Við brú yfir Affallann. Í forgrunni eru tveir vegavinnumenn með verkfæri, Felix Jósafatsson t.v. og Björn Gíslason. Glóðafeykir í baksýn t.v. Mynd 1928.
Listinn er handskrifaður á 19 pappírsarkir í A5 stærð. Munirnir eru númeraðir og listinn sundurliðaður eftir hvar þeir eru staðsettir í torfbænum. Ryðskemmdir eftir hefti eru efst á blöðunum.
Listinn er tölvuprentaður á fjölmargar pappírsarkir, úr svokölluðum punktaprentara. Hann nær yfir muni Bggðasafnsins og er sagður skráður árið 1987. Ástand skjalsins er gott.
Sýningaskráin er ljósrituð á tvær pappirsarkir í A4 stærð, aðra hvíta og hina græna. Fremst er uppdráttur af torfbænum í Glaumbæ og innan í lýsingar á hverju rými fyrir sig. Ástand skjalsins er gott.
Í malarkrús hjá Húseyjarkvísl, sunnan við Kvíslarbrúna sumarið 1928. Vegamenn losa efni í krúsinni og moka á hestakerru við vegagerðina. Fjærst eru Hjalti Jónsson og Flóvent Albertsson með derhúfu. Í miðröð eru Garðar Hansen, Jón Helgason og Pótur Eiríksson með hattinn. Næstur á myndinni er Steingrímur Skagfjörð..
Starfsmenn Rafveitu Sauðárkróks þeir Guðbrandur Frímannsson (t.v.) og Björn Jónsson (t.h.) setja niður ljósastaur við Skagfirðingabrautina (ca. um 1970).
Listinn er handskrifaður á sex pappírsarkir í stærðinni 28.3 x 11 cm. Hann er sundurliðaður eftir því hvar í torfbænum munirnir eru staðsettir. Munirnir eru skráðir í númeraröð. Ástand skjalsins er gott.
Listinn er handskrifaður á þrettán pappírsarkir í stærðinni 22.8 x 13,7 cm. Hann er sundurliðaður eftir frá hvaða bæjum munirnir eru keyptir. Ástand skjalsins er gott.