Í Bifröst, frá vinstri; Ari Björn Sigurðsson (1973-), Pétur Örn Erlingsson (1975-), Garðar (sonur Heru í bankanum), Atli Björn Þorbjörnsson (1976 -), Ellert Jóhannsson (1973-) og Sigurlaug Gunnarsdóttir (1974-).
Á þorrablóti í Miðgarði 1998. Borð Álftagerðis. F.v. María Pétursdóttir (1968-), Elísabet Petrea Ögmundsdóttir (1948-), Herdís Pétursdóttir (1948-) og Ólöf Arna Pétursdóttir (1973-).
Drangeyjarsund. Mynd tekin í fjörunni í Drangey 15. ágúst 1994. Frá vinstri, Jón Eiríksson (1929-) "Drangeyjarjarl" ásamt þrem Drangeyjarsundsköppum, þeim Eyjólfi Jónssyni, Axel Kvaran og Pétri Eiríkssyni.
Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup messaði í Drangey í ágúst árið 2000. Honum til aðstoðar var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir. Um hundrað manns hlýddu á biskup í blíðskaparveðri.
Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup messaði í Drangey í ágúst árið 2000. Honum til aðstoðar var var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir. Um hundrað manns hlýddu á biskup í blíðskaparveðri.
Messað í Drangey í ágúst árið 2000. Karl Sigurbjörnsson biskup messaði og var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir honum til aðstoðar. Um hundrað manns voru viðstödd athöfnina í blíðskaparveðri. Jón Eiríksson "Drangeyjarjarl" fremstur fyrir miðju.
Messað í Drangey í ágúst árið 2000. Karl Sigurbjörnsson (1947-) biskup Íslands messaði og var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir honum til aðstoðar. Um hundrað manns voru við athöfnina í blískaparveðri.
Gengið niður í Staðarbjargarvík við Hofsós. Þekkja má Jón Guðmundsson hreppstjóra Hofshrepps neðst í tröppunum, Aðalheiður Ormsdóttir þriðja, þá Halldór Þ. Jónsson sýslumann. Efst í tröppunum í ljósum frakka er Þorsteinn Ásgrímsson og Magnús H. Sigurjónsson á brúninni í ljósum frakka.
Drangey. Ljósmyndari Feykis var þarna á ferð í ágúst árið 2000 en þá messaði hr. Karl Sigurbjörnsson biskup í eynni í blíðskaparveðri fyrir um hundrað manns.
Mynd tekin í fjörunni í Drangey í ágúst 1994. Frá vinstri, Jón Eiríksson (1929-) "Drangeyjarjarl" og svo þrír Drangeyjarsundkappar, þeir Eyjólfur Jónsson, synti 1957 og 1959, Axel Kvaran synti 1939 og Pétur Eiríksson sem synti 1936.
Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup messaði í Drangey í ágúst árið 2000. Honum til aðstoðar var séra Guðbjörg Jóhannesdóttir. Um hundrað manns voru við athöfnina í blíðskaparveðri. "Drangeyjarjarlinn" Jón Eiríksson er neðst í vinstra horni myndarinnar.
Drangey. Ljósmyndari Feykis var þarna á ferð í ágúst 1994. Í bátnum t.v. er Jón Eiríksson "Drangeyjarjarl" og Pétur Eiríksson en hann þreytti Drangeyjarsund árið1936.
Fermingarfræðsla á Löngumýri árgangur 1975. Nemendur frá Varmahlíð og Blönduósi. Fullorðnu mennirnir eru t.v. sr. Ólafur Hallgrímsson á Mælifelli og t.h. sr. Árni Sigurðsson á Blönduósi.
Kaffistofa ? T.v. Svanhildur Elsa Jónsdóttir og önnur f.h. er Engilráð Margrét Sigurðardóttir (1941-) og lengst t.h. er Inga Lovísa Andreassen (1952-). (talkennari).
Krakkar á Sauðárkróki í Friðarhlaupi sem fór kringum landið sumarið 1987. F.v. Tveir óþekktir, Rúnar Arnarson (1974-), Ingi Freyr Ágústson (1975-), Ögmundur Arnarsson (1973-), Ómar Sigmarsson (1976-), óþekktur, Smári Björnsson (1975-) og lengst t.h. Atli Björn Þorbjörnsson (1976-).
Galdrakarlinn í Oz sem settur var upp af Leikfélagi Sauðárkróks 1984, var síðan tekin upp fyrir sjónvarpið í janúar 1985. Kvikmyndatökumaður (ónafngreindur), Hávar Sigurjónsson (1958-) leikstjóri og Valdimar Leifsson, stjórnandi upptöku.
Sex 40 ára búfræðingar frá Bændaskólanum á Hólum frá árinu 1945, voru viðstaddir skólaslit skólans vorið 1985. Frá vinstri, Rögnvaldur Gíslason Sauðárkróki, Frosti Gíslason Frostastöðum (bak við), Jón Samúelsson, Steinn Snorrason frá Bægisá, Sigurður Jónsson á Efstalandi í Öxnadal og Pétur Steindórsson á Krossastöðum í Glæsibæjarhreppi.
Lionsklúbbarnir á Sauðárkróki stóðu fyrir samkeppni meðal grunnskólanema um gerð friðarveggspjalds vorið 1990. F.v. Páll Pálsson (1946-), formaður Lionsklúbbs Sauðárkróks ásamt verðlaunahöfum þeim, Björgvin Benediktssyni (1977-), Ingibjörgu Stefánsdóttur (1976-) og Helenu Magnúsdóttur (1976-).
Tilgáta. Frá 50 ára vígsluafmæli Siglufjarðarkirkju í lok ágúst 1982, en þá var jafnframt tekið í notkun safnaðarheimili á kirkjuloftinu, en áður hafði loftið verið notað til kennslu. Pétur Sigurgeirsson biskup er lengst t.v. og Auður Auðuns ráðherra við hlið hans.
Sýningin "Konur á Króknum" sem fimm kvennasamtök settu upp í Barnaskólanum vorið 1997 en þar var sýnd vinnuaðstaða húsmæðra áður fyrr. Börnin eru Halldór Örn Kristjánsson (1991-) og Björg Árdís Kristjánsdóttir (1987-).