Sýnir 63383 niðurstöður

Lýsing á skjalasafni
Advanced search options
Prenta - forskoðun Hierarchy View:

38668 niðurstöður með stafrænum einingum Sýna niðurstöður með stafrænum einingum

Mynd 49

Skólabörn, fremsta röð f.v.Svavar Hjörleifsson (Kimbastöðum), Gunnar Helgason (Fagranesi) og Kristján Pétursson (Steini). Miðröð f.v. Ingi Helgason (Fagranesi), Páll Jónsson (Daðastöðum) og Sigurþór Hjörleifsson (Kimbastöðum).
Aftast f.v. Kristín Helgadóttir (Tungu), Jóhann Pétursson (Steini) og Hilmar Pétursson (Steini).

Pappírsgögn

2 línustrikuð blöð, á blöðin er handskrifuð dagsetningin 23. maí 1943 og fyrir neðan eru 25 nöfn þeirra sem fermdust 23. maí og 24. október þar sem sú dagsetning er fyrir neðan og tvö nöfn þar við.
Einnig er ljósritað blað, á því er dagsetningin 12.06.98. Á blaðinu eru nöfn og símanúmer.
Blaðbútur með nöfnum, heimilisföngum og símanúmerum.
A4 blað með teiknuðum útlínum eftir ljósmynd. Á blaðinu er handskrifað "Mynd fyrir 1940" og eitt nafn er skrifað á blaðið og svo stendur skrifað "Skólabörnin á Reykjaströnd".

Póstkort og jólakort

8 póstkort með myndum eftir málarann G. Þorsteinsson sem málaðar voru á tímabilinu 1940-1955 og sýna aðstæður og húsakosti fyrri tíma (torfhús, verbúðir, baðstofu, beitiskúra, fiskiþorp og fjárrekstur)
1 póstkort með teikningu af Lindagötu á Sauðárkróki og gefið var út af Bókabúð Brynjars og prentsmiðjunni SÁST.
2 myndir af Sauðárkrókskirkju sem líklega voru framan á jólakortum en klippt af. Önnur myndin er ljósmynd af kirkjunni og í forgrunni er jólatré, hin myndin er teikning eftir myndlistakonuna Ástu Páls.

Sigurlaug Jónsdóttir og Gunnar Helgason: ljósmyndasafn

  • IS HSk N00498
  • Safn
  • 1850-1993

Safn Sigurlaugar Jóns (Lillu Nikk) og Gunnars Helgasonar:
Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum, elstu myndirnar eru pappírskópíur, líklega frá 1850 - yngstu myndirnar eru frá 1993. Einnig eru eftirtökur og stækkanir í safninu og ljósrit af nokkrum myndum, ein ljósmynd og ljósrit voru grisjuð úr þar sem tvö eintök voru til af sömu myndinni. Í safninu eru 8 póstkort með teikningum eftir G. Þorsteinsson voru í safninu, einnig póstkort með teikningu af Lindargötunni á Sauðárkróki, 2 myndir af Sauðárkrókskirkju - líklega framhliðar á jólakortum.
Í safninu voru nokkur blöð með lista yfir nöfnum þeirra einstaklinga sem fermd voru frá Sauðárkrókskirkju árið 1943, einnig ljósritaður listi með nöfnum og símanúmerum þeirra sem hittust á fermingarbarnamótinu 1993 og miði með nöfnum, heimilisföngum og símanúmerum nokkurra þeirra sem búsett voru utan Sauðárkróks. Í safninu er einnig úrklippa úr fréttablaðinu Feyki með fyrirsögninni "50 ára fermingarsystkini" sem var fjarlægð úr safninu.
Einnig er A4 blað með teiknuðum útlínum út frá svart hvítri ljósmynd af skólabörnum á Reykjaströnd. Á blaðið er ritað "Mynd fyrir 1940" og "Skólabörn á Reykjaströnd" búið var að skrá eitt nafn á þetta blað.
Yfir heildina er myndasafnið mjög vel varðveitt, ein svart hvít litmyndin hefur verið rifin og hún límd á spjald og litað hefur verið með svörtum lit í eitt horn myndarinnar.
Nýrri myndirnar voru allar í myndaalbúmum og viðeigandi plastvösum sem voru öll grisjuð úr safninu.

