Showing 21 results

Archival descriptions
Print preview Hierarchy View:

Bókhald

Í safninu eru 2 innbundar bækur, 1 hefti með dagbókarfærslum ásamt fylgigögnum bókhalds. Um er að ræða skýrslur á sundurliðun á opinberum gjöldum, skilagreinar fyrir skattinn, reiknings- og viðskiptayfirlit, erindi frá skattsjóra, verðskrá á trjáplöntum, útfyllt tékkhefti og greiðslukvittanir og árs-, aðalreiknngar skógræktarfélagsins. Úr safninu var grisjað ljósrit með aðalreikningum félagsins sem voru til í tveimur eintökum og eitt eintak fyrir hvert ár (1990-1992) var haldið eftir. Talsvert var af erindum og bréfum á meðal fylgigagna bókhalds sem fært var yfir í safn A.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Dagbækur

Þrjár gormastílabækur í A4 stærð. Í þær eru skráðar verkskipulag og skráning á vinnustundum starfsmanna auk annara upplýsinga er varða skógræktina á Hólum.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Dagbók 1989

Gormastílabók með handskrifuðum dagbókarfærslum fyrir skógræktina á Hólum í Hjaltadal. 1989

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Dagbók 1991

Í bókina eru færðar fjöldi vinnustunda og verkefni starfsmanna skógræktarfélagsins. Í bókinni er einnig lausar blaðsíður með upptalningu á plöntuðum trjáplöntum á tímabilinu 1990-1993 - auk annara slíkra upplýsinga. Ljósrit og fax með launataxta fyrir unglinga frá fjármálaráðuneytinu.
Mikið af lausum blaðsíðum er í bókinni - ekki er vitað með vissu hvort blöðin eru úr þessari bók.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Dagbók 1992

Í bókinni eru dagbókarfærslur um verkefni sem unnin voru unnin í skógræktinni á Hólum sumarið 1992. Einnig yfirlit yfir launaútreikning og sundurliðun á staðgreiðslu opinberra gjalda launamanna. Ýmsar athugasemdir eru færðar í bókina.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Erindi, bréf og skýrslur

Í safninu eru ljósrituð, handskrifuð, vélrituð, forprentuð og útprentuð erindi, bréf og skýrslur er tengjast skógrækt á Hólum í Hjaltadal.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Fylgigögn bókhalds 1988-1992

Ljósrit og tölvuútprentanir. Í safninu er fylgigögn bókhalds, sundurliðun á opinberum gjöldum, skilagreinar fyrir skattinn, reiknings- og viðskiptayfirlit, erindi frá skattsjóra, útfyllt tékkhefti og greiðslukvittanir og árs-, aðalreiknngar skógræktarfélagsins 1990-1992.
Úr safninu var grisjað úr félagaskra (önnur félagskrá frá sama tímabili var líka í safni A), leiðbeiningar frá skattinum, óútfylltir launamiðar og eintök af aðalreikningum 1990 og 1992- eitt eintak af hvoru var fjarlægt úr safni.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Fylgigögn bókhalds 1989-1991

í safnu eru handskrifuð, forprentuð og tölvuprentuð gögn. Reiknings- og viðskiptayfirlit, greiðsluseðlar og -kvittanir, skilagreinar og skýrslur fyrir skattinn, 2 frumbækur og 1 tékkhefti. Bæði er um að ræða frumrit og afrit gagna.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Ljósmyndir 1987-1990

Fjórar ljósmyndir sem sýna nokkra unga einstaklinga vera að tína fræ af birkitrjám líklega eru myndirnar teknar á Hólum. Við myndirnar er handskrifaður texti, á öðru blaðinu (mynd 1 og 2) stendur "Fræsöfnun með kveðju frá Landgræðslunni" og skondnar athugasemdir við hverja mynd, á seinna blaðinu (mynd 3 og 4) stendur "Kveðja skógræktin Hólum.
Ekkert ártal er við myndirnar en líklega eru þær teknar á tímabilinu 1987-1990 sbr. fatnaðurinn sem fólkið á myndunum er í.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Pappírsgögn 1984-1994

Handskrifuð, vélrituð tölvuprentuð og ljósrituð skjöl. Í safninu eru félagaskrá, erindi frá Skógræktarfélagi Íslands, endurrit úr fundargerðum skógræktarfélagsins, teikningar og áætlanir fyrir gróðursetningu á Hólum og minnisblöð.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Pappírsgögn 1986-1993

