Bókin er innbundin höfuðbók. Í hana eru færðar upplýsingar um höfuðbók og bókhald einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Vöruleifar 1934-1942 og reikningar frá Raforkufélagi Hofsóss 1934-1936.
3 fréttir frá Sauðárkróki 1963 sendar Degi á Akureyri. Fjallað um er erindi Adolfs Björnssonar rafveitustjóra um rafveitur í Skagafirði og áætlanir um að virkja Reykjafoss í Tungusveit. Jafnframt er fjallað um frumsýningu Leikfélags Sauðárkróks á Fjalla-Eyvindi. Verkamannafélagið Fram minntist 60 ára starfsafmælis. Mikið atvinnuleysi hafði verið á Sauðárkróki þennan veturinn og afli lítill. Danskennsla var á vegum Æskulýðsráðs Sauðárkróks og var það Rigmor Hanson sem kenndi.
Rafveita Sauðárkróks gaf út innbundið rit um endurskoðað virkjunarmat á Reykjafossi í Svartá í Skagafirði. Ritið skrifuði Theodór Árnason og Ágúst Sæmundsson í febrúar árið 1965.
Skýrslan er fjölrituð í A4 broti og er 82 bls auk fjölda fylgiblaða. Á kápu stendur: Virkjun Blöndu I. Frumáætlun um 135 mw virkjun. Skýrsla samin fyrir Orkustofnun OS-ROD-75.21. Reykjavík, maí 11975.
Skýrslan er fjölrituð í A4 broti og er 20 bls auk fjölda fylgiblaða. Á kápu stendur: Virkjun Blöndu II. Samanburðaráætlanir. Skýrsla samin fyrir Orkustofnun OS-ROD-75.24. Reykjavík, júní 1975.
Vélrituð pappírsörk í A4 broti, ályktun fundar sveitarstjórnarmanna í Miðgarði vegna Blönduvirkjunar, þar sem mótmælt er frumvarpi um Blönduvirkjun sem fyrirhugað er að leggja fyrir Alþingi.