Málverk af litlum húsum sem standa handan við fljót/fjörð með litla eyju - óvíst hvar. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.
Ókláruð landslagsmynd þar sem vegur liggur í gegnum það sem virðist vera nokkuð flatt og vel gróið landslag - óvíst hvar. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1990-2000.
Ókláruð landslagsmynd - óvíst hvar. Grjót og girðing virðist vera í forgrunni en dökkblá fjöll í bakgrunni. Himininn er grænblár og ljósappelsínugulur. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1980-1990.
Málverk af bíl keyra niður götu í Reykjavíkurborg - mögulega Bankastræti. Í bakgrunni má sjá það sem virðist vera Landakotskirkja. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1955-1965.
Ókláruð landslagsmynd af því sem virðist vera klettar - óvíst hvar. Í forgrunni má sjá manneskju á gangi en í bakgrunni er stórt fjall. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1990-2000.
Málverk af nokkrum húsum við sjávarsíðuna - handan við fjörðin má sjá fjöll. Staðsetning ókunn - mögulega Sauðárkrókur. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1945-1955.
Óklárað málverk af götu - líklega í Þingholtunum í Reykjavík. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin er því allvega fyrir þann tíma - þó líklega 1945-1955.
Landslagsmynd þar sem virðist vera flatlendi í forgrunni en fjall í bakgrunni - óvíst hvar. Þar sem smá sót er á myndinni er líklega frá því fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin er því allvega fyrir þann tíma - þó líklega 1945-1955.
Hauganesfundur 1. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir. "Hauganes liggur að eyrum Djúpadalsár í Blönduhlíð. Í Hauganesbardaga féllu 110 manns. ... Í þessari orrustu var veginn brandur sonur Staðar-Kolbeins, sem fór fyrir liði Skagfirðinga. Hann komst sjálfur undan á hesti, en náðist niðri á grundunum og var tekinn af lífi. Reistur var róðukross þar sem hann féll og vvar grundin kölluð Róðugrund. Kolbeini kaldaljósi, föður Brands, varð mikið um atburðina og dó nokkurm mánuðum seinna." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 32).
Aðför að Oddi þórarinssyni. Hluti af myndaseríu: Sturlungaöld. 11 myndir. "Aðförin að Oddi Þórarinssyni í Geldingarholti. Sá atburður gerðist 13. janúar 1255. Gissur var í Noregi og hafði beðið Odd að stjórna liði sínu og hafa með mannaforráð að gera þar til hann kæmi aftur. Oddur rændi því sem hann vildi af andstæðingum Gissurar og stefndi til hefnda við Eyjólf ofsa, þann er brenndi Flugumýri. Er skemmst frá að segja að menn Eyjólfs komust í Geldingarholt án þess að njósn bærist og var Oddur drepinn úti á túni, þar sem hann varðist einn lengi vel, uns maður skreið aftan að honum og hélt fótum hans." (Á Sturlungaslóð í Skagafirði, Sauðárkróki, 2003. Bls. 40).
Skissa af manni ríðandi á hesti sem er með stjörnu á enninu. Í skýjunum má greina mann á hestbaki. Myndin hefur sennilega verið skissuð fyrir kvæði Hannesar Péturssonar - eins og fleiri samskonar myndir. Þá hefur það sennilega annað hvort verið fyrir Kvæðabók Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1955 og Stund og staðir sem komu út árið 1962 - sú bók var ekki myndskreytt en óvíst er með Kvæðabókina. Myndin er gæti því verið frá 1955-1962.
Skissa fyrir bókakápu á Kvæðasafni Hannesar Péturssonar - sem kom út árið 1977. Skissan virðist vera af fjöru. Myndin er líklega frá því um eða fyrir 1977.
Skissa fyrir bókakápu á Kvæðasafni Hannesar Péturssonar - sem kom út árið 1977. Skissan er af fjöru og er mjög lík þeirri mynd sem endaði á kápu bókarinnar - nema sú var teiknuð með Olíupastel. Myndin er líklega frá því um eða fyrir 1977.