Sigurlaug Jónsdóttir (1929-2008)

Ljósmyndasafn Björns H. Björnssonar

Um 140 svart/hvítar ljósmyndir úr eigu Björns Haraldar Björnssonar, sem var bróðir Ólínu Ingibjargar Björnsdóttur. Myndirnar fylgdu bréfa- og ljósmyndasafni úr eigu Ólínar og Guðjóns Sigurðssonar. Safnið kom í litlu tréboxi (vindlaboxi) sem var grisjað úr, inni í því var umslag með ljósmyndum sem settar voru saman við hinar. Einnig voru litlar myndamöppur með myndum af helstu kennileitum Kaupmannahafnar og utan um þær eru umbúðir / umslög og á þeim er upphleypt konungsskjaldarmerki Danmerkur.

Ólína Ingibjörg Björnsdóttir og Guðjón Sigurðsson: skjalasafn

  • IS HSk N00492
  • Safn
  • 1900-1995

Bréfa og ljósmyndasafn úr eigu Guðjóns Sigurðssonar bakara og Ólínu Ingibjörgu Björnsdóttur konu hans, safnið samanstendur af sendibréfum og erindum m.a til þáverandi sjávarútvegsráðherra Emils Jónssonar (1963). Í safninu eru auk þess 280 pappírskópíur og ljósmyndir, hluti af þeim er úr eigu Björns (Haraldar) Björnssonar, bróður Ólínu. Safn Björns var í litlu tréboxi (gömlu vindlaboxi). Þess má geta að í tréboxinu voru tvær litlar myndamöppur með ljósmyndum af helstu kennileitum Kaupmannahafnar. Ákveðið var að halda söfnunum aðskildum og skrá myndirnar og myndamöppurnar sérstaklega.
Þegar byrjað var að fara yfir myndinar komu í ljós nokkrar myndir sem eru úr eigu Björns Björnssonar sem var tengdasonur Ólínu og Guðjóns, nokkrar af myndunum eru merktar honum og hafa liklega verið birtar í Morgunblaðinu (Björn var lengi fréttaritari blaðsins).

Ólína Ingibjörg Björnsdóttir (1903-1980)

SteP204

Tónlistarskólinn 1971. Skólaslit í Bifröst. Fyrir miðju má þekkja Eyþór Stefánsson skólastjóra skólans og Evu Snæbjardóttur, en þau voru fyrstu kennarar skólans.

Stefán Birgir Pedersen (1936-)

Stefana Guðbjörg Björnsdóttir: skjala- og ljósmyndasafn

  • IS HSk N00497
  • Safn
  • 1930-1970

Safn sem byggist á bréfaskrifum milli Stefönu við frænda hennar óperusöngvarann Stefán Íslandi, þau áttu í bréfaskrifum um 35 ára skeið eða frá því að hann fór utan til söngnáms í Genova á Ítalíu 1930 og allt til ársins 1965 er hann bjó og starfaði í Kaupmannahöfn. Á þeim tíma nam Stefán og starfaði lengi á Ítalíu og svo síðar er hann hóf störf hjá Konunglegu óperunni í Kaupmannahöfn. Í safninu, auk sendibréfanna eru handskrifaðar jólakveðjur, nafnspjöld og skeyti. Einnig efnisskrá tónleika sem Stefán og Else Brehms héldu í Reykjavík ásamt undirleikaranum Fritz Weisshappel og skáldsaga sem er merkt Stefáni. Í safninu voru tveir myndarammar, í þeim voru tvær myndir - önnur þeirra pappírskópía var sett í viðeigandi plastvasa ásamt öðrum litmyndum sem voru í safninu. Hin myndin var úrklippa úr tímariti eða blaði með mynd af Stefáni, sú mynd var grisjuð úr safninu. Ákveðið var að halda myndarömmunum áfram í safninu.
Allt safnið er ágætlega varðveitt.

Stefana Guðbjörg Björnsdóttir

SteP153

Skafti SK 3 kemur í fyrsta skipti til Sauðárkróks í okt. 1973. Hákon Torfason bæjarstjóri talar af þilfarinu (brúarvæng). Geirmundur Jónsson t.v. við jeppann.

Stefán Birgir Pedersen (1936-)

SteP154

Skafti SK 3 kemur til Sauðárkróks í okt. 1973. Hákon Torfason bæjarstjóri stendur á brúarvæng skipsins. Þekkja má Ólaf Stefánsson pósmeistara (með hatt) á hafnargarðinum.

Stefán Birgir Pedersen (1936-)

SteP150

Frá sundmóti á Sauðárkróki 1973. F.v. Sveinn Árnason - Sveinn Ingason og (Páll) Ingimarsson frá Holtskoti.

Stefán Birgir Pedersen (1936-)

SteP149

Frá sundmóti á Sauðárkróki 1973. F.v. Sveinn Árnason - Sveinn Ingason og (Páll) Ingimarsson frá Holtskoti.

Stefán Birgir Pedersen (1936-)

Niðurstöður 171 to 255 of 63383