Björn Jóhann Jóhannesson, f. 17.11.1905 að Kolgröf í Lýtingsstaðahreppi. Foreldrar: Jóhannes Jónasson og María Guðmundsdóttir. Foreldrar hans voru ekki gift. Faðir hans kvæntist Marsibil Benediktsdóttur. Sambýlismaður móður hans var Helgi Guðnason, þau bjuggu lengst af í Þröm. Björn ólst upp hjá móður sinni en frá 12 ára aldri var hann á nokkrum bæjum í Skagafirði, uns hann fór aftur að Kolgröf 18 ára. Árið 1930 keypti hann jörðina ásamt Hrólfi bróður sínum. Maki: Þorbjörg Bjarnadóttir, sem áður hafði verið bústýra þeirra bræðra. Þau eignuðust sjö börn. Þau bjuggu í Kolgröf til 1947 er þau fluttu að Torfustöðum í Svartárdal. Litlu síðar fluttu þau að Fjósum, þar sem heimili þeirra stóð æ síðan.
Anna Margrét Magnúsdóttir, f. á Möðruvöllum í Eyjafirði 18.11.1873, d. 16.07.1959. Foreldrar: Magnús Ólafsson bóndi og hreppstjóri á Möðruvöllum og kona hans Marselína Kristjánsdóttir. Anna var í Kvennaskólanum á Laugalandi 1889-1892. Hún lærði ljósmyndun í Kaupmannahöfn um 1897. Mun einnig hafa lært matreiðslu þar. Þá lærði hún handavinnu og hattagerð í Kaupmannahöfn um 1901. Rak ljósmyndastofu í Lækjargötu 3 á Akureyri frá 1902 og síðar í Brekkugötu 1b. Rak handavinnuskóla á Akureyri 1911-1922. Fluttist frá Akureyri um 1930 og var eftir það m.a. búsett í Reykjavík, á Siglufirði og Vestmannaeyjum. Anna var ógfit og barnlaus en ól upp Jóhönnu Jóhannsdóttur, söngkonu.
Published
Partial
Final
KSE
IS-HSk
Búntóna mynd. Visit kort merkt Önnu Magnúsdóttur ljósmyndara. Á myndinni er spariklæddur karlmaður. Nafn hans er óþekkt.
Ekki tókst að nafngreina manninn á myndinni.