Myndlist

Taxonomy

Code

Scope note(s)

Source note(s)

Display note(s)

Hierarchical terms

Myndlist

Equivalent terms

Myndlist

Associated terms

Myndlist

1581 Archival descriptions results for Myndlist

1581 results directly related Exclude narrower terms

JG-SO-141

Skissa af kirkju - mögulega kirkjan á Eyrarbakka - umkringd nokkrum húsum. Í forgrunni má sjá manneskju í blárri yfirhöfn (til hægri) og þvottur hangir á snúru við hús (til vinstri). Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-140

Landslagsmynd krítuð á grænan pappír. Í forgrunni rennur á í litlu gili en í bakgrunni eru fjöll. Staðsetning ókunn. Myndin er frá 1986.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-14

Skissa af útför þar sem sjónarhornið er hluti af líkfylgd. Sauðárkrókskirkja sést neðan við Nafirnar. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-139

Skissa af baðgestum Bláa lónsins. Nokkrar manneskjur eru í forgrunni og eru klædd en flestir eru fálæddir að baða sig í grænleita lóninu. Í bakgrunni stígur upp mikil gufa. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-138

Mynd af bláum vörubíl keyra eftir vegi og ljósastaurar eru meðfram veginum. Í forgrunni er manneskja í rauðri yfirhöfn. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-137

Portrettmynd af manni að lesa - óvíst hverjum. Myndin gæti verið frá 1980-1990.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-136

Portrettmynd af konu að prjóna - óvíst af hverri. Í baksýn má sjá húsaþyrpingu út um glugga - staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1980-1990.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-135

Landslagsmynd - óvíst hvar. Sérkennilegt skýjarfar sést yfir fjöllum. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-134

Skissa af manneskju á hjóli og kona kemur gangandi eftir vegi sem beygir milli húsa. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1980-1990.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-133

Mynd af skipahöfn - tvenn skip eru sérlega áberandi - annað grænt en hitt rústrautt. Staðsetning er ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-132

Myndefni er óljóst. Í forgrunni má sjá hund en í bakgrunni er hópur af svönum. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-131

Skissa af landslagi - óvíst hvar. Í forgrunni er tún en í bakrunni eru fjöll. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-130

Landslagsmynd að nóttu. Ljós eru kveikt í nokkrum ljósastaurum. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-13

Mynd af skipi í naust - í forgrunni bera menn timbur. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-129

Skissa af iðnaðarhúsnæði við litla bryggju í firði - staðsetning ókunn. Í forgrunni má sjá tvenna báta en í bakgrunni er fjall. Myndin gæti verið frá 1965-1975.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-128

Dökkleit landslagsmynd - óvíst hvaðan. Myndin gæti verið frá 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-127

Myndefnið er bær - óvíst hvar en mögulega Hafnafjörður. Í forgrunni má sjá baksvipinn á manneskju ganga eftir vegi. Reisuleg kirkja stendur upp úr húsaþyrpingunni - mögulega Hafnafjarðarkirkja. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-126

Landslagsmynd í grænum tónum en í forgrunni má sjá tré. Myndin er frá 1951.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-125

Skissa af nokkrum hestum í landslagi. Rafmagnsmöstur má sjá í bakgrunni. Myndin er frá 1970 eða 1978.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-124

Skissa af manni á hestbaki. Hluta af húsi má sjá á hægri hlið. Myndin gæti verið frá 1975-1985.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-123

Skissa af hestum innan gerðis við tvenn lítil hús. Í bakgrunni er Esjan og miðað við sjónarhornið á fjallið er staðsetningin líklegast í Mosfellsbæ. Myndin gæti verið frá 1970-1980.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-122

Skissa af hópi fólks horfa á nýársbrennu. Myndin er frá árinu 1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-121

Skissa af tveimur manneskjum sem standa við grindverk og í bakgrunni er Reykjavíkurborg. Þar má sjá móta fyrir Borgarspítalanum. Myndin gæti verið frá 1980-1990.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-120

Auglýsingaspjald af manni á Sauðárkróki. Í bakgrunni má sjá kirkjuna í gamla bænum. Á spjaldinu stendur „Glampar á götu. [...?]“ Samskonar mynd er á forsíðu bókarinnar Glampar í götu eftir Björn Jónsson læknir - bróður Jóh.Geirs. Bókin kom út árið 1989 og er myndin því líklegast frá því um eða fyrir þann tíma.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-12

Mynd af tvennum húsum við veg - óljóst hvar. Landslag umhverfis með fjöll í baksýn. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1965-1975.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-119

Skissa af húsum með nokkra báta í forgrunni. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1965-1975.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-118

Skissa af höfn þar sem má sjá einn bát fyrir miðju myndar. Í forgrunni er iðnaðarhverfi. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-117

