og -möppu sem var fjarlægt, hefti voru einnig hreinsuð úr.

Árni Blöndal: skjalasafn

  • IS HSk N00489
  • Fonds
  • 1955-2014

Safn úr eigu Árna Blöndals og Maríu Gísladóttur konu hans. Einkaskjalasafnið var forflokkað af skjalamyndara áður en það var afhent, í því safni er talsvert af persónulegum gögnum, sendibréf, jólakort, DVD diskar auk ljósmynda frá fjölskyldum þeirra bæði á Íslandi og erlendis. Í safninu eru einnig skjöl sem tengjast félögum sem Árni starfaði og kom að í gegnum tíðina. Safnið var að miklu leyti flokkað og voru skjölin geymd í plastvösum sem voru í plastmöppu. Safnið var yfirfarið og sumt flokkað á ný og því skipt í tvennt, það sem tengist byggingu Sauðármýrar 3 á Sauðárkróki og einkaskjöl. Allt plast var grisjað úr safninu, einnig ljósrit af fundargerðum úr fundargerðabókinni, afrit af ljósmyndum sem teknar voru á stjórnarfundum húsfélagsins að Sauðármýri 3.
Hefti voru fjarlægð. Ljósmyndirnar voru settar í sýrufría plastvasa fyrir betri varðveislu, öll pappírsgögn voru sett í arkir. Safnið var í tveimur öskjum.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Skýrsla um skólabygginguna á Hólum

Innbundin skýrsla um ástand skólabyggingarinnar á Hólum, myndir og teikningar með hugmyndium af breyttri starfsemi fyrir bygginguna eru í skýrslunni. Aftast í skýrslunni eru breytingatillaga til frumvarps til fjárlaga frá Alþingi fyrir árið 1983 og Reglugerð um hrossaræktarbú að Hólum í Hjaltadal frá 1971.

Verkfræðistofa Guðmundar G. Þórarinssonar

Íslenskir sérhljóðar: i og y

Tvö blöð með lista yfir íslenskum sérhljóðunum i og y. Fremra blaðið er merkt "Jón H. Jónsson". Aftan á aftasta blaðinu eru þrjár vísur, höf. ókunnugur / -ir.

Hestamannafélagið Hreinn

Gjörðabók Hestamannafélagsins Hreins

Innbundin og handskrifuð bók. Í bókina eru skráðar fundagerðir, félagaskrá, reikningar og lög Hestamannafélagsins Hreins. Inni í bókinni voru tvö umslög með lógó Landsambandi Hestamannafélaga - bæði umslögin voru rifin, auk þess sem búið var að rífa og klippa úr frímerkin.Í öðru umslaginu var óútfyllt ársskýrsla frá Landsambandi hestamannafélaga frá árinu 1975 í tveimur eintökum og fundarboð á 27. ársþing LH 1976. Í hinu umslaginu voru tvö blöð; fundarboð á 26. ársþings LH árið 1975 og dagskrá fundarins. Einnig var bréf og listi með nöfnum námsmeyja í húsmæðraskólanum að Varmalandi og blöð með lista yfir sérhljóðana i og y.

Hestamannafélagið Hreinn

Ástundunarbók

Innbundin bók með rúðustrikuðum blaðsíðum. Í bókina eru skráðar mætingar hólasveina í námstíma veturinn 1961-1962.

Bændaskólinn á Hólum í Hjaltadal

Hólar í Hjaltadal: skjalasafn

Safn sem Jón Bjarnason fyrrverandi skólastjóri Bændaskólans á Hólum afhenti 2015. Safnið samanstendur af skjölum er tengjast Skógræktarfélagi Skagfirðinga og fundagerðabækur sem tengjast félagslífi nemenda Bændaskólans á Hólum. Þetta eru fundagerðabækur frá Hestamannafélaginu Hrein, málfundafélagi Hólasveina, málfundafélagi Hólaskóla, Íþróttafélagi Hólaskóla og ein bók sem kallast Ástundunarbók. Í safninu var einnig skýrsla frá 1977 um ástand skólabyggingarinnar og dagskrá Hólahátíðar frá árinu 1997.
Í fundagerðabók hestamannafélagsins Hreins voru tvö umslög, í þeim voru skýrslur og fundarboð frá Landsambandi Hestamannafélaga og bréf frá námsmeyjum í húsmæðraskólanum á Varmalandi í Borgarfirði. Umslögin voru grisjuð úr safninu og erindin sett í arkir. Að öðru leyti var safnið látið haldast óbreytt.

Bændaskólinn á Hólum í Hjaltadal

Dagbók 1992

Í bókinni eru dagbókarfærslur um verkefni sem unnin voru unnin í skógræktinni á Hólum sumarið 1992. Einnig yfirlit yfir launaútreikning og sundurliðun á staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna. Ýmsar athugasemdir eru færðar í bókina.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Dagbók 1991

Í bókina eru færðar fjöldi vinnustunda og verkefni starfsmanna skógræktarfélagsins. Í bókinni er einnig lausar blaðsíður með upptalningu á plöntuðum trjáplöntum á tímabilinu 1990-1993 - auk annara slíkra upplýsinga. Ljósrit og fax með launataxta fyrir unglinga frá fjármálaráðuneytinu.
Mikið af lausum blaðsíðum er í bókinni - ekki er vitað með vissu hvort blöðin eru úr þessari bók.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Dagbók 1989

Gormastílabók með handskrifuðum dagbókarfærslum fyrir skógræktina á Hólum í Hjaltadal. 1989

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Dagbækur

Þrjár gormastílabækur í A4 stærð. Í þær eru skráðar verkskipulag og skráning á vinnustundum starfsmanna auk annara upplýsinga er varða skógræktina á Hólum.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Teikningar fyrir skipulag trjáræktar 1990

Skjölin voru upprúlluð þegar farið var að vinna við að flokka og greina safnið. Í safninu voru nokkur eintök af sama eintakinu, það var grisjað og eitt eintak af hvoru var haldið eftir og reynt að laga til og sett í örk.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Results 1 to 85 of 51704