Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar greiðslur fyrir fæði vegna Snorra, sonar Sigurðar. Með liggur reikningur frá Einhildi til Sigurðar.
Framan af ávarpar sögumaður lesandann og leggur honum lífsreglurnar en undir lokin beinir hann athyglinni að spekingnum Sölva og hans miklu afrekum. En hann fullyrðir að lykill allrar þekkingar sé fundinn af sjálfum Sólon spekingi.
Titill: Dagpóstur Sölvi er að morgni í febrúar sendur aftur að stað um allt Austurland af höfðingjunum á Norðurlandi, erfitt er að átta sig á hvert tilefnið er en á þeim síðum sem hér eru saman er Sölvi víða um land og þarf tilneyddur að bera eða draga á eftir sér þungar birgðir sem hann er tilneyddur til að . Sögumaður ávarpar Sölva sjálfan og mest er fjallað um yfirnáttúruleg afköst Sölva sem er greinilega enginn venjulegur maður. Hann getur að sögn sögumanns slegið 2000 dagslætti á meðan venjulegur húskall ræður ekki lengur við að slá nema sem nemur 3 dagsláttum á viku. Þetta gerir hann allt með hjálp drottins. Forsendurnar eru þær að Sölvi skilur lífið ljósið og náttúruna, hann þekkir öflin og hefur tekið þau í sína þjónustu. Lýsingar sem þessar eru algengar í textum Sölva og varpar ekki síst ljósi á heimssýn Sölva sem er mjög í anda þess sem einkenndi rómantíkina í upphafi, þar sem litið var á náttúruna sem eina heild og manninn sem hluta af henni.
Á þessari síðu er Sölvi augljóslega að bregðast við ákærum Sigfúsar Skúlasonar sýslumanns í Eyjafirði um bókaþjófnað. Sölvi lýsir því hvernig hann ýmist kaupir, selur eða gefur bækur á ferðalögum sínum. Hann nafngreinir menn sem hann hefur keypt af bækur, t.d. segist hann hafa keypt bækur af Jóni Bónda á Haukagili í Vatnsdal. Nokkuð af þeim bókum segir Sölvi að hafi verið óseldar þegar haldið var austur og þar hafi hann ýmist selt þær eða gefið. Hann rifjar jafnframt upp ákærur Daníels Jónssonar á hendur sér fyrir bókaþjófnað og minnist á Eggert Briem sem dæmdi í því máli. Hann furðar sig á að Sigfús hafi getað án nokkra sannana gert upptækar þær bækur sem hann þóttist eiga. Sölvi gerir sjálfur grein fyrir að minnsta kosti hluta þessara bóka og nefnir m.a. að hann hafi fengið Mynstershugleiðingar hjá Ólafi bókbindara á Ystu-Grund í Skagafirði (Ólafur Guðmundsson 1808-1853).
Á þessari síðu ávarpar sögumaður Sölva og hughreystir hann með því að réttlætinu verði fullnægt hinum megin grafar. Þar verði þeim refsað sem hafi gert á hlut hans en hann njóti ávaxtana af dyggðugu lífi sínu á jörðinni.
Fjölritaður bæklingur, alls 6 bls. í A5 broti. Á titilsíðu stendur þetta: Lög um félagsheimili og frumdrög að reglum um félagsheimili. Sérprent úr "Félagsheimili."
Bréfið er vélritað á bréfsefni Varmahlíðarskóla. Það er undirritað af framkævmdanefnd og oddvitum Akrahrepps og Seyluhrepps. Bréfið er ein vélrituð bls og með liggur afrit af vinnusamningi, afrit af bréfi til Menntamálaráðuneytis og útdráttur úr fundargerðum bygginarnefndar. Öll eru þessi skjöl frá árinu 1979.
Fundargerðin er vélrituð á 3 pappírsarkir í A4 stærð. Fundur um læknamiðstöð á Sauðárkróki. Auk nenfdarmanna sátu fundinn oddvitar í læknishéraðinu og sýslumaður.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 broti, alls tværi skrifaðar síður. Það er undirritað af Hermanni Þorsteinssyni á Reykjarhóli og Páli Árnasyni á Ysta-Mói. Bréfið varðar ósk um endurgreiðslu á láni fyrrum Holtshrepps til sýslusjóðs vegna brúargerðar yfir Fljótaá.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það er stílað á sýslumanninn í Eyjafjarðarsýslu og varðar kostnað við endurbætur á sjúkrahúsi Akureyrar.
Samningur er varðar greiðslur samlagsins fyrir þjónustu af hálfu Sjúkrahúss Siglufjarðar. Frumrit ásamt afriti, hvort um sig 2 pappírsarkir í folio stærð.
Kortið sýnir suðvesturhluta Íslands. Það er gefið út af Geodetic Institute. Brotið í 21 hluta og efsti hlutinn hægra megin hefur rifnað frá og glatast.
Handritið er 44 vélritaðar síður. Búið er að handskrifa ýmsar athugasemdir inn í það. Síðurnar eru nokkuð slitnar og blettóttar. Enginn titill er á handritinu en um er að ræða einhvers konar kennslubók í líffræði.
Blaðið er í A4 broti og er 112 síður, auk kápu. Undirtitill þess er "Ræður og kvæði eftir J. Krishnamurti." 1. árgangur. Gefinn út af Stjörnufjelaginu.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar fróðleik um Grænlenska jólasveininn. Með liggur upplýsingablað á grænlensku og dönsku, ásamt faðir vor á dönsku.
Fundagerðin er rituð á pappírsörk í folio broti. Á fundinum voru lögð drög að stofnun félagsins og stofnuð þriggja manna nefnd. Með liggja drög að bréfi til formanns héraðsfundar í Skagafjarðarsýslu.
2 afrit af sama bréfi, annað handskrifað og afrit gert með kalkiappir, alls 4 bls. Hitt vélritað á 2 pappírsarkir í A4 stærð. Bréfið varðar leiðarval við vegagerð um Vallhólma.
Bókin er 58 bls í A4 broti, hún er kjallímd og með litprentaðri kápu. Á titilsíðu stendur: "The flying wolf. Written by S.G. Skulason. Art by Irvin "shorty" Shope & William Standing." Bókin er árituð, merkt Jóni og undirritunin er "Mom."
Listinn er handskrifaður á 3 pappírsarkir í A4 stærð. Listinn nær yfir nemendur Barnaskóla Akrahrepps og Varmahlíðarskóla í skólaakstri skólaárið 1976-1977.
Tvö eintök af landakorti. Uppdráttur Íslands , blað 64, Vatnahjallavegur. Neðst í vinstra horni stendur: "Uppdráttur Íslands smækkaður niður í 1:200 000. Sýslumörk og landamerki samkævmt skoðun eigenda Ábæjar og Nýjabæjar í Skagafirði. Reykjavík 3. maí 1966 Zophonías Pálsson verkefr F.V.Í."
4 handskrifaðar pappírsarkir í A4 stærð. Virðist uppkast að bréfi, afrit gert með kalkipappír. Varðar landmerkjamál Upprekstrarfélags Saurbæjarhrepps. Undirritað af Jóhann L. Jóhannessyni, Silfrastöðum.