Árni Sveinsson kennari frá Kálfsstöðum með barnaskólakrakka í Brekkukoti í Hjaltadal 1943-1944. Aftari röð frá vinstri: Fríða Ólafsdóttir, Ragnar Sveinsson, Kristín Þórhallsdóttir, Ragna Sigurðardóttir og Konkordía Rósmundsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Sigurður Þórhallsson, Sigurlaug Pálsdóttir, Margrét Haraldsdóttir, Trausti Pálsson, Rögnvaldur Haraldsson, Sævar Guðmundsson og loks Anna Pálsdóttir yngst á myndinni.
Kennarar í gamla Barnaskólanum V/ Aðalgötu frá vinstri: Magnús Bjarnason (1900-1975) kennari á Sauðárkróki. - Friðrik Hansen (1891-1953) kennari og skáld Sauðárkróki- Þorvaldur Guðmundsson (1883-1961) kennari Sauðárkróki og Jón Þ. Björnsson (1882-1964) skólastjóri á Sauðárkróki.
Frá undirritun samnings um byggingu bóknámshúss við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki vorið 1991 milli ríkisins annars vegar og Héraðsnefndar Skagafjarðar hinsvegar. F.v Magnús H. Sigurjónsson framkvæmdastjóri héraðsnefndar, Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra, Ragnar Arnalds formaður bygginganefndar bóknámshúss og Þorbjörn Árnason form. skólanefndar.
Fundargerðabók í foliobroti, innbundin. Inniheldur fundargerðir félagsins á árunum 1934-1963. Félagið virðist hafa verið endurvakið úr dvala 1934 og fundað reglulega eftir það, a.m.k. til ársins 1963.
Bréf í A4 stærð sem inniheldur ályktum um byggingu héraðsskóla. Bréfið er stílað á formenn skólanefndar í Skagafirði og stuðlað fulltrúum stjórnar Varmahlíðar.
Skjalasafnið inniheldur bókhaldsgögn, bréf, gögn varðandi félagsheimili, fundagögn, gögn varðandi málaferli v. Eyjafjörð, skólamál skýrslur, útgefin blöð og gögn um sjúkrasamlag, elli- og örorkubætur.
Jón Þ. Björnsson skólastjóri Barnaskólans á Sauðárkróki fylgdist með og skráði líkamlegan þroska skólabarna á tímabilinu 1914-1953. Í þessari bók skráir hann niður mælingar á börnum frá 1931 til 1943. Mæld var hæð, þyngd, brjóstmál (brjóstkassi), kraftur/afl og andrými.
Kenslubók í eðlisfræði handa barnaskólum / Vald. Valvesson. Valdemar V. Snævarr 1883-1961 höfundur. Reykjavík : Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, 1914. 54 bls. : myndir ; 18 sm.
Kenslubók í ensku = (English reading made easy) / Sir William A. Craigie. Reykjavík : Bókaverzlun Ársæls Árnasonar, 1924-1925. 2. bindi. 276, bls.) ; 19 sm.
Skjal til undirritunar fyrir samskot í sjóðinn, undirritað af stofnendum sjóðsins. Á skjalinu eru nöfn tveggja gefenda, rituð með hendi Guðmundar Davíðssonar á Hraunum.
Pappírskópía, framkölluð í brúntónum og límd á pappaspjald. Myndin er heilleg en nokkur óhreinindi á henni. Á henni er hópur pilta, líklega skólapiltar. Staðsetning og nöfn þeirra sem á myndinni eru óþekkt.
Pappírskópía límd á pappaspjald. Um er að ræða skólaspjald frá Menntaskólanum á Akureyri. Á myndinni er m.a. Stefán Stefánsson skólameistari, auk kennara og nemenda.
Skjalið er handskrifað með blýanti á eina örk í stærðinni 33,7x21 cm. Blaðið virðist rifið úr bók og er nokkuð af brotum og rifum í því. Fundargerðin er undirrituð en hefur ef til vill verið hreinrituð síðar. Um frumrit er að ræða.
Þakkarbréf til gestgjafa, þar sem þakkað er fyrir móttökur í skólaferð. Þrjú bréf sem prentuð eru út úr tölvuprentara. Bréfin innihalda ljósmyndir úr ferðinni.
Gögn sem varða skólaárið 1998-1999, m.a. vorskýrsla skólastjóra, sýnishorn af vitnisburðarbók, skóladagatal og stundaskrár. Alls 22 pappírsarkir í A4 stærð., flestar ljósritaðar.
Gögn sem varða skólaárið 1999-2000, m.a. vorskýrsla skólastjóra, gögn vegna skólabúða á Reykjum, skóladagatal og stundaskrár. Alls 45 pappírsarkir í A4 stærð., flestar ljósritaðar.
Gögn sem varða skólaárið 2001-2002, m.a. vorskýrsla skólastjóra, próftöflu, skóladagatal og stundaskrár. Alls 50 pappírsarkir í A4 stærð., flestar ljósritaðar.
Skýrslan, sem fjallar um framvindu verkefnisins Námsumhverfi og samskipti er 16 fjölritaðar síður, auk kápu. Hún er tekin saman af umsjónarmönnum verkefnisins, sem framkvæmt var af skólastjórum og kennurum í Skagafirði.
Barnafræðsluskýrslur árin 1920-1966. Ritið er 81 bls auk kápu og er heftað og kjallímt, A4 stærð. Það er gefið út af Hagstofu Íslands og er hluti af hagskýrslum, aukaflokki nr 1.
Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif. Á myndinni eru, f.v. Björg Línberg Runólfsdóttir, Guðrún Hulda Pálmadóttir, Sigurlaug Einarsdóttir, Kristín S. Björnsdóttir og Steinar Sörensson. Myndin er tekin í Grunnskólanum á Hofsósi.
Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif. Á myndinni eru, f.v.: Þórunn Snorradóttir, Kristín S. Björnsdóttir og Sigurlaug Einarsdóttir. Myndin er tekin í Grunnskólanum á Hofsósi.
Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif. Á myndinni eru, f.v.: Þórunn Snorradóttir, Kristín S. Björnsdóttir, Sigurlaug Einarsdóttir og Guðni Sigurður Óskarsson. Fremst sér aftan á Björgu Línberg Runólfsdóttur. Myndin er tekin í Grunnskólanum á Hofsósi.
Skólablaðið 3. árgangur 1. tölublað. 2 eintök. 1 blað er ein örk. Myndskreytingu blaðsins sá Jóhannes Geir Jónsson um þá 11 ára. Þeir sem skrifa í blaðið eru: Guðlaug Þorsteinsdóttir, Gunnhildur Magnúsdóttir, Sigurjón Friðbjörn Björnsson, Þóra Jónsdóttir, Hulda Ívarsdóttir, Áslaug Sigfúsdóttir.
Skjalið er handskrifuð pappírsörk í A5 broti, alls 3 skrifaðar síður. Með liggur reikningur fyrir fæði Guðmundar Jónssonar farkennara í Rípurhreppi veturinn 1920-1921.