Skissa af bát sem liggur við skúr. Myndin gæti verið frá 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-116

Mynefnið er óljóst - mögulega hús með staur í forgrunni. Myndin er skissuð með svartri krít. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1950-1960.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-115

Skissa þar sem sjónhornið er yfir húsþök í miðbæ Reykjavíkur. Í forgrunni er tré en bakgrunni er sólarlag yfir Akrafjall og Skarðsheiði. Myndin gæti verið frá 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-114

Þrjár skissur eru á spjaldi. Tvær þeirra eru samskonar - þar sem maður situr álútur á stól með hendur í skauti sér. (Þetta er mögulega æfingarskissa af Jónasi Svafár.) Þriðja myndin er sýnilega yngri en hinar þar sem hún er að hluta til skissuð yfir höfuð mannsins á einni myndinni. Þar er maður að framkvæma eitthvað eða við e.k. iðn. Myndin gæti verið frá 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-113

Hestar við hesthúsin í Víðidal. Hestarnir eru fimm og þar er einnig maður. Í forgrunni er hvítur hestur sem klórar sér í fætinum. Myndin gæti verið frá 1985-1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-112

Skissa af hesthúsunum í Víðidal. Fimm hestar eru innan gerðis og tveir menn sinna þeim. Í bakgrunni má sjá útlínur bæjar. Myndin gæti verið frá 1985-1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-111

Á efri (minni) mynd: Landslagsmynd þar sem bátar liggja í fjöru og fjöll eru í bakrunni. Á neðri (stærri) mynd: Skissa af brú. Báðar myndir eru skissaðar með svartri krít. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-110

Skissa af borg eða bæ þar sem horft er yfir húsaþök. Staðsetning ókunn - líklega Reykjavík. Myndin gæti verið frá 1950-1960.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-11

Myndefni óljóst - nokkrar tunnur og annað brak (haugar?). Myndin gæti verið frá tímabilinu 1970-1980.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-109

Skissa af bátum á landi - óvíst hvar. Í bakgrunni eru hús. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-108

Skissa af bátum í fjöru. Í bakrunni má sjá fjall (mögulega Akrafjall eða Esjuna) handan við fjörðinn. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-105

Skissa af hestum á beit - einn rauður í forgrunni og annar brúnn. Í bakgrunni má sjá brú. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-104

Skissa af Reykjarvíkurhöfn - þar sem má sjá skip og bát. Í forgrunni eru húsaþök en bakgrunni er Esjan og Mosfell. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-103

Skissa er af bæ eða borg. Horft er yfir húsaþök og einnig má sjá kirkjuturn. Staðsetning ókunn - mögulega í Hafnafirði. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-102a

Skissa af höfn með nokkrum skipum - en óvíst hvar. Í forgrunni er húsaþak. Á bakhliðinni er skissa af skipum. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-101

Skissa af skipum/bátum í fjöru - óvíst hvar. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-100

Skissa af nokkrum litlum húsum í landslagi og vegur liggur á milli þeirra - óvíst hvar. Staðsetning ókunn. Myndin gæti verið frá 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-10

Dökkleit landslagsmynd - óvíst hvar en líklega í Skagafirði þar sem fjöllin í bakrunni líkjast Blönduhlíðarfjöllum. Þar sem sót er á bakhlið blaðsins má gera ráð fyrir því að hún sé frá því um eða fyrir brunann sem var á vinnustofu Jóh.Geirs - Laugarvegi 11 árið 1963 - myndin gæti verið frá tímabilinu 1953-1963.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-SO-1

Myndefnið eru hús í þéttbýli - óvíst hvaðan en sennilega úr Þingholtunum í Reykjavík. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-O-49

Skissa af húsaþyrpingu við sjávarsíðuna - óvíst hvar. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1955-1965.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-O-164

Skissa af hestum á beit í haga. Myndin gæti verið frá 1980-1990.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-O-163

Skissa af jólatré á Austurvelli. Í bakgrunni má sjá dómkirkjuna og alþingishúsið. Myndin var notuð í jólakort. Myndin gæti verið frá 1950-1960.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-O-162

Skissa af jólatré hjá styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli. Myndin gæti verið frá 1950-1960.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-O-161

Skissa af torfbæ og í bakgrunni eru norðurljós. Myndin var notuð í jólakort. Myndin gæti verið frá 1950-1960.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-O-160

Ókláruð portrettmynd af ungri konu. Myndin gæti verið frá 1970-1980.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-M-2b

Portrettmynd af manni - óvíst hverjum (mögulega Oddi Einarssyni - sjá mynd á blaðaúrklippu - örk 10 - kassi 14). Hann er með hatt og í bláum jakkafötum. Bakgrunnurinn er rauður og gulur og skuggi hans áberandi bakvið. Myndin er máluð á pappír. Myndin gæti verið frá 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-M-1

