Sigurður Egilsson ræðir við Guðmund Eiríksson frá Breiðagerði.
Rætt um uppvöxt Guðmundar í Sölvanesi, búskaparhætti, m.a. fráfærur. Einnig barnafræðslu í sveitinni en Jóhannes Þorsteinsson var kennari í sveitinni. Jafnframt rætt um búskap hans og Bjargar á Breið og oddvitastörf hans. Einnig spyr Sigurður um viðhorf hans til ýmissa mála.
Viðtal við Pétur Jónasson fyrrum hreppstjóra á Sauðárkróki.
Pétur rifjar m.a. upp bernskuminningar frá Enni, Syðri-Brekkum og Hofsstöðum.
Einnig frá vinnumennsku.
Sigurður Egilsson tekur viðtal við Friðrik J. Friðriksson lækni.
Ræða m.a. um byggingu Sjúkrahússins á Sauðárhæðum og aðdraganda þess.
Einnig ræða þeir um ferðalög Friðríks á Fjöllum, um Sprengisand, Hofsjökul og Helgrindur.
Sigurður og Friðrík fara báðir með kvæði.
Viðtalið tekið 1967.
Viðtöl við Stefán Stefánsson sem ýmist er kenndur við Brenniborg eða Brúnastaði. Stefán er 97 ára þegar viðtalið er tekið.
Stefán fæddist á Löngumýri og ólst upp á Skíðastöðum., fór í fóstur á nokkra staði eftir að hafa misst föður sinn 12 ára og eftir það suður til sjós. Lærði söðlasmíði á Fjalli og gekk í Flensborgarskólann. Stefán bjó 20 ár á Blönduósi og var einnig bóndi á Brenniborg.
Rætt um kenningar kristninnar og líf eftir dauðann. Einnig rætt um ýmsa samferðamenn Stefáns. Að lokum segir Stefán frá dulrænu atviki er hann var við smíðar og kaupavinnu á Sjávarborg.
Fjallfari, sveitarblað í Sauðárhreppi (Skörðum og Reykjaströnd). Þetta tiltekna blað var gefið út á Veðramóti, 11.02.1905. Í ritnefnd voru: Sigurður Á. Björnsson, Sölvi Guðmundsson, Jón Þ. Björnsson.
Sveitablaðið Viljinn sem Lestrarfélagið í Miklabæjarsókn gaf út. Ritstjóri: Baldvin Bergvinsson.
Sveitablað sem Lestrafélag Akrahrepps gaf út í byrjun 20. aldar.
Lestrarfélag AkrahreppsSveitablað sem var gefið út af Lestrarfélagið Akrahrepps í byrjun 20. aldarinnar.
Hreppsbók / Sveitarbók Haganeshrepps 1907-1928.
Byrjar á ávarpi eða upphafsorðum. Síðan er Fyrirlestur sem Albert flutti í Framfarafélaginu á Sauðárkróki. 18. mars 1926.
Talið er að Gísli Halldórsson er bjó um tíma á Hjaltastöðum hafi ritað þetta sveitablað rétt fyrir aldamót. Ýmis efni, t.d. kveðskapur, þýddar sögur og pistlar og söguþættir. Hér hefur þriðji og fjórði árgangur varðveist.
Ljóðabréf til Jóhanns og Þórdísar á Skriðufelli, eftir Þorstein Einarsson, Tungukoti.
Sagt er að Þorsteinn hafi villst á leið sinni suður og fengið inni á Skriðufelli, Þjórsárdal hjá Jóhanni og Þórdísi sem voru ábúendur þar. Ljóðabréfin eru frásögn Þorsteins frá þessu ferðalagi.
Á myndinni er bifreiðin K 71. Chervolet 1946. Var í eigu Bifreiðastöðvar Baldvins.
Hreppsbók / Sveitarbók Fellshrepps. Bókin er í slæmu ástandi og sýna þarf sérstaka aðgát við meðferð hennar.
