Showing 894 results

Archival descriptions
Subseries English
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

Rit frá K.Í. 1947-1953

5 smáhefti sem Kvenfélagasambands Íslands lét gefa út, (1947-1953), 2 fundagerðir K.Í. (1947 og 1949), 1 upplýsingarit "Félagsmál og fundarstjórn" (án ártals). 2 lítil rit með lögum K.Í. samþykkt 1947 og 1953.

Sambýli

Gögn er varða sambýli á starfssvæði Róta bs.

Rætur bs

Samingur um afnot á sundlaug 1944

2 vélritaðir samningar Umf. Glóðafeykis og skólanefndar Akrahrepps um leigu á sundlaug í Víðivallalandi og sundskýli í tvíriti. Annað skjalið er undirritað af hlutaðeigandi og vottað. Athugasemd um framlengingu leigu til 5 ára er handskrifuð á bakhlið og er sömuleiðis undirrituð og vottuð.

Samningar 1920-1993

Prentuð pappírsgögn ( handskrifuð ca 1940 ) um hina ýmsu samninga, kauptaxta og samkomuleg er félagið kom að. Gögnin eru í góðu lagi en elstu gögnin í viðkvæmu ástandi en það kom i ljós mygla í örk 29 sem er hreinsuð. Gögnin liggja í ártalaröð og eru hreinsuð af heftum og skráning uppfærð.

Samningar 1982-2000

Prentuð pappírsgögn og litlir bæklingar um hina ýmsu samninga, kauptaxta og samkomuleg er félagið kom að. Gögnin eru í góðu lagi og liggja í ártalaröð þau eru einnig hreinsuð af heftum.

Samningar 1988-2000

Prentuð pappírsgögn og litlir bæklingar um hina ýmsu samninga, kauptaxta og samkomuleg er félagið kom að. Gögnin eru í góðu lagi og liggja í ártalaröð þau eru einnig hreinsuð af heftum.

Samningar 1995-1999

Prentuð pappírsgögn og litlir bæklingar um hina ýmsu samninga, kauptaxta og samkomuleg er félagið kom að. Gögnin eru í góðu lagi og liggja í ártalaröð þau eru einnig hreinsuð af heftum.

Samningar 2000

Prentuð pappírsgögn um hina ýmsu samninga, kauptaxta og samkomuleg er félagið kom að. Gögnin eru í góðu lagi og liggja í ártalaröð þau eru einnig hreinsuð af heftum.

Samningar um rekstur Bifrastar

Í safninu eru útboð og samningar sem gerðir voru vegna veitingasölu í Bifröst, flestir samningarnir sem eru í safninu voru gerðir við Guðjón Sigurðsson bakara. Í safninu eru ýmis bréf og erindi sem tengjast útboðum og ákvörðun stjórnar Bifrastar.

Samtínungur skjala frá 18. og 19. öld

Ýmiss konar samtíningur.
1) Bréf frá Ingibjörgu Björnsdóttur, Svínavatni (1, skr. 1791). Utanáskrift: "Vyrdug legum Heidurs mane Erlende Runulfssyne aa/ Gieldingholte".
2) Kaupsamningur Jóns Espólíns sýslumanns og Sigurðar Ólafssonar. Sá fyrrnefndi selur Sigurði eignarjörð sína Langhús. Samningurinn dags. 2. apríl 1827. Innsigli á bréfinu; sum skert. Espólín samþykkir gjörninginn (áskrifað).
3) Stafróf og rúnir(2). Á öðru stendur: "Rut Ólafsdóttir".
4) "Fá-Ein Staf-Rof Handa Unglingum Er Sig í Skrifkonst æfa vilia". Hér getur fljótaskrift, höfðaletur, grísku- og latínuletur, klapprúnir o.fl. Á einni síðu stendur: "Thorvaldur Thorvaldsson".
5) Saga af Tyro Konge Ite Cap. "Þaa lidid var fraa Heimsins Skaupum. ..." 2 bls.
6) Brot úr rímum.
7) Tvíblöðungur með guðrækilegu efni (utan af Leirgerdar Mersu látum). Hönd sr. Jóns á Bægisá (?).
8) Auglýsing um "Auction" 1838. Lárus Thorarensen sýslumaður auglýsir "eptir Begæringu Proprietarii Monsr. B. Illugasonar á Hofsstöðum sem formyndara Jomfru Helgu Gunlaugsdóttur i Nedraási í Hólahreppi" að seldir verði "henni í arf til fallnir Fémunir..."
9) Byggingabréf fyrir Ytra-Vallholti 1844.
10) Kristinn Jóhannesson í Árnesi ritar föður sínum 6. sept. 1843.
11) Hrossakaupasamningur frá 4. 6. 1888, milli Símonar Bjarnarsonar Dalaskálds og Margrétar Sigurðardóttur k.h.
12) Kvæði og vísa (1 bls.) Undir stendur: "Húnvensk Stúlka. Ólöf Sigurðardóttir".
13) "Bæn mót nauðbágindum og háska sem og mótstandöndum og galdri."

