Auðkenni
Tilvísunarkóði
Titill
Dagsetning(ar)
- 1942 (Creation)
Þrep lýsingar
Eining
Umfang og efnisform
Pappírsskjöl.
Samhengi
Nafn skjalamyndara
Lífshlaup og æviatriði
Foreldrar: Guðmundur M. Björnsson bóndi í Tungu í Gönguskörðum (1894-1956) og Þórey Ólafsdóttir handavinnukennari (1895-1945). Maki: Elín Maríusdóttir, f. 1919, d. 2007. Þau eignuðust 4 börn. Bjuggu allan sinn búskap við Langagerði í Reykjavík. Fyrir átti Ólafur einn son með Jóhönnu H. Bergland. ,,Ólafur Björn ólst upp í Tungu í Gönguskörðum og á Sauðárkróki. Hann varð stúdent frá MA stærðfræðideild 1940. Fluttist þá til Reykjavíkur og lagði stund á lyfjafræði við HÍ og síðar í Kaupmannahöfn þar sem hann útskrifaðist cand. pharm. 1948 frá Lyfjafræðiháskólanum í Kaupmannahöfn. Hann starfaði alla sína starfsævi í Reykjavíkurapóteki og var þar yfirlyfjafræðingur 1962-1993 þegar hann lét af störfum vegna aldurs. Ólafur gegndi ýmsum trúnaðarstörfum, var m.a. formaður Lyfjafræðingafélags Íslands 1960-1962 og í stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags 1967-1971. Hann var ritari Garðyrkjufélags Íslands 1968-1997 og ritstjóri Garðyrkjuritsins, ársrits Garðyrkjufélags Íslands, 1968-2000. Ólafur hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf að garðyrkjumálum 1. janúar 1991. Gulllauf Garðyrkjufélags Íslands hlaut hann fyrir störf í þágu félagsins og garðyrkjunnar almennt. Gullmerki Lyfjafræðingafélags Íslands 30. nóvember 2002."
Varðveislustaður
Varðveislusaga
Um aðföng eða flutning á safn
Innihald og uppbygging
Umfang og innihald
Skírteini er úr þykkum pappírs, litprentað en útfyllt með handskrift.
Félagsskírteini Ólafs í skátafélaginu Andvara á Sauðárkróki. Inn í það eru fyltar upplýsingar um metorð innan félagsins og persónulegar upplýsingar um Ólaf. Með liggur skátamerki úr málmi með leðurbandi.