Myndin er svarthvít pappírskópía í stærðinni 5,5x5,5 sm. Á henni eru tvær konur sem standa á húströppum með barn milli sín og fyrir neðan tröppurnar eru tvö börn. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Jens Þorkell Halldórsson (1922-1992)Búntóna mynd í stærðinni 3x5 sm. Límd aftan á svart spjald með sporöskulaga ramma. Á myndinni er karlmaður með hatt á höfði. Nafn mannsins er óþekkt.
Björn Jóhann Jóhannesson (1905-1970)Fundagerðabók hreppsnefndar 1898-1919
Hreppsbók/Sveitarbók Holtshrepps 1834-1857.
Vegna þess hve þétt er skrifað á síðurnar er sumstaðar mjög tæpt að lesa hvað stendur næst bókbandinu.
Á þessari síðu er Sölvi augljóslega að bregðast við ákærum Sigfúsar Skúlasonar sýslumanns í Eyjafirði um bókaþjófnað. Sölvi lýsir því hvernig hann ýmist kaupir, selur eða gefur bækur á ferðalögum sínum. Hann nafngreinir menn sem hann hefur keypt af bækur, t.d. segist hann hafa keypt bækur af Jóni Bónda á Haukagili í Vatnsdal. Nokkuð af þeim bókum segir Sölvi að hafi verið óseldar þegar haldið var austur og þar hafi hann ýmist selt þær eða gefið. Hann rifjar jafnframt upp ákærur Daníels Jónssonar á hendur sér fyrir bókaþjófnað og minnist á Eggert Briem sem dæmdi í því máli. Hann furðar sig á að Sigfús hafi getað án nokkra sannana gert upptækar þær bækur sem hann þóttist eiga. Sölvi gerir sjálfur grein fyrir að minnsta kosti hluta þessara bóka og nefnir m.a. að hann hafi fengið Mynstershugleiðingar hjá Ólafi bókbindara á Ystu-Grund í Skagafirði (Ólafur Guðmundsson 1808-1853).
Á þessari síðu ávarpar sögumaður Sölva og hughreystir hann með því að réttlætinu verði fullnægt hinum megin grafar. Þar verði þeim refsað sem hafi gert á hlut hans en hann njóti ávaxtana af dyggðugu lífi sínu á jörðinni.
Stuttur texti og skrautskrift.
Framan af ávarpar sögumaður lesandann og leggur honum lífsreglurnar en undir lokin beinir hann athyglinni að spekingnum Sölva og hans miklu afrekum. En hann fullyrðir að lykill allrar þekkingar sé fundinn af sjálfum Sólon spekingi.
Titill: Dagpóstur
Sölvi er að morgni í febrúar sendur aftur að stað um allt Austurland af höfðingjunum á Norðurlandi, erfitt er að átta sig á hvert tilefnið er en á þeim síðum sem hér eru saman er Sölvi víða um land og þarf tilneyddur að bera eða draga á eftir sér þungar birgðir sem hann er tilneyddur til að . Sögumaður ávarpar Sölva sjálfan og mest er fjallað um yfirnáttúruleg afköst Sölva sem er greinilega enginn venjulegur maður. Hann getur að sögn sögumanns slegið 2000 dagslætti á meðan venjulegur húskall ræður ekki lengur við að slá nema sem nemur 3 dagsláttum á viku. Þetta gerir hann allt með hjálp drottins. Forsendurnar eru þær að Sölvi skilur lífið ljósið og náttúruna, hann þekkir öflin og hefur tekið þau í sína þjónustu. Lýsingar sem þessar eru algengar í textum Sölva og varpar ekki síst ljósi á heimssýn Sölva sem er mjög í anda þess sem einkenndi rómantíkina í upphafi, þar sem litið var á náttúruna sem eina heild og manninn sem hluta af henni.
