Showing 8580 results

Archival descriptions
File
Advanced search options
Print preview Hierarchy View:

68 results with digital objects Show results with digital objects

Ýmis gögn úr safni S.S.K. 1998

Forprentuð og ljósrituð pappírsgögn, í safninu er veifa merkt Slysavarafélagi Íslands 7 ára, forprentað eyðublað fyrir ársskýrslur kvenfélaganna. Einnig formleg erindi og bréf frá stórn Sambands Borgfirskra Kvenna, K.Í, Landspítalanum, Sameinuðu sveitarfélagi í Skagafirði. Ódagsett og án ártals lög Kvenfélagssambands Íslands. Einnig eru lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda, minnisblað er varða Lífeyrisréttindi hjóna, og lög um orlof húsmæðra nr.53/1972.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K. 1999

Forprentuð og tölvuprentuð skjöl, í safninu eru þakkarbréf frá Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, Könnun á hlutverkum kvenfélaganna árið 1999, spurningalisti frá Byggðasafni Skagfirðinga og bæklingurinn Kvenfélög við aldahvörf,höf. Sigríður Sigurðardóttir. Bréf með niðurstöðu rannsóknar á stöðu og viðhorfum kvenna í dreifbýli á Norðurl. vestra.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K. 2000 - 2003

Ljósrituð, handskrifuð og forprentuð pappírsgögn, í safninu er skýrsla kvenfélags Sauðárkróks, erindi frá Sigríði Sigurðardóttur hjá Byggðasafni Skagafjarðar, lög K.Í., viðurkenning veitt K.Í. frá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Erindi frá Kaupfélagi Skagfirðinga vegna "Byggðahóps Skagafjarðar". Þakkarbréf frá Grunnskólanum á Hofsósi og Alþýðulist. Einnig teikning, afmæliskort, boðskort, beiðni um styrk til útgáfu bókar um Skagfirska rósavettlinga ásamt kostnaðaráætlun. Allt safnið var mjög vel varðveitt.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K.1981

Skjöl frá árinu 1981 í safninu eru skýrslur S.S.K., nafnalisti yfir formenn kenfélaga í Skagafirði. Formleg og óformleg erindi og bréf frá formanni S.S.K. til kvenfélaganna í Skagafirði. Í safninu eru aðallega bréfasamskipti er varða dvalarheimili aldraða í Skagafirði þar sem árið 1981 var alþjóðaár aldraðra. Fundardagskrá formannafundar S.S.K. ódags. og án ártals.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn úr safni S.S.K.1982

Í safninu er félagatal Kvenfélags Sauðárkróks, skýrsla S.S.K. og nafnalisti formanna kvenfélaganna í Skagafirði. Þakkarbréf frá Öldrunarnefnd Skagafjarðar vegna greiðslna á fé sem Samband Skagfirskra Kvenna gaf til byggingar Hjúkurnar- og dvalarheimilisins á Sauðárkróki. Skýrsla vegna vinnuvöku, nafnalisti formanna kvenfélaga í Skagafirði og bréf til formanna. Erindi frá Friðarhópi Kvenna í Reykjavík og K.Í. Bréfasamskipti Guðrúnar L. Ásgeirsdóttur við Svend Hamborg vegna heimsóknar hans til Íslands.

Samband skagfirskra kvenna (1943 - )

Ýmis gögn varðandi hitaveitu í Varmahlíð 1996-1997

Bréf; greinagerðir; fundagerðir; jarðhitaboranir og rannsóknir; rekstraryfirlit sveitarsjóðs; ársreikningar.
Samningur - Sýslunefnd og Varmahlíðarfélagið - yfirtaka Seyluhrepps á hitaveitu Varmahlíðar.
Verksamningur - hitaveita og Jarðboranir hf.

Úr 1 möppu.

Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu (1874-1988)

Ýmis gögn varðandi lagningu hitaveitu í Seylu-; Staðar- og Skarðshrepp. Samningar. 1984-1996.

V/ lagning hitaveitu í Seylu-; Staðar- og Skarðshrepp; bréf; fundagerðir; gjaldskrár; ársreikningar; efniskostnaður; lánsumsóknir; rekstrarreikningar; reglugerðir; skýrslur o.fl.
Meðfylgjandi er gamalt brunabótamat bæja í hreppnum og ljósrit úr fundagerðabókum og samningur um lóðarleigu og hitavatnsréttindi í Varmahlíðarlandi 1957.

Samningur - Menningarsetur Skagfirðinga og sýslunefnd - yfirtaka Seyluhrepps á hitaveitu Varmahlíðar.
Samningur - Hitaveita Seyluhrepps og Miðgarður - heitt vatn.
Samningur - Hitaveita Seyluhrepps og Jóhann Gunnlaugsson Víðimýri - leiga á geymsluhúsnæði.

