Fonds N00525 - Ungmennafélagið Framför: skjalasafn

Landshlaup Frjálsíþróttasambands Íslands 1979

Identity area

Reference code

IS HSk N00525

Title

Ungmennafélagið Framför: skjalasafn

Date(s)

  • 1941-1999 (Creation)

Level of description

Fonds

Extent and medium

3 innbundnar fundagerða- og bókhaldsbækur

Context area

Name of creator

(1905-)

Biographical history

Ungmennafélagið Framför, stofnað 1. nóvember árið 1905. Á stofnfundi þess voru átta ungir menn og var Jón Árnason á Reykjum aðalhvatamaðurinn að stofnun félagsins. Fleiri gengu í félagið á næstu fundum og má telja að þá 25 menn sem gengu í félagið á fyrsta ári þess sem stofnfélaga. Fyrstu árin voru eingöngu piltar í félaginu en eftir fáein ár voru stúlkur einnig teknar inn í félagið. Á árunum 1909-1912 munu félagar hafa verið á bilinu 50-60.
Í fyrstu var félagið eingöngu málfundafélag en fljótlega var einnig farið að æfa íþróttir. Árið 1910 gaf Jóhann hreppstjóri á Brúnastöðum í Lýtingsstaðahreppi félaginu land undir gróðarstöð, með því skilyrði að þar yrði hafin trjárækt. Eftir það hófst þar kartöflurækt og gróðursetning trjáplantna. Á vegum félagsins var einnig starfandi stúka.
Eftir nokkurra ára starf hófst sundkennsla á vegum félagsins í Steinsstaðalaug. Hérðasmót vorum haldin við Geldingaholt árin 1908-1913 en síðar í Garði. Á fyrstu árum félagsins var samkomuhúsið við Steinsstaði torfhús með þiljum innan og trégólfi. Var það reist af bindindisfélagi og lestrarfélagi sem störfuðu í sveitinni.
Félagslífið í félaginu var fjörugt fyrstu árin. Að vetrinum voru fundir annan hvern sunnudag. Einnig voru glímur, dans og leikir.
Ungmennafélagið Framför var eitt að stofnfélögum Ungmennasambands Skagafjarðar þegar það var stofnað 17. apríl 1910, ásamt Ungmannafélaginu Æskunni Staðarhreppi og Ungmennafélaginu Fram Seyluhreppi.

Archival history

Safnið samanstendur af 3 innbundnum bókum sem innihalda fundagerðir, bókhald, félagatal og lög félagsins. Umsjónarmaður Félagsheimilisins Árgarðs afhenti gögnin eftir að þau höfðu verið geymd þar. Safnið var gróf flokkað við komuna, gögn voru hreinsuð úr og rit sem finna má á timarit.is og eru ótengd sögu Skagafjarðar voru grisjuð úr því.

Immediate source of acquisition or transfer

Content and structure area

Scope and content

Safn sem afhent var af Mörtu Maríu Friðþjófsdóttur sem hafði umsjón með Félagsheimilinu Árgarð þegar afheningin fór fram, skjalamyndarar voru formenn Ungmennafélagsins Framfarar tímabilið 1941-1999. Safnið voru alls 9 öskjur og samanstóð af innbundnum fundagerðarbókum, höfuð- og færslubókum. 1 ljósmynd var í safninu, hún var skönnuð inn og tengd við safnið undir almenn erindi og bréf. Mikið af forprentuðum og handskrifuðum skýrslum, eyðublöðum, einnig vélrituðum og útprentuðum skjölum. Mikið safn af fylgigögnum bókhalds voru varðveitt í gömlum umslögum og var það safn gróflega flokkað og umslögin grisjuð úr safninu.
Talsvert er af skjölum er varða fyrirhuguðum byggingaframkvæmdum á félagsheimilinu Árgarði, sundlauginni og gögn er varða uppbyggingu á íþróttavelli á Steinsstöðum. Erindi og bréf frá ÍSÍ, UMFÍ og sérstaklega frá UMSS um íþróttamót, fundi og annað því tengt.
Grisjað var úr safninu tvítök, auglýsingabæklingar, handbækur frá utanaðkomandi félögum og samtökum.
Umslög, skýrsluform, auð blöð, ársskýrslur UMSS 1982-83 og 89, félagatal og tilkynning til félaga.
Listi yfir aðstandendur nemenda Réttarholtsskóla var fjarlægt, hluti af fréttabréfi UMSS 2. tbl.1991 á því voru bankaupplýsingar einstaklings. Launatöflur, 3 plastkilir og plastvasi í A4 stærð.

Appraisal, destruction and scheduling

Accruals

System of arrangement

Conditions of access and use area

Conditions governing access

Conditions governing reproduction

Language of material

  • Icelandic

Script of material

Language and script notes

Physical characteristics and technical requirements

Í heildina ágætlega varðveitt bækjur, skjöl og skýrslur, snjáður og gulnaður pappír. Safnið hefur að mestu verið geymt í skjalamöppum samanber hversu mikið af gögnum var búið að gata. Hefti og bréfaklemmur sem farin voru að ryðga voru fjarlægð úr safninu.

Finding aids

Allied materials area

Existence and location of originals

Existence and location of copies

Related units of description

Related descriptions

Notes area

Note

Afhending 2019:052 (alls 9 öskjur)

Alternative identifier(s)

Access points

Subject access points

Name access points

Genre access points

Description control area

Description identifier

IS-HSk

Institution identifier

IS-HSk

Rules and/or conventions used

Status

Final

Level of detail

Partial

Dates of creation revision deletion

JKS frumskráði í atóm 13.09.2024

Language(s)

  • Icelandic

Script(s)

Sources

Accession area