Portrettmynd af manni - óvíst hverjum (sjá mynd á blaðaúrklippu - örk 10 - kassi 14). Hann er með hatt og í bláum jakkafötum. Bakgrunnurinn er gulur - ljósbrúnn og grænn. Myndin er máluð á striga. Myndin gæti verið frá 1960-1970.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-A-3

Skissa af manni með yfirvaraskegg og blá augu. Myndin er innrömmuð í skreytt plakat sem á stendur: „Quarta Centura“. Myndin gæti verið frá 1950-1960.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-A-2

Mynd af skipi í höfn. Í forgrunni er bílar og fólk við ýmsar athafnir. Í bakgrunni má sjá Esjuna. Fyrir neðan myndina stendur: „Gleðileg Jól!““. Myndin gæti verið frá 1945-1955.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-A-1

Litaspjald með brúnum - grænum - bleikum - rauðum - bláum og svörtum tónum. Bleikar doppur eru í hverjum reit. Myndin gæti verið frá tímabilinu 1945-1955.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-A-1

Auglýsingaspjald þar sem þrenn jólakort með myndum eftir Jóh.Geir hafa verið límd á og þar fyrir ofan stendur: „Íslensku jólakortin!“ efst. Auglýsingaspjaldið gæti verið frá 1950-1960.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-999

Skissa af konu sitjandi á hesti - umhverfis má sjá fólk og hesta. Á myndinni stendur: „Förukona“. Samskonar mynd var birt í bókinni um Grafar-Jón og Skúla fógeta eftir Björn Jónsson - bróður Jóh.Geirs - á bls. 69. Bókin kom út árið 1996 en Björn Jónsson lést árið 1995 - myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-998

Skissa af tveimur mönnum sitjandi við borð og drekka úr sitthvoru glasinu. Samskonar mynd var birt í bókinni um Grafar-Jón og Skúla fógeta eftir Björn Jónssonn - bróður Jóh.Geirs - á bls. 72. Bókin kom út árið 1996 en Björn Jónsson lést árið 1995 - myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-997

Skissa af tveimur mönnum róa á báti. Á myndinni stendur: „Eiríkur Laxdal“. Samskonar mynd var birt í bókinni um Grafar-Jón og Skúla fógeta eftir Björn Jónsson - bróður Jóh.Geirs - á bls. 88. Bókin kom út árið 1996 en Björn Jónsson lést árið 1995 - myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-996

Gróf skissa af mönnum sitjandi inn í helli. Samskonar mynd var birt í bókinni um Grafar-Jón og Skúla fógeta eftir Björn Jónsson - bróður Jóh.Geirs - á bls. 167. Bókin kom út árið 1996 en Björn Jónsson lést árið 1995 - myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-995

Skissa af fimm einhverskonar púkum. Á myndinni stendur:„snú“. Teikningar í svipuðum stíl voru hluti af mynd sem birt í bókinni um Grafar-Jón og Skúla fógeta eftir Björn Jónsson - bróður Jóh.Geirs - á bls. 137. Bókin kom út árið 1996 en Björn Jónsson lést árið 1995 - myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-994

Skissa af einhverskonar púkum - þar sem annar þeirra ræðst á hest. Teikningar í svipuðum stíl voru hluti af mynd sem birt í bókinni um Grafar-Jón og Skúla fógeta eftir Björn Jónsson - bróður Jóh.Geirs - á bls. 137. Bókin kom út árið 1996 en Björn Jónsson lést árið 1995 - myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-993

Skissa af manni berandi stóran grjóthnullung að öðrum manni sem má sjá baksvipinn á. Á myndinni stendur: „Á Húsafelli“. Svipuð mynd var birt í bókinni um Grafar-Jón og Skúla fógeta eftir Björn Jónssonn - bróður Jóh.Geirs - á bls. 122. Bókin kom út árið 1996 en Björn Jónsson lést árið 1995 - myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-992

Skissa af manni berandi stóran grjóthnullung að öðrum manni sem stendur með krosslagðar hendur. Á myndinni stendur: „á Húsafelli“. Svipuð mynd var birt í bókinni um Grafar-Jón og Skúla fógeta eftir Björn Jónsson - bróður Jóh.Geirs - á bls. 122. Bókin kom út árið 1996 en Björn Jónsson lést árið 1995 - myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-991

Skissa af manni berandi stóran grjóthnullung. Teikning af samskonar manni var hluti af mynd sem var birt í bókinni um Grafar-Jón og Skúla fógeta eftir Björn Jónsson - bróður Jóh.Geirs - á bls. 122. Bókin kom út árið 1996 en Björn Jónsson lést árið 1995 - myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-990