Úr 1 möppu.

Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu (1874-1988)

Ýmis kveðskapur

Ýmis kveðskapur, að mestu eftir Magnús. Einnig kvæði undirritað af Bjarna Gíslasyni og vísur undirritaðar af St. St, Stefáni Stefánssyni frá Móskógum á Bökkum, Skagafirði.
Með er úrklippa úr blaði, minningagrein eftir Magnús í bundnu máli um Gísla Sigurðsson hreppstjóra á Víðivöllum, 1948.
Sum kvæði Magnúsar birtust seinna í bókinni Ég kem norðan kjöl (1954).

Ýmis lög, ýmsir höfundar.

Þórarinn Jónsson; Heiðbláa fjólan mín fríða og Ave María.
Fjallið eina; Björn Franzon við kvæði Jóhannesar úr Kötlum.
Miðnætti; Ljóð Steingríms Thorsteinson, lag Árna Thorsteinsson.
Sofðu unga ástin mín; Sv.Sv.
Kvöldklukkan; Árni Thorssteinsson, 2 eintök.
Lokuð sund; Einar Kvaran, lag Jón Blöndal.
Jeg vil elska mitt land; B. Þorsteinsson, 2 eintök.
Bí bí og blaka; útsetning Markús Kristjánsson.
Tunglið tunglið taktu mig; útsetning Markús Kristjánsson.
La Gitana; S. Heiðar.
Kong Sverre; af Grímur Thomsen.
Pietro maseagni, Cavalleria rustieana; Maríubæn.
Driknt to my only; texti sem heitir Fornt ástarljóð enskt. Byrjar svona; Helgum frá döggvum himnabrunns....
Gígjan; Sigfús Einarsson.
Til skýsins; Jón Thoroddsen- Emil Thoroddsen. 28.10.1945
Nótnaskrift óþekkt, lag og texti óþekkt.

Stefán Guðmundsson Íslandi (1907-1994)

Ýmis önnur gögn

Prentuð blöð og skrifuð, kvittanabækur, ýmsar kvittanir, persónuleg bréf.
Greinagerð atvinnumálanefnadar Hólahrepps um tjaldsvæði innan skógræktargirðingar á Hólum, Pétur Bjarnason 1985 og því fylgja önnur bréf.
Handskrifuð mappa um hin ýmsu mál hreppsins.
Bréfaskriftir um tillögu um rekstur á plóg sem sameign. Aðrar upplýsinga um plóg eru að finna í N00478 E -A. Búnaðarfélag Viðvíkurhrepps.

Ýmis pappírsskjöl 2000-2004

Í safninu er skjalaskrá Jóns Þorlákssonar og Ingibjargar Claessen Þorláksson sem afhent voru Borgarskjalasafni Reykjavíkur. Göngukort í nágrenni við Hraunsvatn í Öxnadal límt við þakkarbréf frá Hrauni í Öxnadal ehf.

Árni Ásgrímur Blöndal (1929-2017)

Ýmis samtíningur

1) Samningur og dómur milli Stafns og Eyvindarstaða 1853 og bréf um tolla af Eyvindarstaðaheiði s.á. ásamt fundargjörð fundar, sem leiða skyldi deiluna til lykta.
2) "Æfiágrip Sigríðar Halldórsdóttur Vídalín, eftir J. Halldórsson ( þ.e. sr. Jón Halldórsson) á Húsabakka 1841; def. vantar
3) Bann hreppsstjóra Lýtingsstaðahrepps við heimsóknum að Skíðastöðum vegna veikinda þar, 1887.
4) Skýrsla um fjárfelli í Skagafjarðarsýslu veturinn 1886-1887.
5) Uppskrift á búi Guðmundar Bjarnasonar í Gilkoti, Lýtingsstaðahreppi 1889.
vantar
6) Byggingarbréf fyrir Litladal 1890.
7) Uppskrift á dánarbúi sveitarómagans Kristínar Jónatansdóttur, Héraðsdal, 1891. vantar
8) Landamerkjaskrá fyrir Úlfsstaði.
9) Skrá um útsvör í Lýtingsstaðahreppi 1876-1888. vantar
10) Ýmis gögn bindindis- og lestrarfélagsins Neista, Lýtingsstaðahreppi, 1879-1899.

Ýmis skjöl

Ýmis einkaskjöl úr fórum Jóns Sigurðssonar, m.a. samantekt hans á manntölum og framteljendum í Sauðárhreppi hinum forna 1801-1898, rit Árna G. Eylands - Heim að Hólum, uppkast að kaupsamningi, fréttabréf Hólafélagsins og Virkjunarmat Rafveitu Sauðárkróks á Reykjafossi í Svartá í Skagafirði.

