Búnaðarsamband Skagfirðinga var stofnað árið 1931 að frumkvæði Sigurðar Sigurðssonar sýslumanns. Áður hafði þó komið upp umræða að stofna búnaðarsamband því uppkast að lögum fyrir félagið lá fyrir sýslufundi árið 1881 og tók fyrsti ráðunauturinn, Jósef J. Björnsson, til starfa um það leyti. Félagið var ekki formlega stofnað en margir hreppar skiluðu þó inn búnaðarskýrslum til sýslunefndar. Ræktunarfélag Norðurlands vann að jarðabótamælingum í Skagafirði með styrk sýslunefndar frá 1911 en það félag var stofnað 1903 og voru félagar þess í Skagafirði orðnir 51 í árslok 1904.
Published
Partial
Final
IS-HSk
Gögn er varða líflambakaup Skagfirðinga árið 1993 sem Búnaðarsamband Skagfirðinga hefur haft milligöngu um. Líklega hefur verkefnið verið á könnu Egils Bjarnasonar, starfsmanns sambandsins.
Gögn úr fórum Egils Bjarnasonar, ráðunauti hjá Búnaðarsambandi Skagfirðinga. Ekki vitað hvenær hann afhenti safninu gögnin. Innihaldið var í tveimur möppum. Töluvert var grisjað af gögnum, sérstaklega óútfylltum eyðublöðum.
Published
Skrár vegna líflambakaup einstaklinga/bænda í Skagafirði.
Published
Skráning yfir líflambakaup einstaklinga. Seljandi og kaupandi eru tilgreindir og upplýsingar um einstök lömb.
Published
Listar yfir seljendur líflamba, kaupendur og óskir kaupenda um líflömb (fjölda, gerð o.s.frv.).
Published
Published
Reikningar á einstaklinga vegna flutnings, hirðingu og hýsingu á keyptum líflömbum. Sendandi reikninga er Búnaðarsamband Skagfirðinga. Reikningar gefnir út árið 1993.
Published
Listi yfir einstaklinga sem eiga að fá senda reikninga vegna flutnings á hrútlömbum af Snæfellsnesi.
Published
Published
Fjögur erindi/tilkynningar er varðar hrútakaup, lambaskoðun og afkvæmasýningar, um kjötsölu (vantar framan á erindið) og erindi til fasteignamats ríkisins varðandi endurskoðun á fasteignamati á jörð.
Published
Vísa sem kveðin er til Egils Bjarnasonar, starfsmann Búnaðarsamband Skagfirðinga. Höfundur óþekktur. Vísan hljóðar svo:
Ekki mér á Egil lýst,
aldraðan og gráan.
Mikið hefur Bjartur breyst
til batnaðar að sjá'ann.