Þessi stutta skýrsla fjallar um komu þýska verkafólksins til Íslands sem von var á nokkrum dögum seinna, um tilkomu þess og hverju þau ættu von á þegar þau kæmu til landsins.
Lítil grein eða fyrirlestur um elstu rituðu/prentuðu heimildir sem til eru um Ísland. Að öllum líkendum eftir Bruno, alla vegana stendur "Dr. Schweizer Diessen" við lok greinar.
„Draumur eins manns sem svaf altént með lokuð augun opin og gerði þannig alla drauma sína að sannindum, fullvissu og trú.“ Umfjöllun um speking vísindana sem fær vitranir sínar af alföðurnum.
Ýmis dreifibréf til bókasafna. Alls 40 blöð. Bréfið eru flest frá bókafulltrúa Menntamálaráðuneytis og Hagstofunni. Þau varða flest framlög til bókasafna og leiðbeiningar um starfsemi þeirra. Mörg blaðanna er gulnuð en að öðru leyti er ástand þeirra gott.
14 skjöl þar sem hinir ýmsu embættismenn sem starfa í umboði sýslunefndar undirrita drengskaparheit vegna embættisstarfanna. Svo sem kjötmatsmenn og ullarmatsmenn. Ástand skjalanna er gott.
Drög að samningi um sameiningu útgerðarfélaganna Nöf h.f. og Útgerðarfélags Skagfirðinga, Sauðárkróki. Undirritað 11.12.1973 af stjórn Nafar h.f. en vantar undirritun ÚSS. Saman við þetta er heftað "Samningur stjórnar" undirritað 11.12.1973 af stjórn Nafar h.f.
Sigurjón Runólfsson sækir um byggingaleyfi fyrir endurbótum á íbúðarhúsi á Dýrfinnustöðum. Til stendur að breyta gluggum og fleira. Umsókn dagsett 13.9.1979. Teikningar fylgja ekki.