Sölvi kynnir fyrir lesandanum mun á sérhljóði (sem hann kallar hljóðstaf) og samhljóði áður en hann fer í gegnum þessar skrifreglur lið fyrir lið.
Tafla með upplýsingum um reikistjörnur sólkerfisins. Fjarlægð þeirra frá sólu, þvermál þeirra og snúningshraði.
Ýmis form, götuð í pappír. Líklega verið notað báðum megin.
Emilía Guðmundsdóttir (1893-1945) frá Tungunesi.
Daníel Davíðsson (1872-1967)Ljósmynd af Þórði Pálmasyni.
Við brú yfir Affallann. Í forgrunni eru tveir vegavinnumenn með verkfæri, Felix Jósafatsson t.v. og Björn Gíslason. Glóðafeykir í baksýn t.v. Mynd 1928.
Egill Jónasson (1901-1932)Sigrún Marta Jónsdóttir (1900-1997).
Óþekktur drengur á þríhjóli og annar drengur til hliðar. Í baksýn sést karlmaður.
Myndin er tekin í Winnipeg júní 1955. Aftan á hana er skrifað:
"Þetta er Sargent Ave eða "Jeelanders main street" eins og það var einu sinni kallað. Þarna búa mjög margir ísl og stóra hvíta húsið til hægri er Ísl I.O.G.T. húsið séð vestur."
Handskrifuð vel með farin í mjúku bandi.
Ungmennafélag Höfðstrendinga*Harðspjalda handskrifuð bók í viðkvæmu ástandi og með laus blöð. Kjölur er með límbandsborða og heldur bók saman.
Bókin byrjar á framhald fundagerðar 1913.
Tvö handskrifuð blöð frá aðalfundi 1908 26. jan til vor 1914. Þar sem gerð er grein fyrir hvenær fundir eru haldnir og hverjir ganga í og úr félaginu. í lok bréfs segir þá er ekki hægt að rekja útdrátt úr gjörðum fél lengra því findargjörðir eru ekki fyrir hendi um störf 14.09.1914 - 16.01.1929
Formenn kvenfélaga og stjórn SSK - formannafundur í Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki 1977. Fremri röð frá vinstri: Pála Pálsdóttir - Hofsósi, Ragnheiður Ólafsdóttir - Glaumbæ, Selma Magnúsdóttir - Sauðárkróki - gjaldkeri SSK, Helga Kristjánsdóttir - Silfrastöðum - formaður SSK, Solveig Arnórsdóttir - Útvík - ritari SSK, Guðrún Steinsdóttir - Reynisstað, Halldóra Ólafsdóttir - Skálá - Fellshreppi. Aftari röð frá vinstri: Ingibjörg Jóhannesdóttir - Miðgrund, Guðlaug Márusdóttir - Haganesvík, Fjóla Þorleifsdóttir - Sauðárkróki, Sigrún Hróbjartsdóttir - Hamri, Guðrún L. Ásgeirsdóttir - Mælifelli, Sigrún Aadnegard - Bergsstöðum, Hólmfríður Pálsdóttir - Sauðárkróki - orlofsnefndarkona, Friðfríður Jóhannsdóttir - Hlíð Hólahreppi, Anna Jónsdóttir - Laufhóli, Þóra Kristjánsdóttir - Óslandi.
Fiskiðnaðarnámskeið Sjávarútvegsmálaráðuneytisins 1962. (Freðfiskur).
Aftasta röð talið frá vinstri: Marteinn Steingrímsson, Húsavík; Sævar Th Guðmundsson, Reykjavík; Ari Jónsson, Siglufirði; Jens V. Franklín, Reykjavík; Halldór I. Guðmundsson, Vestmannaeyjum; Hjörtur Sveinbjörnsson, Vestmannaeyjum; Kristján J. Guðmundsson, Eskifirði; Jón L. Guðnason, Reykjavík; Ágúst E. B. Sveinsson, Grafarnesi; Kristján Kristjánsson, Flateyri.
