Hjónin á Syðri-Húsabakka, (Emelía) Kristín Sigurðardóttir, f. 1880 á Marbæli á Langholti, d. 1971 og Jón (Kristinn) Jónsson, f.1888 á Völlum í Hólmi, d. 1966. Mynd 1928.
Pappírskópía límd á pappaspjald. Um er að ræða skólaspjald frá Menntaskólanum á Akureyri. Á myndinni er m.a. Stefán Stefánsson skólameistari, auk kennara og nemenda.
Ljósmynd í stærðinni 10,2 x 6,4 sm. Svarthvít pappírskópía. Myndin er tekin af Nöfunum fyrir ofan Sauðárkrók. Fjallið Tindastóll í bakgrunni. Hægra megin við miðju er svokölluð Refakirkja og lengst til hægri sjást nokkur hús á Sauðárkróki.
Svarthvít pappírskópía í stærðinni 6x9,1 sm. Á myndinni er Sigurður Guðmundsson skólameistari. Myndin er límd á spjald merkt P.Brynjólfssyni ljósmyndara í Reykjavík.
Fólkið á myndinni er óþekkt en aftan á myndina eru ritaðar eftirfarandi upplýsingar. "Frá vinstri til hægri. ?, Jóhanna kona mín, Margrét systir mín, Þorbjörg móðir mín, Florence dóttir Margrétar, Thorsteina, Sigríður dóttir mín, ég og yngsta dóttir mín."
Myndin er tekin í Winnipeg í júní 1955. Aftan á hana er skrifað: "Styttan af Jóni Sig. í þinghúsgarðinum og blómsveigur sem lagður að henni 17. júní. Krakkarnir eru íslenskir."
Ljósmyndin er svarthvít í stærðinni 6x9 sm. Myndin er frá sýningu Leikfélags Sauðárkróks á nýársnóttinni í Sæluviku 1942. Á henni er Anna Pála Guðmundsdóttir í hlutverki Mjallar.
Litmynd í stærðinni 18x24 sm. Á myndinni er kór eldri borgara í Skagafirði ásamt undirleikara og er myndin tekin í Borgarneskirkju. Aftasta röð frá vinstri: ?, Rögnvaldur Gíslason, Ólafur Axel Jónsson, Þorbergur Jósefsson, ?, Kári Steinsson, Páll í Keldudal. Miðröð frá vinstri: Dóra Valda rak 1. fv, Inda í Húsey 5. fh. Fremsta röð frá vinstri: Edda Skagfield 1. fv, Alda Ellertsdóttir 4. fv., Ingibjörg Kristjánsdóttir 4. fv.
Kaffisamsæti. Tilefni og staðsetning óþekkt. Á myndinni má þekkja Þorbjörn Árnason (með gleraugu, blómapottur á veggnum fyrir ofan hann) og Ómar Kjartasson (með dokkt hár og rendur á peysuermi).
Nokkrar andlitsmyndir á svarthvítu spjaldi í stærðinni 24,3 x 18,6 sm. Á myndinni eru þátttakendur í meiraprófi bifreiðastjóra á Sauðárkróki 1970 ásamt kennurum. Efsta röð frá vinstri: Ari M. Þorkelsson, Birgir Valdimarsson, Bjarni Jónsson, Valur Ingólfsson, Sigurður Indriðason, Halldór Þ. Jónsson, Björn Ragnarsson, Bragi Hrólfsson og Daníel Einarsson.
röð frá vinstri: Einar Einarsson, Eyjólfur Sveinsson, Freysteinn Traustason og Friðrik Gissurarson.
röð frá vinstri: Guðmundur Helgason, Gunnar Geirsson, Gunnlaugur Tobíasson, Haraldur Stefánsson, Haukur Steinsgrímsson og Hilmar Hilmarsson.
röð frá vinstri: Ingvar Sighvats, Jón Gissurarson, Jón Gíslason, Jónas Svavarsson, Kári Jónsson, Ólafur Sigurðsson, Rúnar Gíslason, Sigurgeir Angantýsson, Símon Skarphéðinsson og Skarphéðinn Jóhannesson. Neðsta röð: Sigurður Halldórsson, Sigurður Sigurðsson, Stefán Hólm, Steinn Ástvaldsson, Sveinn Árnason, Tómas Ástvaldsson, Þórarinn guðmundsson, Þorsteinn Ólafsson, Þórður Hansen og Þorkell Guðbrandsson.
Svartvhít ljósmynd. Negatíva skönnuð í tif. Á myndinni eru, f.v. Steinar Sörensson, Þórunn Snorradóttir og Guðrún Hulda Pálmadóttir. Myndin er tekin í Grunnskólanum á Hofsósi.
Þetta er Fríða á Bakka. Eftirsótt saumakona m.m. Saumaði m.a. fermingarfötin á Stebba í Vallholti, Stefán Íslandi. Bjarnfríður Þorsteinsdóttir f. 1894 á Auðnum í Sæmundarhlíð, d. 1977 á Sauðárkróki. Hér gefur hún hænsnunum á Bakka í Hólmi 1928. Stúlkan með henni er óþekkt. Sennilega Guðlaug Egilsdóttir.
Karlmaðurinn í aftari röðinni er Sigurður J. Gíslason. Hitt fólkið er óþekkt. Aftan á myndina er skrifað: "Hún var nærri búin að dáleiða mig, þessi í brúnu kápunni. Karlamðurinn er úr Rvík og heitir Ólafur Guðmundsson. Við erum mikið saman. Stúlkurnar eru stystur. Myndin er tekin við ljós-bommu. Sigurður J. Gíslason."
Svarthvít mynd í stærðinni 14,7 x 10,2 sm, límd á bréfspjald (kabinent). Á myndinni eru Albert Björnsson og Hólmfríður Margrét Guðjónsdóttir, ásamt börnum sínum. Aftari röð frá vinstri: Hólmfríður, Jóhanna Guðbjörg, Albert og Sveinbjörn. Fremri röð frá vinstri: Guðrún Margrét, Indíana og Auðbjörg Sigríður.
Bjarnfríður Þorsteinsdóttir f. 1894 á Auðnum í Sæmundarhlíð, d. 1977 á Sauðárkróki. Hún dvaldist á Bakka í Hólmi og síðar í Húsey 1917 til 1932. Móðir Hjartar Vilhjálmssonar, bifreiðastjóra á Sauðárkróki. Myndin tekin á Bakka 1928. Tilgáta: Barnið gæti heitið Sigurður Steindórsson.