Bréf frá Janis Johnson til Guðlaugar. Skrifað á ensku. Dagsetning 22.september en ártal er ekki skýrt, mögulega 2002. Bréfsefni er merkt "The Senate of Canada" og Hon. Janis Johnson, Ottawa, (613) 943-1430 í rauðu letri. Með fylgir ljósrituð mynd af Þóru Jónsdóttir. Á myndinni er skrifað á ensku fædd í september 1860 á Hólum og dó 1882 á Sauðárkróki.
Þórir Arngrímsson bróðir Guðlaugar batt inn bækur. Hér hefur hann steypt saman annarsvegar Alþingisrímur (1899-1901) sem Valdimar Ásmundsson gaf út og hinsvegar Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi eftir Edward Knutzen, Theodór Árnason íslenskaði.
Alþingisrímur (1899-1901). Prentað í Ísafoldarverksmiðju, Reykjavík 1902. Þetta eru 14 rímur á 98 blaðsíðum. Kross og Hamar - Fornaldarmynd frá Noregi er 55 blaðsíður.Prentsmiðjan Gutenberg.
Skrifað er á fremstu blaðsíðu: Búfjárfræði. Kend af Birni Símonarsyni. Veturinn 1943-1944. Rituð upp af Þóri A. Arngrímssyni frá Litlu-Gröf Skagafirði.
Reikningsbók eftir Eirík Briem. Annar partur. Þriðja prentun. Reykjavík. Prentsmiðja Ísafoldar. 1900. 48 tölusettar blaðsíður. Á fremstu blaðsíðu er skrifað nafnið Jón Sigurðsson. Kennslubók í reikning
Viðskiptabækur hjá innlánsdeild Kaupfélags Skagfirðinga Sauðárkróks. Önnur þeirra er merkt Skarphéðni G Þórissyni og hin Arnþóri Blöndal. Þeir voru á Litlu-Gröf á sumrin.
Magnús Blöndal faðir Arnþórs hafði alist upp á Litlu-Gröf með Gullu og Þóri.
Arðskrá Veiðifélags Skagafjarðar, Húseyjarkvíslardeild. Bréf skrifað af Arngrími Sigurðssyni til Veiðimálastjórnar í Reykjavík. Dagsetning á bréfi er 03.03.1963.
Skagfirzka Söngsveitin. Samsöngur í Miðgarði föstudaginn 2. júlí 1971 kl 08.30 Söngstjóri Snæbjörg Snæbjarnardóttir Einsöngvarar: Guðrún Snæbjarnardóttir og Friðbjörn G. Jónsson Við hljóðfærið: Sigríður Auðuns.
Bréf til Sigríðar Benediktsdóttur. Það er skrifað á Akureyri 03.09.1920. Bréfið er undirritað á tvenna vegu. Annarsvegar F.B Arngrímsson og hinsvegar F.B.A Þetta gæti mögulega Frímann B. Arngrímsson.
1x skýrsla miðstjórnar Framsóknarflokksins , mars 1934. 1x tillögur til breytinga á lögum Framsóknarflokksins samþ. á aðalfundi miðstjórnarinnar - 10.feb., 1945. 1x bréf merkt "trúnaðarmál" - 20. febrúar 1945. 1x lög Framsóknarflokksins- 15. marz 1941. 1 x Bréf frá miðstjórn Framsóknarflokksins. - 20. apríl 1945.
Ingibjörg Jakobsdóttir fædd 31. apríl 1887, látin 21. mars 1916. Samkvæmt íslendingabók var hún á Hreðarvatni, Hvammssókn, Mýr. 1890. Tökustúlka á Akureyri, Eyj. 1901. Var á Akureyri 1910.
Á kápunni á stílabókinni stendur brunabótasjóður og innan í bók er að finna iðgjöld ýmissa bæja. Í bókinni er einnig að finna mál ótengd brunaiðgjöldum. Útreikningar á Graskögglum, kálfamjólk, júgurfeiti og fleira sem tengist búskap.
Söngtexti eftir "Húnverskan bónda" við lagið Fanna skautar faldi háum. Prentsmiðjan Acta. Skrifað með penna efst á blað Arngr. Sigurðsson. Aftan á blað er búið að skrifa með penna nöfn og tölur.
Nýtt og gamalt v. Bænir á hátíðum og alvörustundum. Gutenberg 1919. Sigurbjörn Á. Gíslason. 29 tölusettar blaðsíður. Prentað með styrk úr smáritasjóða síra Jóns lærða frá Möðrufelli. Sjerprentun úr Bjarma 1918 og 1919. Tímaritið Bjarmi hefur verið gefið út frá árinu 1907.
1 handskrifað bréf frá Elsu. Nafn viðtakanda ekki skrifað á bréfið. Við afhendingu á bréfinu var miði innan í því. Hann fylgir hér með. Miðinn er til Guðlaugar.
Póstkort frá ættingjum í Norður Ameríku. Mörg þeirra send innan Bandaríkjana. Mörg kort stíluð á Thoru B. Gardiner (Þóra Benediktsdóttir) sem er móðursystir Guðlaugar.
Ný matreiðslubók. Fyrir fátæka og ríka. Eftir Jóninnu Sigurðardóttur. Með heilsufræðislegum inngangi eftir Steingrím Matthíasson héraðslækni. Prentsmiðja Björns Jónssonar. Akureyri.
Inni í bók voru blaðasneplar, með uppskriftum og úrklippa úr dagblaði.
Afsal Arngríms Sigurðssonar til Þóris og Guðlaugar. Með þessu bréfi afsalar hann til Þóris 1/3 hluta úr eignarjörð Litlu-Gröf í Staðarhreppi og 1/3 hluta úr eignarjörðinni Litlu-Gröf í Staðarhreppi til Guðlaugar. Undir skjalið skrifa tveir vottar og sýslumaðurinn sem er Stefán Sigurðsson.
Kemur ekki fram nafn móttakanda. Þetta er fjölskylduskrá yfir afkomendur Eiríks Pálssonar(Þorsteinssonar) frá Pottagerði í Skagafirði. Ekkert ártal á bréfi.
Skírteini um hæfnismat frá Félaginu Svæðameðferð. Á því stendur: Guðlaug Arngrímsdóttir tók þátt í námskeiðum í svæðameðferð I og II og hefur staðist hæfismat. Reykjavík 4. nóv. 1982. Undir skírteinið ritar Kristján formaður og Margrét Frederiksen ritari.
Hjónavígslubréf Arngríms Sigurðssonar og Sigríðar Benediktsdóttur. Gefið út í umboði Kristjáni 10. Innsigli í bréfi hefur fests með tímanum á blaðsíðunni á móti.
Fram kemur á blaði staðsetning á vatnsbóli og húsum á jörðinni Litlu-Gröf. Byggingarefni og vegalengd frá Sauðárkróki og Varmahlíð. Vegalengd frá vatnsbóli og fleira.
4 teiknaðar myndir. Teikning 1: Mynd af blómum í blómavasa Teikning 2: Mynd af hesti. Teikning 3: Mynd af blómi. Teikning 4: Mynd af hesti og tveimur hundum.
Teikningar eru pakkaðar í sér öskju/umbúðir vegna stærðar. Merkt H-24