Frá setningu Landsmóts hestamanna á Vindheimamelum árið 2002. Fremst t.h. Anna Sif Ingimarsdóttir. Aftan við hana heiðursgestir mótsins. F.v. Ólafur Ragnar Grímsson (1943-) forseti Íslands, Anna Bretaprinsessa og Jón Albert Sigurbjörnsson formaður LH.
Hestamót Hestamannafélagsins Svaða á Hofgerðisvelli 1992. A-flokkur gæðinga. F.h. Trix frá Gröf og Þórir Níels Jónsson (1966-2011) frá Óslandi, Kóróna frá Sigríðarstöðum og Egill Þórarinsson (1960-), Flosi frá Brekkukoti og Sigurbjörn Þorleifsson (1944-2011) Langhúsum, Gríma frá Sigríðarstöðum og Þórarinn Arnarson (1973-), og Ljúfur frá Gerðum og Gísli S. Hallldórsson. Jón Guðmundsson (1931-) frá Ósland (t.h). og Símon Ingi Gestsson (1944-2018) frá Barði afhenda Þóri og Trix verðlaun en þeir sigruðu.
Ískappreiðar á Hópsvatni síðla vetrar 1988. F.v. Sigurður Pálmi Rögnvaldsson (1949) á Óðni, Sigurbjörn Þorleifsson á Glanna (1944-2011) og Símon Gestsson (1944-2018) á Steinku hampar bikarnum.
Heiðursgestir á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum sumarið 2002 ásamt Eysteini Leifssyni (annar f.h.).F.v. Dorrit Moussaieff, Ólafur Ragnar Grímsson (1943-) forseti, Anna Bretaprinsessa, Eysteinn, og Jón Albert Sigurbjörnsson formaður LH.
Pétur Helgason hótelstjóri á Sauðárkróki ræsir keppendur á kappreiðum við Sauðárkrók. Myndin er tekin á Fluguskeiði - sem var skeiðvöllur Sauðkrækinga um hríð.
Tilg. Hestamót á Eyrinni. Hesturinn er Sokki frá Vallholti. Sigurður Óskarsson heldur í hestinn. Skafta Óskarsson ber yfir öxlina á Sigurði (með sólgleraugu).
Hestamannamót á Fluguskeiði (skeiðvelli Léttfeta). Hópreið. Framan frá Sveinn Guðmundsson á Árna-Blesa (fánaberi), Ívar Antonsson, óþekktur á bak við Ívar, Guttormur Óskarsson, Björn Björnsson, Óþekktur, Magnús Jónasson (Daddi) Guðjón Einarsson og Einar Sigtryggsson (1955-1960).
Hestamannamót á Fluguskeiði, þáverandi velli hestamannafélagsins Léttfeta á Gránumóum. Fánaberi Sveinn Guðmundsson á Árna-Blesa. Myndin er tekin ca. 1950-1960.
Hestamannamót á Fluguskeiði (þáverandi velli hestamannafélagsins Léttfeta á Gránumóum). Lengst t.v. er Jón Jónsson, Hofi hugsanlega á Sval og annar f.h. Sveinn Guðmundsson á Árna-Blesa (ca. 1950-1960). Aðrir óþekktir.
Verðlaunaafhending á kappreiðum, sennilega í skeiði. Til vinstri á blesótta hestinum er Jón Pétur Ólafsson. Lengst t.v. gæti verið Pétur Jökull Hákonarson. Aðrir óþekktir.
Hestamannamót á Fluguskeiði, (ca. um 1955) en sá völlur var staðsettur á Gránumóum. Tilg. Björn Björnsson á fremri hestinum og Sigrún M. Jónsdóttir (Lóa) á þeim aftari (sennilega Glóa).