Ýmis skjöl

Meðal annars er hér að finna:

  • Bréf til sýslumanns, ritað í Syðri-Brekkum 1861 þar sem kvartað er yfir því að sumir bændur í Akrahreppi standi ekki við sínar skyldur varðandi göngur, fyrirstöðu og gagnaskil.
    -Samþykkt um öræfaleit á svæðinu milli Skjálfandafljóts að austan og Jökulsár eystri í Skagafirði að vestan. Ódagsett.
  • Skrá yfir nýupptekin mörk í Akrahreppi, haustið 1924
    -Reikningur fyrir viðgerð á girðingu á Öxnadalsheiði og fleira, dagsett 24.10.1923.
    -Skrá yfir verðlag til skattaframtals 1941.
    -Athugasemdir Stefáns Jónssonar á Höskuldsstöðum við hreppsreikning Akrahrepps árið 1932.
    -Samþykkt um öræfaleit á svæðinu milli Skjálfandafljóts að austan og Jökulsár eystri í Skagafirði að vestan. Dagsett: 17.04.1923. Merkt sem afrit.
  • Drög að bréfi Stefáns Jónssonar á Höskuldsstöðum til sýslunefndar varðandi fjallskilastjóra. Dagsett 12.03.1929.
  • Reikningur yfir kostnað við fyrirstöðu á stóðhrossum á Silfrastaðaafrétt sumarið 1930.
    -Listi yfir niðurjöfnum tryppagjalds og gangnaskila haustið 1924.
    -Listi yfir framtalda sauðfjáreign í Akrahreppi eftir skattskýrslum í febrúar 1927.
    -Reikningur um sveitaútsvör í Akrahreppi fardaga árið 1876-77 (að öllum líkendum afrit Stefáns Jónssonar).
    -Útdráttur úr ærbókum á Höskuldsstöðum í Blönduhlíð 1905-1932
    -Skýrsla um búnaðarástand í Akrahreppi í fardögum árið 1864 (að öllum líkendum afrit eða skrif Stefáns Jónssonar).
    og fleira ...

Ýmislegt

Gögn sem komu úr fórum Rögnvaldar Jónssonar:
Fjallskilareglugjörð fyrir Skagafjarðarsýslu frá 1906.
Verðlagsskrá fyrir Skagafjarðarsýslu frá 16. maí 1935 - jafnlengdar 1936.
Félagsmannatal Kaupfélags Skagfirðinga frá 1950.
Bréf frá innlánsdeild Kaupfélags Skagfiðinga - e.d.

Rögnvaldur Jónsson (1908-2003)

Ýmislegt

Stundaskrá með yfirliti yfir afnot ákveðinna hópa af sundlaug Sauðárkróks árið 2002 og samskipti Guðjóns við Sveitarfélagið vegna gjafar hans og eiginkonu hans, Ingibjargar Kristjánsdóttur, til sundlaugarinnar.

Guðjón Ingimundarson (1915-2004)

Ýmislegt

Tryggingaskírteini 1903, niðurjöfnun Seyluhrepps 1904 og uppskrift úr Landamerkjaskrá fyrir Sauðá frá 1885.

Ýmislegt annað

Gögnin samanstanda af hinum ýmsu málum er komu með einkasafni Harðar Jónssonar eins og söngskrár, Gullkornið málgagn hugmyndafélags Hólasveina 1974 - 1975 3 einök, bréfaskriftir Agnesar Ýr Þorláksdóttur og litlar Bækur er tilheyrðu Herði eins og Skín við sólu Skagafjörður bók sem hann fékk í verðlaun fyrir bestan vitnisburð í málfræði og reikning 1966. Mynd af Sýslunefnd Skagafjarðarsýslu 1976 er einnig hér.

Hólahreppur

Ýmislegt útgefið efni

Ýmislegt útgefið efni, krónu seðill, barna litabók og annað efni t.d. Barnablaðið, tímaritið Landvörn, tímaritið Ægir, tímaritið Dýraverndarinn, bókaslitrur og auglýsingar.

Ýmsar hugleiðingar um trú og siðfræði

Á þessum síðum boðar Sölvi lífspeki sína á almennum nótum, líkt og ráðleggingar til lesenda. Hann ávarpar lesandann ítrekað og jafnvel virðist sem hann sé að ávarpa einhvern ákveðinn mann en á bakhlið síðu fjögur ávarpar hann fimmtán ára efnilegan drykkjuhrút.

Results 8416 to 8500 of 8580