Félag sem stóð að rekstri og umsjón með upprekstri búfénaðar í afrétt í Staðarfjöllum. Afréttarlandið var í eigu Staðarhrepps, Rípurhrepps, Seyluhrepps og Borgarsveitar í Sauðárhreppi. Allir þessir hreppar eru í dag sameinaðir og tilheyra Sveitarfélaginu Skagafirði. Starfsemi félagsins hefur því breyst en starfandi er stjórn Staðarafréttar ásamt því að starfandi eru fjallskilanefndir fyrir alla gömlu hreppana.
Published
Partial
Final
ES
IS-HSk
Kaupsamningur Upprekstrarfélags Staðarfjalla á Reynistaðarafrétt árið 1898. Bréfið er líklega eftirrit af upprunalega kaupsamningnum en samningurinn er dagsettur 28.03.1898 á Hafsteinsstöðum.
Í samningnum segir "Afréttarfélagið er: allur Staðarhreppur, allir Rípurhreppur að undanteknu Eyhildarholti, af Seyluhreppi Langholtið fram að Litlu-Seylu að henni meðtaldri, Geldingarholt, holtskot, Fjall, Vatnskarð og Elvogar innan sama hrepps, af Sauðárhreppi allir bæir í Borgarsveit."
Einnig fylgir frumvarp til reglugjörðar fyrir notkun Staðarafréttar, skyldum og réttindum sem eign þeirri fylgir.
Með þessum skjölum fylgdu skjöl sem eru eftirrit af skjölum fyrir Eyvindarstaði í Blöndudal og tengjast afréttarmálum á Eyvindarstaðarheiði og dómsmálum því tengdu. Ekki er vitað um feril skjalanna né hvers vegna þau voru geymd með skjölum afréttarfélags Staðarfjalla.
Published
Published
Eftirrit af kaupsamning Upprekstarfélags Staðarfjalla um kaup á Reynistaðarafrétt.
Published
Frumvarp til reglugjörðar fyrir notkun Staðarafréttar, skyldum og réttindum sem eign þeirri fylgir. Líklega eftirrit af upprunalega skjalinu. Frumvarpið er í 14 greinum og undirritað á Hafsteinsstöðum 28. mars 1898.
Published
Afskrift af skjölum fyrir Eyvindarstaði í Blöndudal.
Skjöl þessi voru geymd með skjölum Upprekstrarfélags Staðarfjalla, ferill ókunnur.
Published