Skissa af manni liggjandi í rúmi - yfir honum stendur prestur ásamt öðru fólki. Samskonar mynd var birt í bókinni um Grafar-Jón og Skúla fógeta eftir Björn Jónsson - bróður Jóh.Geirs - á bls. 186. Bókin kom út árið 1996 en Björn Jónsson lést árið 1995 - myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-989

Skissa af kápu bókarinnar Grafar-Jón eftir Björn Jónsson - bróður Jóh.Geirs. Á myndinni má sjá hestalest ferðast yfir landslag og á henni stendur:„Grafar-Jón og Skúli fógeti : Saga frá átjándu öld. Björn Jónsson fv. læknir“. Bókin kom út árið 1996 en Björn Jónsson lést árið 1995 - myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1995.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-988

Þrennar skissur: lengst til vinstri og þeirri fyrir miðju eru skissur þar sem horft er niður á mann síga niður þverhnípta kletta og til hægri er stúlka við sjóinn og á henni stendur: „Kvæðabók 1950“. Samskonar myndir voru birtar í Kvæðasafni Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977 - önnur í kafla sem heitir Stund og staðir (bls. 109) og hin í kafla sem heitir Í sumardölum (bls. 57). Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-987

Nokkrar grófar skissur - m.a. af vængjuðum hesti - þar sem á einni þeirra stendur: „Kvæðasafn Hannes Péturs“ og stúlku við sjóinn eða á bryggju. Skissurnar er líklega gerðar í tengslum við Kvæðasafn Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-986

Tvennar skissur: vinstra megin er ókláruð skissa af stúlku við sjóinn en hægra megin er lítil skissa af stúlku sem stendur á bryggju með sjómenn og báta í baksýn. Skissurnar eru gerðar í tengslum við Kvæðasafn Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-985

Nokkrar skissur af forsíðu Kvæðasafns Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-984

Nokkrar grófar skissur - m.a. af manni á hestbaki með landslag í baksýn - stúlku standa yfir dreng og nokkrum af stúlku í fjöru með hafið í baksýn. Í efra vinstra horni blaðsins stendur: „ath. stúlka við sjóinn ath. Hús á ströndinni Útsýn. Víðimýrarsel. Rósa.“ Skissurnar er líklega gerðar í tengslum við Kvæðasafn Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-983

Nokkrar grófar skissur innan stundaglass - m.a. af Sauðárkróki - manni á hestbaki - dómkirkjunni í Köln - landslag o.fl. Skissan er líklega gerð í tengslum við Kvæðasafn Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-982

Skissa af krumma standa á klettabrún með landslag í bakgrunni. Myndefnið er í svipuðum stíl var birt í Kvæðasafni (bls. 287) Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-981

Skissa af stúlku sitja í fjöru með hafið í baksýn. Myndefnið er það sama og birtist í kafla sem kallast Í sumardölum (bls. 57) í Kvæðasafni Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-980

Skissa af stúlku sitja í fjöru með hafið í baksýn. Myndefnið er það sama og birtist í kafla sem kallast Í sumardölum (bls. 57) í Kvæðasafni Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-979

Skissa af manni sitjandi á bekk að lesa bók framan við stóra á og baksýn er borg með mikilfenglega kirkju - líklegast dómkirkjuna í Köln í Þýskalandi Á myndinni stendur: „Kvæðab“ sem búið er að strika yfir. Skissan er líklega gerð í tengslum við Kvæðasafn Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-978

Á myndinni er verið að reka kýr í átt að Sauðárkróki og á myndinni stendur: „Innlönd“. Innlönd var kvæðabók eftir Hannes Pétursson en óljóst er hvort myndin var birt í þeirri bók en Innlönd var líka birt í Kvæðasafni Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977 en myndin var ekki birt í þeirri bók. Myndin er líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-977

Teikning af manni sem er þungt hugsi og í bakgrunni má sjá menn standa við krossfestann mann. Svipuð mynd var birt í Kvæðasafni (bls. 5) Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-976

Teikning af krumma svífa yfir landslagi. Mynd í samskonar stíl var birt í Kvæðasafni (bls. 287) Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-975

Teikning af stúlku á strönd. Svipuð mynd var birt í Kvæðasafni (bls. 57) Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-974

Teikning af krumma svífa yfir grýttri strönd með fjöll í bakgrunni. Fyrir neðan myndina stendur: „Óður til Íslands“. Samskonar mynd var birt í Kvæðasafni (bls. 287) Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

JG-973

Gróf skissa af manni og stúlku á hestbaki í landslagi. Skissan er líklega gerð í tengslum við Kvæðasafn Hannesar Péturssonar sem kom út árið 1977. Myndin er því líklega frá því um eða fyrir 1977.

Jóhannes Geir Jónsson (1927-2003)

Results 171 to 255 of 1581