Talið frá vinstri: Þórarinn Jónasson bóndi Hróarsdal- Hróbjartur Jónasson bóndi Hamri- Vilhelm Snorri Jónasson verslunarmaður í Winnipeg og Snorri Jónasson bóndi og smiður í Hróarsdal- síðar búsettur á Akureyri. Myndin er tekin á Hamri í Hegranesi.
Við mjólkursamlag Kaupfélags Skagfirðinga, nýreist við Aðalgötu c.a. 1934-1935. frá vinstri: Þórður Blöndal, Ásta Jónsdóttir, Kristján C. Magnússon, Guðmundur Sveinsson, Skafti Óskarsson, Hróbjartur Jónasson, sr. Sigfús Jónsson, óþekktur, Jón Sigfússon, Pétur Jónsson og Gísli Þorsteinsson
Uppdráttur, teikning af byrgi Jóns Ósmanns sem stóð við klett á Furðuströnd. Grunnur, vesturgafl og suðurhlið. Einnig er sýnt bjargið sem dragferjan var bundin við.