Sýnir 14 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Only top-level descriptions Sendibréf
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

Hóll í Sæmundarhlíð: Bréfasafn (Afh. 1947)

  • IS HSk H00015
  • Safn
  • 1850-1900

Magnús, Sveinn Þórarinn, Þorbergur og Guðrún Jónsbörn frá Hóli í Sæmundarhlíð. Sendibréfasafn.

Magnús Jónsson Fjalli (1851-1942)

Árni G. Eylands: Skjalasafn

  • IS HSk N00141
  • Safn
  • 1916-1926

Gögn varðandi komu skurðgröfunnar til Skagafjarðar árið 1926.

Árni G. Eylands (1895-1980)

Guðmundur Sigurður Jóhannsson: Skjalasafn

  • IS HSk N00142
  • Safn
  • 2001

Handskrifað bréf frá Skúla Magnússyni til Guðmundar ættfræðings varðandi ættartölur og með fylgir ljósrit af ættartölu Halldórs Bjarnasonar.

Guðmundur Sigurður Jóhannsson (1958-2018)

Guttormur Vigfússon: Skjalasafn

  • IS HSk N00143
  • Safn
  • 1887-2000

Frumrit bréfa frá fjölskyldinni Ljótsstöðum í Skagafirði til hjónanna Guttorms Vigfússonar og Sigríðar Guðbjörgar Önnu Sigmundsdóttur (1862-1922) er bjuggu á Geitagerði í Fljótsdal. Bréfin eru frá tímabilinu 1887-1918.

Guttormur Vigfússon (1850-1928)

Helga Dahlman: Skjalasafn

  • IS HSk N00145
  • Safn
  • 1925-1931

Bréfaskriftir Gísla Stefánssonar í Vesturheimi til systur sinnar á Íslandi. Einnig bréf frá Guðbjörgu Þorbergsdóttur, Sauðárkróki, til frænku sinnar.

Helga Bjorg Dahlman (1919-2013)

Björn Egilsson: Skjalasafn

  • IS HSk N00152
  • Safn
  • 1991

Bréf frá Vigdísi Finnbogadóttur eftir heimsókn hennar á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki.

Björn Egilsson (1905-1999)

Pálína Þorfinnsdóttir: Skjalasafn

  • IS HSk N00205
  • Safn
  • 1937-1941

Bréf Gísla Ólafssonar frá Eiríksstöðum til Pálínu Þorfinnsdóttur.

Pálína Þorfinnsdóttir (1890-1977)

Sigurbjörg Gunnarsdóttir (Afh. 2023:031)

  • IS HSk N00481
  • Safn
  • 1926 - 1960

Í safni þessu eru fjölmörg sendibréf og meðylgjandi umslög er bárust til Sigurbjargar og Magnúsar bróður hennar á þessu tímabili. Einnig eru sendibréf til Walters sem var í sveit hjá þeim Bréfin eru vel læsileg og í góðu ástandi. Í safni þessu liggja líka jólakort og myndir myndir og eru látnar halda sér hjá því sendibréfi vegna uppruna. Í series bókhaldi E, lá efst í safninu er óopnað umslag frá Kaupfélagi Skagfirðinga merkt Stefánía M Pétursdóttir, Garði Hegranesi, það er látið halda sér þannig.
Í series G-4 er handskrifað bréf með stimpilmerki. Bréfið sýnist vera skírnavottorð um skírn Jón fæddur 9.janúar, skírður 2.des.ár 1916.
Foreldrar, Björn Pálmason og Sigurbjörg Jónsdóttir.Ytri - Húsabakka. Dagsett, Glaumbæ 3.maí 1930.

Sigurbjörg Gunnarsdóttir (1888-1964)

Árni Blöndal: skjalasafn

  • IS HSk N00489
  • Safn
  • 1955-2014

Safn úr eigu Árna Blöndals og Maríu Gísladóttur konu hans. Einkaskjalasafnið var forflokkað af skjalamyndara áður en það var afhent, í því safni er talsvert af persónulegum gögnum, sendibréf, jólakort, DVD diskar auk ljósmynda frá fjölskyldum þeirra bæði á Íslandi og erlendis. Í safninu eru einnig skjöl sem tengjast félögum sem Árni starfaði og kom að í gegnum tíðina. Safnið var að miklu leyti flokkað og voru skjölin geymd í plastvösum sem voru í plastmöppu. Safnið var yfirfarið og sumt flokkað á ný og því skipt í tvennt, það sem tengist byggingu Sauðármýrar 3 á Sauðárkróki og einkaskjöl. Allt plast var grisjað úr safninu, einnig ljósrit af fundargerðum úr fundargerðabókinni, afrit af ljósmyndum sem teknar voru á stjórnarfundum húsfélagsins að Sauðármýri 3.
Hefti voru fjarlægð. Ljósmyndirnar voru settar í sýrufría plastvasa fyrir betri varðveislu, öll pappírsgögn voru sett í arkir. Safnið var í tveimur öskjum.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Ólína Ingibjörg Björnsdóttir og Guðjón Sigurðsson: skjalasafn

  • IS HSk N00492
  • Safn
  • 1900-1995

Safn úr eigu Guðjóns Sigurðssonar bakara og Ólínu Ingibjörgu Björnsdóttur konu hans, safnið samanstendur af sendibréfum og erindum m.a til þáverandi sjávarútvegsráðherra Emils Jónssonar (1963). Í safninu eru auk þess 280 pappírskópíur og ljósmyndir, hluti af þeim er úr eigu Björns (Haraldar) Björnssonar, bróður Ólínu. Safn Björns var í litlu tréboxi (gömlu vindlaboxi). Þess má geta að í tréboxinu voru tvær litlar myndamöppur með ljósmyndum af helstu kennileitum Kaupmannahafnar. Ákveðið var að halda söfnunum aðskildum og skrá myndirnar og myndamöppurnar sérstaklega.
Þegar byrjað var að fara yfir myndinar komu í ljós nokkrar myndir sem eru úr eigu Björns Björnssonar sem var tengdasonur Ólínu og Guðjóns, nokkrar af myndunum eru merktar honum og hafa liklega verið birtar í Morgunblaðinu (Björn var lengi fréttaritari blaðsins).

Ólína Ingibjörg Björnsdóttir (1903-1980)