Næst aftasta röð, talið frá vinstri: Ríkharð Jóhannsson, Reykjavík; Benedikt Guðmundsson, Reykjavík; Skúli Jónsson, Húsavík; Steinþór Egilsson, Ölfusi; Snorri Gunnarsson, Grafarnesi; Jóhann H. I Jóhannsson, Reykjavík; Gísli Ó. Sigurðsson, Reykjavík; Halldór Snorrason, Reykjavík; Guðmundur I. Guðjónsson, Eyrarbakka; Kjartan B. Jónsson, Keflavík.
Miðröð, talið frá vinstri: Björn M. Magnússon, Bíldudal; Gunnar Ólafsson, Vestmannaeyjum; Bragi I. Ólafsson, Vestmannaeyjum; Árni R. Óskarsson, Dalvík; Stefán L. Holm, Skagaströnd; Hans Guðmundsson, Reykjavík; Jónatan Á. Aðalsteinsson, Hólmavík; Magnús R. Engilbertsson, Reykjavík; Halldór Jónsson, Eyrarbakka; Snorri Jónsson, Vestmannaeyjum; Sturla Halldórsson, Ísafirði.
Næst fremsta röð, talið frá vinstri: Þorbjörg Þ. Júlíusdóttir, Reykjavík; Emma Stefánsdóttir, Reykjavík; Þóra Scheving, Reykjavík; Þóra H. Magnúsdóttir, Reykjavík; Dóra M. Gunnarsdóttir, Reykjavík; Guðrún H. Ingibersdóttir, Vestmannaeyjum; Anna M. Kristjánsdóttir, Kópavogi; Bergþóra M. Þorsteinsdóttir, Reykjavík.
Fremsta röð, talið frá vinstri: Guðmundur Jóhannsson, eftirlitsm. S. H. (kennari); Jóhannes Sigurðsson yfirlitsm. (kennari); Arnlaugur Sigurjónsson eftirlitsm. SÍS. (kennari); Lýður Jónsson yfirfiskmatsm (kennari); dr. Phil. Sigurður Pétursson, gerlafr. (kennari); Bergsteinn Á. Bergsteinsson, fiskmatsstjóri, forstöðumaður námskeiðsins (kennari); Ólafur Árnason, yfirfiskmatsm. (kennari); Óthar Hansson, framkv.stj, fiskvinnslusérfr. (kennari); Valdimar Þórðarson, eftirlitsm. S.H. (kennari); Einar M. Jóhansson, fiskvinnslusérfr. (kennari). Á myndina vantar Einar I Sigurðsson fyrrv. starfsm. F.R. (kennari).
Gjörðabók Ungmennafélagsins Bjarma í Goðdalasókn Skagafjarðasýslu, ásamt lögum og meðlimaskrám félagsins.
Ljósmynd af börnum Magnúsar Benediktssonar á Sauðárkróki, Karl og Lilly. Líklega er hér um tvíbura, Sigríði og Karl, að ræða.
Jón Pálmi Jónsson (1888-1962)Með myndinni fylgdi miði þar sem mennirnir eru nafngreindir. Efri röð frá vinstri: Símon Jóhannsson frá Goðdölum, Hörleifur Andréssson frá Sauðárkróki, Albert Erlendsson frá Selá, Guðvarður [Sigurbjörn Steinsson] frá Kleif. Neðri röð frá vinstri: Björn Magnússon frá Borgarlæk, Sigurður Jónsson frá Hvalnesi, Þorvaldur Þorvaldsson frá Skíðastöðum, Stefán Sigurðsson frá Sævarlandi.
Jón J. Dahlmann (1873-1949)Yfirlitsmynd af Sauðárkróki, útgefin og fjölrituð.
Fundargerðarbækur hreppsnefndar Akrahrepps á tímabilinu 1875 til 1928.
Akrahreppur (1000-)