Print preview Close

Showing 65744 results

Archival descriptions
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

39251 results with digital objects Show results with digital objects

Friðþjófur Þorkelsson

  • IS SIS 005
  • Fonds
  • 1970-2010

Ljósmyndir úr safni Friðþjófs Þorkelssonar.

Friðþjófur Þorkelsson

Anna Pichler

Virðist vera viðbótarlýsing á kunnáttu Önnu Pichler frá St. Quirin / Tegernsee BAYERN, dagsett 30.05.1949.

Akureyri 02.12.1967

Efni bréfs: Varðar söngmót, styrkbeiðnir o.fl. Meðfylgjandi er fundargerð aðalfundar Heklu, sambands norðlenskra karlakóra.
Undir bréfið skrifa Áskell Jónsson, formaður og Árni Jóhannesson, gjaldkeri.

Útskrift úr landamerkjabók Skagafjarðarsýslu varðandi jörðina Víðimýri

Útskrift úr landamerkjabók Skagafjarðarsýslu, landamerkjaskrá fyrir jörðinni Víðimýri í Seyluhreppi í Skagafjarðarsýslu. Þar kemur fram að jörðinni tilheyri rekaítak í Hvalvík, sem er hálfur viðreki og hálfur hvalreki í Hvalvík, frá Hvallæk inn í miðjan Hvalbás, móts við Reynistaðarklaustur. Ritað í Víðmýri 26. maí 1890 af J. Benediktssyni (eiganda Víðimýrar).
Rétta útskrift staðfestir, skrifstofu Skagafjarðarsýslu, 28. apríl 1936, Sigrún M. Jónsdóttir (handskrifuð undirskrift og stimpill).

Leikrit

Enginn titill er á handritinu, en það hefst á 1. atriði. Á öftustu síðu stendur neðst „Tjaldið“ og þar fyrir neðan er dagsetningin 23.01.1921 og nafnið S. Kristinsson, frá Hólum.

Sauðárkrókur

Bréf Ísleifs Gíslasonar til barnabarna sinna, Braga Kristjónssonar og Jóhönnu Kristjónsdóttur.
Meðfylgjandi eru gátur í bundnu máli. Einnig kveðskapur, eftir Ísleif og einnig undir dulnefninu Sneglu-Halli.

Á sveitaballi

Frásögn sem gerðist árið 1923, birt í blaðinu Sóley. Höfundur skrifar undir Þórlaug. Óvíst er hvaða ár frásögnin var birt, en hér má lesa um blaðið Sóley: http://skemman.is/stream/get/1946/1501/5362/1/Lokaverkefni_._skemman.pdf.
Óskar Einarsson afhenti Hannesi Péturssyni frásögnina 20. október 1983. Á meðfylgjandi miða er minnst á Ríkeyju, systur Kristrúnar og um hana má lesa í Skagfirðingabók 12, í grein eftir hana er nefnist Sumur á Syðri-Brekkum.

Frásagnir af fólki

Frásagnir af eftirfarandi fólki:
Jóhann Lúðvíksson, Gísli Gottskálksson, Sigurlína Magnúsdóttir og Sigfús Björnsson.
Handskrifað er í vélritin.
Hannes fékk frásagnirnar sendar af K. Jónssyni (óskýr undirskrift, en virðast vera þeir stafir - ath. rithandaathugun til að finna út um hvaða mann er að ræða). Meðfylgjandi miði er dagsettur 15.02.1982.

Fundargerðir varðandi húsakaup

Fundargerðir bæjarstjórnar, bjæjarráðs og fjárhagsnefndar varðandi húsakaup. Minnst er á bæjarstjórana Björgvin Bjarnason og Rögnvald Finnbogason og húsið við Skagfirðingabraut 25.
Einnig varðandi hús Adolfs Björnssonar rafveitu
stjóra.

Framtíðin

Framtíðin. Framsóknarflokkurinn. Gefið út af stuðningsmönnum B-listans á Sauðárkróki. Útgáfuár óþekkt, líklega 1951-1955.

Samfylkingin - ýmis gögn

Samkomulag milli Framsóknarflokks og Samfylkingar í Sveitarstjórn Skagafjarðar 2006-2010. Einnig reglur varðandi starf Samfylkingarinnar í sveitarstjórninni og skipan sveitarstjórnarráðs.

Jólin

Kortið er stílað á Sigurbjörgu og Magnús, frá Steinunni og systkinum. Það er stimplað í Reykjavík, 18.12.1952

Stefán Stefánsson Brenniborg

Viðtöl við Stefán Stefánsson sem ýmist er kenndur við Brenniborg eða Brúnastaði. Stefán er 97 ára þegar viðtalið er tekið.
Stefán fæddist á Löngumýri og ólst upp á Skíðastöðum., fór í fóstur á nokkra staði eftir að hafa misst föður sinn 12 ára og eftir það suður til sjós. Lærði söðlasmíði á Fjalli og gekk í Flensborgarskólann. Stefán bjó 20 ár á Blönduósi og var einnig bóndi á Brenniborg.
Rætt um kenningar kristninnar og líf eftir dauðann. Einnig rætt um ýmsa samferðamenn Stefáns. Að lokum segir Stefán frá dulrænu atviki er hann var við smíðar og kaupavinnu á Sjávarborg.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Guðmundur Eiríksson frá Breiðagerði

Sigurður Egilsson ræðir við Guðmund Eiríksson frá Breiðagerði.
Rætt um uppvöxt Guðmundar í Sölvanesi, búskaparhætti, m.a. fráfærur. Einnig barnafræðslu í sveitinni en Jóhannes Þorsteinsson var kennari í sveitinni. Jafnframt rætt um búskap hans og Bjargar á Breið og oddvitastörf hans. Einnig spyr Sigurður um viðhorf hans til ýmissa mála.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Pétur Jónasson Sauðárkróki

Viðtal við Pétur Jónasson fyrrum hreppstjóra á Sauðárkróki.
Pétur rifjar m.a. upp bernskuminningar frá Enni, Syðri-Brekkum og Hofsstöðum.
Einnig frá vinnumennsku.

Sigurður Egilsson (1911-1975)

Friðrik Jens Friðriksson læknir

Sigurður Egilsson tekur viðtal við Friðrik J. Friðriksson lækni.
Ræða m.a. um byggingu Sjúkrahússins á Sauðárhæðum og aðdraganda þess.
Einnig ræða þeir um ferðalög Friðríks á Fjöllum, um Sprengisand, Hofsjökul og Helgrindur.
Sigurður og Friðrík fara báðir með kvæði.

Viðtalið tekið 1967.

Reykjavík

Varðar talstöðvar.
Bréfið er stílað á Braga Skúlason, formann Björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar. Undirritað af Óskari Þór Karlssyni f.h. Slysavarnafélags Íslands.

Dreifibréf vegna kaupa á snjóbíl

Bréf frá framkvæmdarnefnd vegna kaupa á snjóbíl. Hefst bréfið svona: „Að tilhlutan Lionsklúbbs Sauðárkróks hafa klúbburinn ásamt Rauðakrossdeild Skagafjarðar, Sauðárkróksbæ og Skagafjarðarsýslu tekið höndum saman um kaup á snjóbíl í héraðið, sem nota skal til sjúkraflutninga og í öðrum neyðatilvikum, þegar öðrum tækjum verður ekki við komið.“
Halldór Hafstað skrifar undir, f.h. framkvæmdarnefndar.
Á bakhlið bréfsins eru handskrifuð drög að bréfi Braga Skúlasonar.

Results 1 to 85 of 65744