Vélritaðir og fjölfaldaðir efnahags- og rekstrarreikningar fyrir Félagsheimilið Bifröst og Sauðárkróksbíó. Ekki eru ársreikningar fyrir öll árin samfellt, í sumum tilvikum vantar ársreikninga frá öðrum hvorum aðilanum. Nýrri ársreikningarnir eru þykkri og innbundnir.
13 vélritaðir og fjölfaldaðir efnahags- og rekstrarreikningar fyrir Félagsheimilið Bifröst og Sauðárkróksbíó. Elstu ársreikningarnir eru 1-3 blaðsíður - ekki er fullvitað hvort það vanti skjöl inn í. Flestir ársreikningarnir í þessu safni eru fyrir Sauðárkróksbíó og nokkrir fyrir Félagsheimilið Bifröst - í sumum tilvikum vantar ársreikninga frá öðrum hvorum aðilanum. Í safninu er einnig Byggingareikningur félagsheimilisins frá 1953, einnig er skuldalisti sem ekki er vitað hverju hann tengist. Skjalið er ódagsett og án ártals.
Handskrifaðar ársskýrslur um tekjur og gjöld félagsins. Gögni í nokkuð góðu ástandi en vek athygli á elstu gögnum frá 1902 - 1906 sem hafa einstaklega fallega rithönd Björns L Blöndal
Árskýrslur og sundurliðun ársreikninga í prentuðu máli og nokkrar innbundnar skýrslur. Vantar lítið inn í ártöl. Skýrslur látnar halda sér eins og þær birtust í einkasafni Harðar Jónssonar með léttum plastkili.
Ársreikningar Varmahlíðarfélagsins frá árunum 1956-1964, eitt eintak af hverjum. Reikningarnir eru vélritaðir á pappír í A4 stærð, heftaðir og límband límt á kjölinn. Á þeim eru nokkrar ryðskemmdir eftir hefti.
Ársreikningarnir eru handskrifaðir á sjö pappírsarkir, einn fyrir hvert ár á árabilinu 1964-1970. Með reikningnum 1969 liggja tvö auka blöð. Ástand skjalanna er gott.
Innbundin og handskrifðuð bók með línustrikuðum síðum, í bókinni eru bókhaldsfærslur frá 1935-1948, ekki nema hluti af bókinni er nýttur fyrir reikningshalds, mikið er af auðum blaðsíðum. Bókin er með límborða á kjölnum og er ágætlega varðveitt.
Starfsskýrslur og Árskýrslur U.M.F.Í og ÍSÍ. Innbundinn árskýrsla UMSS og litlar árskýrslur frá U.M.F.H. 1947 - 1966. Gögn í góðu ástandi nokkuð heilleg blöð.
Forprentaðar árs og mánaðarskýrslur fyrir skátafélagið Andvara fyrir tímabilið 1929-1962. Í safninu eru tvær mánaðarskýrslur frá árinu 1962 fyrir janúar og febrúar. Ársskýrslurnar ná yfir tímabilið 1929-1948, þó vantar skýrslur frá árinu 1943-1946 í safnið. Skýrslurnar eru í mismunandi ástandi, blöðin rifnuð, skítug og hafa gulnað.
"Ungmennafélagið Tindastóll á Sauðárkróki hóf útgáfu handskrifaðs blaðs er nefndist Árgeislinn árið 1907. Blaðið varð þegar í upphafi vettvangur deilna milli félagsmanna þar sem tókust á sjónarmið íhaldsstefnu og frjálslyndis á ýmsum sviðum. Einkum voru átökin um bindindisheit félagsmanna og um hvort félagið ætti að hafa kristileg gildi í hávegum. Helstu baráttumenn hvors hóps voru annars vegar Jón Þ. Björnsson og Brynleifur Tobíasson kennari, sem fulltrúar kristinna gilda og bindindis, og hins vegar Jón Pálmi Jónsson ljósmyndari og Árni Daníelsson kaupmaður."
Ýmislegt er varðar þátttöku Erlendar Hansen í bæjarstjórnarmálum á Sauðárkróki á tímabilinu 1950-1975. Til að mynda gögn er varða deilur um bæjarreikninga 1960, ávörp Erlendar, fréttabréf stjórnmálaflokka.
Myndir eru ekki skráðar né settar inní AtoM, vegna þess að þessi gögn eru í eigu ljósmyndara og við megum ekki nota nema í samráði við hann. En í öskju er búið að setja nöfn við ljósmyndirnar og jafnvel nafn á leikriti.
25 pappírsskjöl sem varða aksturskostnað við byggingu bryggju í Haganesvík.Reikningarnir koma frá ýmsum aðilum og eru stílaðir á Hafnarsjóð Haganeshrepps. Einnig umslag sem merkt notað hefur verið til að sundurgreina kostnaðarliði við framkvæmdirnar.