Myndefni óljóst - mögulega fjall. Á blaðið er búið er að skrifa: „Mýrarbrúnn [?] grænt. rolluhvítt [?]. ath. málverk.“ Einnig er búið að skrifa tölurnar: „2763“. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1975-1995.
Hestar við hesthúsin í Víðidal. Hestarnir eru fimm og þar er einnig maður. Í forgrunni er hvítur hestur sem klórar sér í fætinum. Myndin gæti verið frá 1985-1995.
Óklárað málverk af tveimur hestum á beit í haga - líklega í grennd við höfuðborgina. Í bakgrunni má sjá rafmagnsstaura og fjölda bygginga. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1985-1995.
Skissa af manni á hestbaki eftir veg í landslagi. Til hægri má sjá lítið grænt hús með rauðu þaki. Fyrir miðju er stórt grænleitt ský. Myndin gæti verið frá 1985-1995.
Landslagsmynd - mögulega af Heiðmörk. Í forgrunni er runnagróður í haustlitum - þ.e. rauður og gulur - og í bakgrunni er fjall - mögulega Esjan. Myndin gæti verið frá 1985-1995.
Ókláruð landslagsmynd - óvíst hvar. Vegur liggur yfir landslag - þar sem fyrir miðju má sjá skóglendi en í bakgrunni fjöll. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1980-1990.
Óklárað málverk af tveimur manneskjum krjúpa. Jörðin er snæviþakin - fyrir miðri mynd rennur á og í bakgrunni gætu verið byggingar. Staðsetning ókunn en mögulega á höfuðborgarsvæðinu. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1980-1990.
Búið er að skrifa texta á blaðið en hann er óviðkomandi skissunni. Skissan er af vopnum og hjálmum. Skissan er sennilega hluti af Sturlungaseríu Jóh.Geirs. Myndin er líklega frá 1980-1990.
Teikning sem er hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 - endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Lítill strákur fleytir lítilli skútu í sjóinn á Sauðárkróki. Í bakgrunni má sjá Málmey og Þórðarhöfða.
Teikning sem er hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 og Þurrt og blautt að vestan frá 1990. Báðar eru endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Tvennar skissur af andliti drengs (þá líklega ungum Birni).
Bátur stendur fremur hátt á landi í fjöru og í bakgrnni má sjá sérkennilegt fjall - mögulega Keilir. Myndefnið gæti því verið úr höfuðborgarsvæðinu. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Horft úr Breiðholti yfir Reykjavík - Sundahöfn og Viðey. Á götunni er bíll og fjórir hjólreiðamenn. Í bakgrunni má sjá Akrafjall og Esjuna. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Bæjarmynd þar sem horft er yfir á/ vatn. Staðsetning er sennilega Reykjavík - þar sem horft er yfir Elliðárdalinn á Breiðholt. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Teikning sem er líklega hluti af myndaseríu í bókunum Glampar í götu frá 1989 eða Þurrt og blautt að vestan frá 1990. Báðar eru endurminningar Sauðkræklingsins Björns Jónssonar (eða Bjössa bomm) læknis - bróður Jóh.Geirs. Skissur af kassabíl.
Maður klæddur jakkafötum og bláum frakka gengur með með upprúllað blað í hendi. Í sömu möppu fannst blað sem á stóð franski sendiherran en óvíst er hvort það eigi við þessa mynd. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Teikning af tveimur víkingaskipum sigla undan landi. Einnig fimm minni skissur af víkingaskipum - húsum - bátum og manni og hundi. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Málverk af þremur manneskjum standa hjá hesti - í bakgrunni má sjá byggingar - líklegast í Reykjavík. Í bakgrunni er sólroðin himinn. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1980-1990.
Óklárað málverk af tveimur manneskjum ásamt barni ganga eftir vegi í landslagi. Í bakgrunni eru bláleit fjöll. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1980-1990.
Skissa af tveimur manneskjum sem standa við grindverk og í bakgrunni er Reykjavíkurborg. Þar má sjá móta fyrir Borgarspítalanum. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Ókláruð landslagsmynd - óvíst hvar. Grjót og girðing virðist vera í forgrunni en dökkblá fjöll í bakgrunni. Himininn er grænblár og ljósappelsínugulur. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1980-1990.
Landslagsmynd þar sem forgrunnurinn er gráleitur - miðja hennar grænleit og fjöll með fjólubláum útlínum í bakgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Myndefnið er Austurvöllur þar sem má sjá dómkirkjuna - Hótel Borg og styttu Jóns Sigurðssonar. Í bakgrunni er Hallgrímskirkjuturn. Myndin gæti verið frá 1980-1990.
Teikning af Íslandi skipt eftir yfirráðasvæði höfðingjaætta á Sturlungaöld. Skissan er hluti af Sturlungaseríu Jóh.Geirs. Myndin er líklega frá 1980-1990.
Óklárað málverk af Elliðárvirkjun. Í forgrunni er manneskja á gangi eftir göngustíg en í bakgrunni má sjá Reykjarvíkurborg - ásamt Borgarspítalanum. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1980-1990.
Skissa af höfn þar sem þrír bátar liggja að bryggju - óvíst hvar. Í forgrunni eru tveir ljósastaurar og varnargarður hlaðinn úr grjóti. Á ljósastaurnum fremst stendur mávur. Myndin gæti verið frá 1980-1990.