Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar gjöf vegna starfa varðandi alþingishátíðina. Ástand skjalsins er gott.
Frumvarpið er handskrifuð á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar grenjaleitir og refaveiðar. Ryðskemmd er eftir bréfaklemmu á skjalinu, annars er ástand þess gott.
Reglugerðin er vélrituð á 2 pappírsarkir í folio stærð. Yfirskrift hennar er "Reglugjörð fyrir Skagafjarðarsýslu um hreinsum hunda af bandormum og varnir gegn sullaveiki" Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar viðskipti sýslunnar og Vegamálastjóra. Með liggja afrit af ellefureikningum. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handsrifað á pappírsörk í A4 stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar sýsluvegasjóð. Viðtakandi er óþekktur en gæti hugsanlega verið þingmaður, Ástand skjalsins er gott.
Athugasemdirnar eru handskrifaðar á pappírsörk í folio broti. Með liggja kvittun fyrir dvöl á heilsuhæli, fóðurbirgðaskoðanir, húslán til barnaprófa og 4 kvittanir vegna búfjárskoðunar. Alls 5 pappírsarkir sem varða athugasemdir við sveitarsjóðsreikning Holtshrepps fyrir faradagaárið 1914-1915. Ástand skjalanna er gott.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 19,4x24,5 cm. Bókin er 616 númeraðar síður, þar af 15 auðar síður. Bókin er innsigluð. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 19x22,9 cm. Bókin er 188 númeraðar síður, þar af eru 22 auðar síður. Bókin er innsigluð. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 21,1x32,7 cm. Bókin er 386 númeraðar síður og er fullskrifuð. Bókin er innsigluð. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 24x35,5 cm. Með liggja ýmis minnisblöð sem voru laus aftast í bókinni. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Innbundin fundargerðabók í stærðinni 22,5x29,6 cm. Bókin er 200 númeraðar síður, þar af eru 74 óskrifaðar. Þetta er síðasta fundargerðarbókin, en sýslunefnd var aflögð árið 1988. Þessar fundirgerðir voru gefnar út á prenti.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í folio broti, alls ein skrifuð síða. Það varðar tillögur Bjarna um breytingar á reglugjörð um Drangey. Athugasemd er skráð með blýanti á spássíu, líklega með hendi Sigurðar Sigurðssonar sýslumanns.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar almennan fund um þátttöku Skagfirðinga í Alþingishátíðinni. Ástand skjalsins er gott.
Minnisblaðið er vélritað á pappírsörk í A4 stærð. Það er gefið út af framkvæmdastjóra Alþingishátíðar og varðar "Nokkur atriði til athugunar fyrir héraðsnefndirnar." Ástand skjalsins er gott.
Myndin er teiknuð og lituð á pappírsörk í A4 stærð. Með liggur handskrifað bréf í A4 stærð, undirritað af Tryggva Magnússyni. Fram kemur að hann sé höfundur myndanna og einnig að hann hafi sent frá sér tvær aðrar tillögur. Myndin sýnir merki Skagafjarðar teiknað á fána. Ástand skjalanna er gott.
Handskrifuð pappírsörk í folio broti. Nafnalisti eða einskonar gestabók varðandi gistingu í tjaldborg á Alþingishátíðinni á Þingvöllum. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er handskrifað á pappírsörk í A4 stærð. Það varðar grun um fjárkláða á Skíðastöðum. Með liggur bréfmiði þar sem vottað er að fjárkláði hafi fundist á bænum. Undirritað af Guðvarði Magnússyni. Ástand skjalanna er gott.
Skýrslan er tvær handskrifaðar síður í A4 stærð. Hún varðar afhendingu baðlyfja. Með liggja fjórir seðlar í ýmsum stærðum, er varða afhendingu baðlyfja. Skjölin eru nokkuð skemmd af ryði en annars er ástand þeirra gott.
Bréfið er handkrifað á pappírsörk í folio broti. Með liggur frumvarp til samþykktar um einkasíma í Seyluhreppi í Skagafjarðarsýslu, vélritað á tvær pappírsarkir í folio stærð. Ástand skjalanna er gott.
Bréfið er handkrifað á pappírsörk í folio stærð. Það varðar ábyrgð vegna einkasíma vegna langingar símalínu á nokkur heimili í hreppnum. Ástand skjalsins er gott.
Bréfið er vélritað á pappírsörk í folio stærð, afrit gert með kalkipappír. Það varðar eftirstöðvar greiðslna. Með liggur afrit af reikningum á tveimur pappírsörkum í A5 stærð. Ástand skjalanna er gott.