Sigrún Þórey Hjálmarsdóttir (1915-2019)
- S00124
- Person
- 28. sept. 1915 - 4. júlí 2019
Sigrún Þórey Hjálmarsdóttir var fædd í Eyjafjarðarsýslu 28. september 1915. ,,Sigrún var fjóra vetur í farskóla, nokkrar vikur á hverjum vetri. Einn vetur var hún í Húsmæðraskólanum á Laugalandi í Eyjafirði og lauk ljósmæðraprófi frá Ljósmæðraskóla Íslands 1944. Hún starfaði sem ljósmóðir í Hrafnagilshreppi og Saurbæjarhreppi 1944-1958 og í Öngulsstaðahreppi 1947-1958. Hafði aðsetur á Espihóli í Hrafnagilshreppi þann tíma. Árið 1960 giftist hún Ólafi Runebergssyni, bónda og handverksmanni í Kárdalstungu í Vatnsdal og bjuggu þau þar síðan. Sigrún og Ólafur eignuðust einn son.
Sigrún var á 104. aldursári þegar hún lést.