Pappírsgögn með handskrifuðum fundargerðum sem skrifaðar eru á tímabilinu 14.12.1989 - 18.12.1990. Gögn þessi virðast tengjast að einhverju leyti fundargerðum stjórnar knattspyrnudeildarinnar sem skrifaðar eru í fundagerðabók dags. 18.12.1989 - 28.8.1990 (sjá í C lið). Á sumum blöðunum eru einungis skrifað dagskrá fundarins, á önnur eru líka skrifuð fundagerðir, blöðin dagsett og með ártali. Skriftir eru vel læsilegar.
Tvær ljósmyndir/pappírskópíur sem hafa varðveist mjög vel, önnur er svart hvít og er tekin á tímabilinu 1965-1970 af körfuboltaliði karla, hin ljósmyndin er í lit og er tekin um 1988-1990 af stúlknaliði Tindastóls.
Innbundnar og handskrifaðar bókhaldsbækur. Bækurnar eru allar í góðu ásigkomulagi og hafa varðveist ágætlega. Pappírsgögnin eru vélritaðar skýrslur með efnahagsreikningi U.M.F.T. fyrir árin 1961-1964.
Innbundnar og handskrifaðar bækur, fundagerðabók, dagbók og lítið notuð bókhaldsbók. Í safninu er einnig vélrituð og handskrifuð pappírsgögn, reikningur og bókhaldskvittanir. Einnig var á meðal skjalanna og bókanna persónuleg gögn úr db. Egils Helgasonar. Safnið er alt vel læsilegt og ágætlega varðveitt og margt áhugavert sem hægt er að lesa í fundagerðum félagsins og í dagbókinni.
Sjö harðspjalda handskrifaðar fundabækur í misgóðu ástandi en allar nema ein eru með límmiða á kili. Stofnun félagsins og starfsemi er rituð hér og gaman að lesa.
Fjórðungsmót á Sauðárkróki 1959. Talið frá v. Hrafnhildur 2836 frá Akureyri, knapi, Þorvaldur Pétursson, Akureyri. Fjöður 2827 frá Sauðárkróki, knapi, Sveinn Guðmundsson, Sauðárkróki og þriðja Drottning 2271 frá Víðimýrarseli, Skag. Knapi, Ottó Þorvaldsson, Viðvík.
Fjórðungsmót á Sauðárkróki 1959. Haukur frá Áshildarholti efstur alhliða gæðinga. knapi, Björn Jónsson frá Mýrarlóni tekur við verðlaunum. Pálína á Skarðsá stendur fyrir framan Hauk.
Sigurbjörn Sigurpálsson "Bubbi" frá Ingveldarstöðum, Reykjaströnd ásamt reiðhesti sínum. Litla stúlkan er Sólbrún Friðriksdóttir (1941-). Sólbrún er dóttir Friðriks Friðrikssonar (1910-2008) og Laugu. Sigurbjörn Sigurpálsson 15. janúar 1917 - 18. mars 2008 Var á Ingveldarstöðum, syðri bær, Sauðárkrókssókn, Skag. 1930. Fósturmóðir: Anna S. Sigurðardóttir. Sjómaður á Sauðárkróki, síðar verkstjóri í Reykjavík.
Fyrir utan Sauðárkrókskirkju. Frá vinstri Einar Sigtryggsson, Margeir Sveinn Hallgrímsson Valberg, Ottó Geir Þorvaldsson, Kristján Skagfjörð Jónsson, Jósafat Sigurðsson, Erlendur Hansen, Ingólfur Agnarsson. Skákmenn, mynd tekin við Sauðárkrókskirkju.
Mynd tekin á Sauðárkróki, Sauðáin rennur neðan við Sauðárhæðir. Í baksýn má sjá Esso sjoppurnar, eldri sjoppan nær og nýja fjær. Reiðskóli Ingimars Pálssonar