Handskrifuð, vélrituð tölvuprentuð og ljósrituð skjöl. Í safninu eru fræðsluerindi, skýrslur, teikningar, námskeiðs auglýsing, uppdrættir og reglur um umgengi í Hólaskóg. Í þessu safni voru nokkrar ljósmyndir, þær eru skráðar sem A-3-1.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Pappírsgögn 1987-1990

Handskrifuð, vélrituð tölvuprentuð og ljósrituð skjöl. Í safninu eru sönglagatextar, skýrslur, erindi frá Skógræktarfélagi Íslands, drög að samningi við skógræktarfélagið, fræðsluerindi, ferðaskipulag.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Skipulag gróðurreitar og tjaldsvæðis á Hólum 1986-1993

Í safninu eru skipulagsteikningar fyrir tjaldsvæðið á Hólum og líklega hluta af íbúðabyggðinni á Hólum og skipulag trjáræktar eftir reitum. Ekki var hægt að aldursgreina allt safnið, en það var látið halda sér óbreytt, hefti voru fjarlægð úr skjölunum.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Skógræktarfélag Skagfirðinga

  • IS HSk N00488
  • Fonds
  • 1974-1994

Safn sem Jón Bjarnason fyrrverandi skólastjóri Bændaskólans á Hólum afhenti 2015. Safnið samanstendur af skjölum er tengjast Skógræktarfélagi Skagfirðinga og fundagerðabókum ýmissa félaga sem nemendur Bændaskólans á Hólum voru í. Safnið frá skógræktarfélaginu samanstendur af formlegum erindum, bréfum, dagbókum og skýrslum er varða að mestum hluta skógrækt á Hólum og spannar tímabilið 1974-1994. Í safninu er líka talsvert af fylgigögnum bókhalds. Reiknings- og viðskiptayfirlit, greiðslukvittanir, launamiðar, skýrslur og skilagreinar frá skattinum. Verðskrár frá Skógræktarfélagi Íslands, einnig ársreikningar- og aðalreikningar. Í safninu sem tengist nemendum bændaskólans eru fundagerðabækur er tengjast Hestamannafélaginu Hrein, Málfundafélagi Hólasveina, Málfundafélag Hólaskóla og Íþróttafélag Hólaskóla einnig fylgdi ástundunarbók sem skráðar eru mætingar nemenda í tíma. Þegar farið var að vinna safnið var það gróf flokkað.
Það þurfti að fara yfir það og færa skjöl á milli, erindi, bréf og skýrslur í viðeigandi safn og fylgigögn bókhalds sömuleiðis.
öll erindi, bréf og skýrslur úr bókhaldsgögnunum og var raðað eins og kostur var í ártalsröð en minna lagt í að raða bókhaldsgögnin.
Talsvert var grisjað úr safninu, sérstaklega gögn sem voru til í fleiri en einu eintaki, orðsendingar og leiðbeiningabæklingar frá skattinum. Ljósrit af pöntunum fyrir trjáplöntur, fundarboð og plastvasi voru fjarlægð. Lög og frumvörp til laga og breytinga á lögum um skógrækt, skógvernd og jarðræktarlögum frá Alþingi. Rit um Náttúruminjar og frá Skógræktarfélagi Íslands og Leiðbeiningarmerki frá Vegagerðinni var einnig fjarlægt úr safninu. Úr safninu var einnig grisjað leiðbeingar fyrir sláttuvél og dælu og óútfyllt eyðublöð frá skattinum. Ákveðið var að safnið frá bændaskólanum yrði skráð með safni skógræktarfélagsins þar sem sami skjalamyndari afhenti bæði söfnin. Safnið var hreinsað af heftum og bréfaklemmum eins og kostur var. Í safninu eru persónugeinanleg trúnaðargögn.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Teikningar fyrir skipulag trjáræktar 1990

Skjölin voru upprúlluð þegar farið var að vinna við að flokka og greina safnið. Í safninu voru nokkur eintök af sama eintakinu, það var grisjað og eitt eintak af hvoru var haldið eftir og reynt að laga til og sett í örk.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-

Teikningar og skipulag 1986-1993

Handskrifuð, tölvuunnin og ljósrituð skjöl. Safnið inniheldur verkáætlun, skipulag trjágróðurs og teikningu landslagsarkitekts fyrir tjaldsvæðið á Hólum og líklega hluta af íbúðasvæðinu þar.

Skógræktarfélag Skagfirðinga (1933-