Sauðárkróksbíó h/f

1 innbundin og handskrifuð bók, einnig vélrituð og handskrifuð pappírsgögn sem tengjast Sauðárkróksbíó h/f, þar á meðal er stofnsamþykkt fyrir kvikmyndahúsið og skjöl er varða, tækjakaup, rekstur bíósins og fjármögnun.

Sendibréf frá Rannveigu Líndal

4 handskrifuð sendibréf frá Rannveigu Líndal til Sigurbjargar. Innihald bréfanna tengist að mestu leiti starfsemi Kvenfélagsins Óskar, Sambandi Norðlenskra kvenna og aðeins er minnst á stofnun sambands fyrir öll kvenfélögin í Skagafirði sem verði nokkurs konar samstarfsvettvangur allra félaganna.
Í bréfunum segir einnig Rannveig aðeins frá sjálfri sér og því sem hún hefur fyrir stafni hverju sinni.

Rannveig Hansdóttir Líndal (1883-1955)

Sendibréf frá Stefáni Jónssyni

Í safninu er 1 vélritað bréf frá Þórhalli Sigtryggssyni kaupfélagsstjóra Kaupfélags Þingeyinga vegna fyrirspurnar Magnúsar Hartmannssonar í Brekkukoti vegna áhuga á kaupum á spunavél fyrir kvenfélagið. Í bréfinu vísar Þórhallur erindir Magnúsar til Stefáns Jónssonar á Núpi við Djúpavog sem smíðaði slíkar vélar. Síðan taka við bréfaskifti á mili Magnúsar, Sigurbjargar og Stefáns. Í safninu eru 2 handskrifuð bréf frá Stefáni til Magnúsar og 1 til Sigurbjörgu eftir að vélin var afgreidd. Í bréfunum kallar Stefán þau Magnús og Sigurbjörgu "Hafdal".

Sigrún Júlíusdóttir

Jóla og tækifæriskort úr fórum Sigrúnar Júlíusdóttur og Sigurjóns Jónassonar á Syðra-Skörðugili á Langholti. Kortin eru frá árunum 1928-1960.

Sigrún Júlíusdóttir (1907-2006)

Sjóðsbók

Handskrifuð harðspjalda Sjóðsbók í góðu ásigkomulagi. Bókin var hreinsuð og vel læsileg.

Sparisjóður Hólahrepps

Sjóðsbók

Handskrifuð harðspjalda Sjóðsbók í góðu ásigkomulagi. Bókin var hreinsuð og vel læsileg.

Skattaskýrslur 1950

Skattaskýrslur Rípurhrepps og Viðvíkurhrepps árið 1950. Óvíst hvernig Viðvíkurhrepps gögn tengjast Rípurhrepps.

Rípurhreppur

Skjal

Þrjú handskrifuð pappírsgögn um barnabækur afhentar Varmahlíðarskóla samkvæmt ákvörðun stjórnar Lestrarfélagsins 25/2 1997 samþykkt af Sveitastjórn. Svo koma númerarunur um málið og síðan afhent 9. apríl 1997.

Results 596 to 680 of 894