Bréfið vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar ábyrgð á ræktunarsjóðsláni fyrir Albert Sölvason smið, Friðrik Júlíusson verkamann, Jón Jóhannesson ökumann og Sigurð Pétursson bílstjóra á Sauðárkróki. Ástand skjalsins er gott.
Jarðsett í Sauðárkrókskirkjugarði. T.v. presturinn Sr. Helgi Konráðsson. Friðrik Júlíusson hávaxinn á miðri mynd (með slaufu). Niðri í gröfinni gæti verið Valdimar Pétursson.
Deildarfundur Sauðárkróksdeildar KS í Bifröst (1962). Fremst frá vinstri, Ragnheiður þorvaldsdóttir - Helga Jóhannesdóttir - Stefanía Ástvaldsdóttir - Geirald Gíslason - Árni þorbjörnsson - Ágústa Jónasdóttir. Næsta röð f.v. Valgarð Blöndal - Friðrik Júlíusson - Ragnar Pálsson (fjær)- Jón Björnsson (frá Heiði) - sr. Þórir Stephensen - Jónas Þór Pálsson og Jón Friðriksson (Júlíussonar). Sitjandi fremst á mynd (sér á bak )F.v. Árni M. Jónsson - Guðmundur Ó Guðmundsson og Gísli Felixson.