Bréfasamskipti Byggðasafnsins annars vegar og Kristínar Jónsdóttur, Söru Regínu Valdimarsdóttur, Sigríðar Ólafar Þóru Sigurðardóttur hins vegar. 4 pappírsarkir í A4 stærð. Varðar Fosslaug og styrkumsóknir. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. það varðar niðurstöður norrænu sundkeppninngar. Með liggja gögn um keppnina, tvö blöð í A4 stærð. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A5 stærð. Það varðar kostnað við gufubaðsstofu og fleira í sundlaugarhúsinu í Varmahlíð. Ástand skjalanna er gott.
Bókhaldsgögn vegna sundlaugarinnar í Varmahlíð frá árunum 1966-1967. Alls 125 stk ásamt umslagi sem stílað er á Halldór Benediktsson. Ástand gagnanna er gott.
Stúlkur í Steinsstaðalaug. F.v.: Hansína Sigurðardóttir (vinnukona hjá Jónasi lækni), Pála Sveinsdóttir (Pála Magg), Ásta Jónsdóttir, óþekkt, Ingibjörg Jónsdóttir (Imba læknis) og Stefanía Sigurðardóttir (sýslumanns). (Þessi mynd gæti verið tekin um 1930).
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar byggingu á sundlaug og sundskýli á Gili í Austur-Fljótum. Ástand skjalsins er gott.
Kvittunin er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Hún varðar sundkennslu Páls í Holts-og Haganeshreppum. Með liggur kvittun fyrir greiðslu vegna afnota af lauginni á Lambanes-Reykjum. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar sundkennslu við Barðslaug. Með liggur viðurkenning á greiðslu til Páls Jónssonar vegna sundkennslu. Ástand skjalsins er gott.
Fyrsta skóflustunga tekin að nýrri sundlaug á Hólum en hún var vígð vorið 1982. T.v. má þekkja Jón Bjarnason skólastjóra Bændaskólans og konu hans Ingibjörgu Kolka og svo Kristján Skarphéðinsson. Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri er næstur á myndinni og Gísli Pálsson frá Hofi er með skófluna.
Sundurliðuð kostnaðaráætlun af öðrum byggingaráfanga Sundhallar Sauðárkróks (búningsálma og áhorfendapallar) frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen 1966.
Stundaskrá með yfirliti yfir afnot ákveðinna hópa af sundlaug Sauðárkróks árið 2002 og samskipti Guðjóns við Sveitarfélagið vegna gjafar hans og eiginkonu hans, Ingibjargar Kristjánsdóttur, til sundlaugarinnar.
Heimild frá Kristjáni Árnasyni um sundkennslu í Skíðastaðalaug (við Varmalæk) og í Steinstaðalaug. Kennari við Skíðastaðalaug var Ólafur Guðmundsson í Hamarsgerði. Bætt er við í lok samantektarinnar að fyrsta stúlkan sem hafi lært sund í Steinstaðalaug hafi verið Sigríður Daníelsdóttir kona Kristjáns I. Sveinssonar.
Margvíslegar heimildir frá mismunandi aðilum um sundkennslu í Skagafirði, m.a. má finna þarna heimildir frá Jóni Sigurðssyni á Reynistað, Hannesi Hannessyni á Melbreið, Páli Sigurðssyni á Hofi, og Ingibjörgu Jóhannsdóttur á Löngumýri.