Tindastóll er 989 metra hátt fjall innst við vestanverðan Skagafjörð, norðan við Sauðárkrók. Það er eitt þekktasta fjall héraðsins og af því er frábært útsýni í heiðskíru veðri. Nafn fjallsins er oft stytt og það kallað Stóllinn, en áður mun það hafa heitið Eilífsfjall og er sagt hafa verið kennt við landnámsmanninn Eilíf örn.