Samkvæmt upplýsingum á myndinni er maðurinn á myndinni annað hvort Sigurbjörn Bjarnason eða Guðmundur Bjarnason, bróðir Bjargar Bjarnadóttur í Borgargerði, en þeir fóru báðir til Vesturheims. Myndin var send Björgu Bjarnadóttur í Borgargerði.
Myndirnar frá 609 til 616 eru að öllum líkindum teknar á Vífilstöðum, en Kristján C dvaldi þar til lækninga á berklum frá 1920 til 1926. Óvíst er hvort þessar myndir eru teknar þá eða síðar. Fólkið á myndunum er óþekkt.
Kappreiðar á Eyrinni, þar sem nú er Verslunin Eyri og Vörumiðlun, en þar voru haldnar kappreiðar um og eftir 1950. Grár hestur hugsanlega í eigu Björns Skúlasonar. Í baksýn er maður með tvo til reiðar.
Tveir hestar. Sörli Lóu og Gráni Binna. Líklega er það Sigrún M. Jónsdóttir (Lóa) sem stendur á bak við þá. Þess má geta að Sörli og Gráni voru felldir ca. um 1955 og heygðir á túni Binna sunnan við þar sem nú er sjúkrahúsið á Sauðárhæðum.
Anna Kristín Jónsdóttir, áður húsfreyja á Völlum með dótturdóttur sína Kristínu Bjarnadóttur, síðar húsfreyju í Ásgeirsbrekku. Myndin tekin á Uppsölum, líklega 1928.
Ljósmyndin er svarthvít í stærðinni 6x9 sm. Myndin er frá sýningu Leikfélags Sauðárkróks á nýársnóttinni í Sæluviku 1942. Á henni er líklega Sigurður P. Jónsson í hlutverki Húnboga stallara.
Brúntóna pappírskópía í stærðinni 5,9 x 8,8 sm. Á myndinni er Jónas Stefánsson smiður. Myndin er límd á spjald merkt Jóni J. Dahlmann ljósmyndara á Akureyri.
50 ára afmæli Sögufélagsins 1987 haldið í Safnahúsinu. Sjá 01. Leikarar úr Leikfélagi Sauðárkróks leiklesa úr verkum félagsins. F.v. Kristján Skarphéðinsson. Hilmir Jóhannesson, Erling Pétursson, Hulda Jónsdóttir, Elsa Jónsdóttir og Helga Hannesdóttir.
Tvær óþekktar konur. Framan á myndina er skrifað: "ingibjörg og mamma." Aftan á myndina er skrifað: "Ingibjörg frænka mín og mamma. Tekið í Ágúst 1952.
Ljósmynd í stærðinni 9 x 9 sm. Á myndinni sjást m.a. húsin við Aðalgötu 16, 14, 12 og 10 við Aðalgötu og Sauðárkrókskirkja. Myndin er tekin af svölum hússins við Aðalgötu 21.
Fólkið á myndinni er óþekkt en aftan á hana eru skrifaðar þessar upplýsingar: "Við systurnar Stefanía, Ólöf, ég og maðurinn minn, Páll, daginn sem við giftum okkur, 1970." Bætt hefur verið við þeim upplýsingum að sé sem merkir myndina sé Ingibjörg og þær séu dótur Ingólfs Eiríkssonar.