Llocs
Orte
Τοποθεσίες
Places
Lugares
Lekuak
مكان ها
Lieux
Lugares
Helyek
Tempat
Staðir
Luoghi
場所
ადგილები
장소
Plaatsen
Miejsca
Locais
Locais
Kraji
สถานที
địa điểm
Ísland
Hafnarfjörður
Hafnarfjörður er bær á höfuðborgarsvæðinu. Þar bjuggu 26.800 manns 1. janúar árið 2013[1] og hefur bærinn vaxið gríðarlega á síðustu árum og áratugum líkt og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa gert. Höfnin sem bærinn er kenndur við var ein stærsta verslunarhöfn landsins allt frá 16. öld og mikil útgerð hefur verið stunduð þaðan í sögunni. Á 18. öld var rætt um að gera Hafnarfjörð að höfuðstað Íslands, en slæm samgönguskilyrði þangað, lítil mótekja og lítið undirlendi urðu helstu ástæður þess að Reykjavík varð ofan á í valinu. 29. febrúar 2008 náði íbúafjöldi Hafnarfjarðar upp í 25.000 manns, og gaf bæjarstjórinn Lúðvík Geirsson 25 þúsundasta Hafnfirðinginum gjöf og heiðursskjal. Hafnarfjörður heyrði undir Álftaneshrepp framan af en eftir skiptingu hans árið 1878 varð bærinn hluti hins nýmyndaða Garðahrepps. Hinn 1. júní 1908 fékk Hafnarfjörður kaupstaðarréttindi og varð þá að sjálfstæðu bæjarfélagi. Íbúar voru þá orðnir 1469 talsins. Skammt sunnan Hafnarfjarðarbæjar er Straumsvík þar sem Alcan á Íslandi rekur álver. Þann 31. mars, árið 2007 fóru fram íbúakosningar um stækkun álversins í Hafnarfirði. Stækkunin var felld með aðeins 88 atkvæðum.
https://is.wikipedia.org/wiki/Hafnarfj%C3%B6r%C3%B0ur
http://www.geonames.org/maps/google_64.022_-21.961.html
Akureyri
Akureyri er kaupstaður í Eyjafirði á Mið-Norðurlandi. Þar bjuggu 18.191 manns þann 1. janúar 2015[1]. Akureyrarbær er fjórða fjölmennasta sveitarfélag Íslands og það fjölmennasta utan höfuðborgarsvæðisins. Fyrir utan hið eiginlega bæjarland Akureyrar í botni Eyjafjarðar eru eyjarnar Grímsey og Hrísey einnig innan vébanda sveitarfélagsins.
https://is.wikipedia.org/wiki/Akureyri
http://www.geonames.org/2633274/akureyri.html
Hveravellir
Hveravellir er jarðhitasvæði í um það bil 650 metra hæð á hálendi Íslands og jafnframt algengur áningarstaður þegar ferðast er um Kjöl.
https://is.wikipedia.org/wiki/Hveravellir