Greinargerðin er rituð á pappírsörk í folio stærð, alls þrjár skrifaðar síður. Svo virðist sem það séu tilkvaddir tryggingamenn sem rita hana. Greinargerðin er rituð á dönsku.
Metúsalem er að segja mági sínum, Jóni Jónssyni frá Hóli, frá því sem á daga hans drífur. Meðal þess er núningur við tengdafjölskyldu á Bakka, skipsstrand við Finnafjörð, rán á góssi og búskapurinn á Bakka.
Emanuel, Norskt seglskip, Emanuel, strandaði í sunnan fárviðri á Sauðárkóki og rak upp sunnanvert við Gönguskarðsárnes. Mannbjörg varð. Til þessa skipsstrands varð rekinn rottugangur í Skagafiði. Hann magnaðist skjótt og gerði mikinn ursla, ekki hvað síst úti í sveitum, svo sem á Reykjaströnd, þar sem rottur grófu sér göng og ranghala inn í torfveggi bæjarhúsa að vetrarlagi og stórskemmdu þá. Jafnvel timburhúsum á Sauðárkróki var hætta búin. Þóttust sumir sjá rottur ganga "í prósessíu" um aðalstíg þorpsins.